Vikan - 12.06.1980, Síða 16
Framhaldssaga
Kramer
— — GEGN
Kramer
Sundlaug? Var það ekki hættulegt? Heill
dagur? Yrði Billy ekki einmana? Hann Billy
hans mundi taka áætlunarvagn út úr borginni í
umsjá ókunnugra til ókunnugs staðar. Og að
hausti mundi Billy hefja skólagöngu, alvöru-
skólagöngu.
Og þeir létu hann svo sannarlega hafa
fyrir hlutunum. Hann varð að setja sölu
á svið eins og hann væri þegar farinn
að starfa hjá þeim, þeir létu hann ræða
við þykjustu-viðskiptavin, slepjulegan
mann á sjötugsaldri sem var bæði
auglýsingastjóri og eigandi útgáfunnar
og hafði auga á hverjum fingri.
— Þetta var ágætt hjá þér. Alveg
ágætt. Þú heyrir frá okkur eftir viku.
Það var alveg eins og hann hefði
sungið fyrir þá til að krækja sér i hlut-
verk í söngleik.
— Það er enn ekkert ákveðið með
kaup.
— 1805 ásamt umboðslaunum.
— Þú sagðir 19, kannski 20.
— Sagði ég það? Það hefur verið
einhver misskilningur. Nei, 1805. Við
gætúm fengið mann fyrir mun minna.
— Þaðerekki mikið.
— Við erum heldur ekki tímaritið
Life.
Nokkuð annarleg athugasemd þar
sem Life var hætt að koma út en
iðnaðarblaðið hélt áfram útgáfu. Hann
átti sem sagt möguleika á vinnu sem var
rétt ofan við þau mörk sem gátu kallast
léleg. En hún var sú eina sem hann átti
völ á fyrir utan tilboð Jims O’Connors.
Tæki hann þessa vinnu yrði hann senni-
lega að fá sér ódýrari íbúð. Og þyrfti
hann að flytja mundi kostnaðurinn við
það gleypa í sig leigumismuninn 1.
árið. Hvað tekjur snerti gat hann alveg
eins gerst leigubílstjóri. Því fylgdi þó
nokkur áhætta að aka leigubíl i New
York. Leigubílstjórar urðu oft fyrir árás
i starfi. Honum var skemmt yfir að
hann skyldi draga þennan galla fram til
að undirstrika að hann ætti að halda
áfram í sama starfi. Fáir auglýsingasölu
menn urðu fyrir árás í starfi. En svo fór
hann að velta fyrir sér þeim möguleika
að það gæti gerst. Hvað ef hann yrði nú
rændur einhvers staðar eða jafnvel
drepinn? Hvað yrði þá um Billy? Hann
hafði ekki gert neina erfðaskrá. Hvaðef
hann dæi skyndilega? Hver fengi
drenginn —foreldrar hans? Óhugsandi.
Foreldrar Jóhönnu? Ómögulegt. Ted
Kramer hugsaði um dauða sinn. Svo
ákvað hann að biðja einu manneskjuna i
heiminum, sem hann gat treyst fyrir
drenginn.
— Thelma, ef ég dey —
— Talaðu ekki svona.
— Hlustaðu nú á mig. Ef eitthvað
kemur fyrir mig og ég dey, viltu þá taka
Billy að þér?
— Ég er djúpt snortin —
— Viltu það?
— Er þéralvara?
— Já. Ég veit að það er ekki auðvelt
að svara þessu.
— Ted —
— Viltu hugsa um þetta?
— Égeralvegorðlaus.
— Ef þú heldur að þú treystir þér til
Copyright 1979 by A very Corman.
þess, þá langar mig að geta þess í
erfðaskránni.
— Ted, talaðu ekki svona.
— Mig langar til að láta skjalfesta það
í erfðaskránni.
— Þér er óhætt að gera það, Ted.
— Þakka þér fyrir, Thelma. Þakka þér
afskaplega vel fyrir. Ég veit að honum
mun líða vel hjá þér. Þú ert góð móðir.
Þessar dapurlegu hugsanir hvildu svo
þungt á honum að hann hringdi i
lögfræðing og bað hann að skrifa fyrir
sig erfðaskrá. Þar var Thelma skráð sem
ábyrgðarmaður Billys. Svo heimtaði
hann að læknirinn hans, sem hann
hafði ekki séð í tvö ár, gerði nákvæma
rannsókn á heilsufarinu til að fá
staðfestingu á því að hann væri ekki að
dauða kominn. Læknirinn tilkynnti
honum að hann væri eftir því sem sjáan-
legt var við bestu heilsu — en það yrði
nokkurra daga bið á úrskurði rann-
sóknarstofunnar. Hin góðu tiðindi um
heilsufar hans höfðu svo góð áhrif á
hann að hann eyddi næstu helgi með
Billy á leikvellinum. Þar klifruðu þeir
um i fjörugum apaleik sem Billy var
alltaf jafnhrifinn af. Ted sá son sinn
fyrir sér leiða brúði sína til altaris —
eftir að hafa skroppið með Ted í smáapa-
leik á leikvellinum fyrir athöfnina. Það
er að segja ef hann sjálfur lifði svo lengi.
Hann hafði varla efni á að greiða Ettu
16 Vikan 24. tbl.