Vikan


Vikan - 12.06.1980, Blaðsíða 25

Vikan - 12.06.1980, Blaðsíða 25
Erlent: Bókmenntir i aldanna rás hafa lýst þeirri takmarkalausu hrifningu sem ilmurinn af fagurri konu veldur hjá körlum. Franska ljóðskáldið Baudelaire lýsir fjálglega í Ijóðum sínum hinym sæta ilmiaf kvenhári. Konur verða ekki siður fyrir áhrifum af lyktinm af körlum. Bandaríkjakonan Janet L. Hopson, sem er dáður skáld- sagnahöfundur i heimalandi sínu. byrjar frásögn af eldheitu ástarævintýri á þessunt orðum: „Við stigum inn i lyftu sem var troðfull af fólki og ég starði beint á skyrtuhnappana hans. Við stóðum svo þétt hvort upp við annað í mannþröng- inni að ég fann léttan ilminn af honum — lykt af rakspira. nýstraujaðri skyrtu og dálitlum svita rann saman." Dýrin þefa hvert af öðru þegar þau mætast. ýmislegt þykir benda til þess að steinaldarmenn hafi gert slíkt hið sama. en nútímamaðurinn telur nauðsynlegt að hjálpa náttúrunni duglega. Siðastliðið ár smurðu Islendingar sig með ilmefnum fyrir andvirði nær 1.000 milljóna króna. Eins og getur nærri er þetta liklega heimsmet miðað við höfðatölu. Samanborið við Vestur- Þjóðverja eyðum við árlega helmingi hærri upphæð á mann í alls kyns húðkrem. rakspíra, freyðiböð og ilmvötn. Mönnum finnst kannski lílið varið i að nefið stjórni ástarsamböndum. En maðurinn er nú einu sinni „spendýr" og hjá spendýrum hefur þefskynið mikla þýðingu, bæði hvað snertir fæðuneyslu og kynlíf. Athuganir á alisvínum hafa leitt i ljós að gylta þarf ekki annað en rétt snusa af gelti, og gerir hún sig þá þegar liklega til eðlunar. Svinabændur hafa fært sér þessa vitneskju í nyt. Þeir úða dálítilli moskuslykt á trýni gyltunnar og þá veitir hún ekki minnstu mótstöðu við gervifrjóvgun. Vísindamenn, sem fengist hafa við rannsóknir á ilmefnum, duttu nýlega niður á þá staðreynd að það örlar á Er kynæsandi lykt af þér? moskuslykt i handarkrikum karlmanna. Skyldi sú staðreynd skipta einhverju máli? Dr. Alex Comforth, höfundur bóka um kynlif, gefur sannfærandi svar: „Við erum jú ekki ferfætlingar sem snusa hver af öðrum líkt og hundar. Við göngum upprétt og mætum væntan- legum maka augliti til auglitis. Handar- krikarnir eru því nærtækastir sem lyktargjafar.” Jafnframt þykir sannað að lyktarskyn konunnar sé næmast þegar egglos á sér stað og einmitt um það leyti eru mestar likur á þungun. Tilraunir hafa sýnt að ef kona andar að sér moskus- ilmefnum með vissu millibili getur komist regla á mánaðarlegar tíðir. Fyrir nokkrum mánuðum tókst breskum vísindamönnum að framleiða efnasamband sem likist vissum hormónum og ilntar eins og sandelsvið ur. Konur sem brugðu efninu undir nef- ið sögðu að lyktin væri þægilega karl- mannleg. En þrátt fyrir að efnið virkaði kynæsandi á konur var horfið frá framleiðslu á þvi vegna þess að karlar, sem smurðir voru þessu ilmefni, hrugðust eins og reiðir hanar hver við öðrum. Útlit, framkoma, staða og margt annað hefur þýðingu við hin fyrstu kynni. Samt virðist ýmislegt benda til að við fyrstu fundi karls og konu sé lyktin siður en svo þýðingarlaus. Söguhetjan Pierre í hinni heimsfrægu bók Leo Tolstoj Stríð og friður verður yfir sig ástfanginn af prinsessunni Helenu. þegar hann finnur ilminn og hlýjuna sem stafa af barmi hennar. Aftur á móti misheppnast hjónaband þeirra gjöt§amlega_. Láta menn kannski glepjast af lyktinni? Svarið liggur ekki fyrir en i það minnsta er víst að fleira þarf til en lyktina eina. jás 24. tbl. Vikan 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.