Vikan


Vikan - 12.06.1980, Page 12

Vikan - 12.06.1980, Page 12
Glerhúsið „Málið snýst ekki um hvort eigi að leyfa fóstureyðingar eða ekki heldur hvenær eigi að leyfa þær og hver eigi að ráða því" „Mikil er ábyrgð þeirra og sjálfstraust, sem telja sig geta tekið jafnörlaga- ríka ákvörðun fyrir aðrar manneskjur" . . allar hugmyndir um þrengingu þessara laga eru því út í hött" 12 Vikan 24. tbl. Er ástæða til að þrengja ákvæði INGIBJÖRG HAFSTAÐ: Þeir sem laka þá afstöðu, að lif sé orðið til strax eftir frjóvgun og það sé morð að fjarlægja það, hljóta að taka eindregna afstöðu gegn fóstureyðingum, af hvaða ástæðum sem þær eru. Aðeins þeir. seni taka þessa afstöðu tii fulls. hafa siöferði legt leyfi til að rtota þá röksemd gegn fóstureyðingum. að þeir vilji vernda mannlegt lif Lykkjan er ein vinsælasta getnaðar- vörnin á Islandi og sé sá póll tekinn i hæðina, sem áður er nefndur. er hún lika stórvirkasta morðtólið þvi hún kemur ekki i veg fyrir að egg frjóvgist heldur hindrar að það festist i leginu, og ef það festist þá losar hún það. Það er þvi varla hægt að tala um stigsmun á því að nota lykkjuna og að gangast undir annars konar aðgerð sem fjarlægir frjóvgað egg á frumstigi meðgöngu. Væru þeir. sem nota röksemdina um helgi lífs, sjálfum sér samkvæmir myndu þeir auðvitað byrja á þvi að ráðast gegn lykkjunni. En málið snýst ekki um hvorl eigi að leyjá fóstureyðingar eða ekki heldur hvenær eigi að leyfa þær og hver eigi að ráða þvi. Nú hefur Þorvaldur Garðar Kristjánsson endurflutt frumvarp sitt á Alþingi um að afnema þann rétt, sem konur hafa haft frá 1975, til aðfá fóstur- eyðingu, ef aðstæður þeirra eru svo slæmar að þær treysta sér ekki til þess að ala upp börn sín á mannsæmandi hátt. Nú vill Þorvaldur ekki afnema fóstur- eyðingar af völdum lykkjunnar, vegna vansköpunar eða vanþroska fósturs eða vegna nauðgunar, svo að ekki gengur honum lifhelgin til. Eða ætlar hann að setja sig í dómarasæti og ákveða hvaða lifeigi réttáséroghvaðekki? Fóstureyðing hlýtur alltaf að verða neyðarúrræði. En meðan félagslegar aðstæður eru slíkar sem raun ber vitni um munu fóstureyðingar af félagslegum ástæðum halda áfram að eiga sér stað. hvort sem löggjöfin verður þrengd eða ekki. Að fá slíka aðgerð framkvæmda við fullnægjandi aðstæður verða þá forréttindi hinna efnameiri — eins og alltaf hefur tíðkast þar sem fóstur- eyðingalöggjöfin er þröng. Sumar konur hafa tök á að komast á góð sjúkrahús erlendis, aðrar gangast undir ólöglegar aðgerðir við ýmsar aðstæður og oft með hrottalegum afleiðingum, eins og dæmi eru um. Fóstureyðingar eru leyfðar samkvæmt islenskum lögum (og hafa alltaf verið og munu verða framkvæmdar hvort sem leyfið fæst eða ekki) og þvi vil ég leyfa mér að spyrja: Hverjir hafa meiri forsendur til þess en sú kona sem i hlut á að ákveða hvenær þær aðstæður skapast að fóstureyðing er nauðsynleg? Mikil er ábyrgð þeirra og sjálfstraust sem telja sig geta tekið jafnörlagarika ákvörðun fyrir aðrar manneskjur. Samkvæmt íslenskum lögunt eiga konur að njóta fullra mannréttinda. En i raun gera þær það ekki. Sem dæmi má nefna að stórir hópar kvenna eiga ekki rétt á lifeyri fyrir sig og nýfætt bam sitt meðan þær eru óvinnufærar sökum barnsburðar. En að öllu jöfnu eiga menn rétt á greiðslum úr almennum trygg- ingum séu þeir óvinnufærir. Annað dæmi um að konan er ekki talin vera ábyrgur þjóðfélagsþegn er að ef hún verður ófrísk án þess að hafa ætlað sér það og við aðstæður sem hún treystir sér ekki til að ala upp barn við. þá ætlar ein- hver nefnd úti í bæ að taka það að sér að ákveða hvað henni sé fyrir bestu og hvaða stefnu lif hennar skuli taka næstu 10-20 árin. Það er samfélagið sem ber ábyrgð á því að fóstureyðingar af félagslegum orsökum eru svo margar sem raun ber vitni um. Ættum við þvi ekki að einbeita okkur að þvi að breyta aðstæðum á þann veg að allir nýir þjóðfélagsþegnar á

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.