Vikan - 12.06.1980, Qupperneq 43
Nú var þögnin algjör. Jafnvel verurn-
ar, sem stigu upp úr djúpinu, voru
hættar að skrækja og hlæja. Fang'in af
ósýnilegum höndum, stóð hún í þögn
inni miðri og reyndi að æpa og æpa.
Og tókst þaðekki.
Þriðji hluti
KLÓNUR OG
SKRIÐDAUÐINN
FYRSTI KAFLI
Dave Farmer rannsóknarlögreglu-
stjóri er maðurinn sem hefur yfirstjórn á
upplýsingaöflun 01B. Sér til aðstoðar
hefur hann hóp sérfræðinga, bæði
óbreytta borgara og lögreglumenn, og i
gegnum herbergin þeirra fimm hjá New
Scotland Yard er stanslaus straumur
upplýsinga. Aðallega koma þær að
fremur litlu gagni. Upplýsingarnar eru
tölvuunnar og mikill hluti þeirra
geymdur í minninu árum saman, áður
en þær eru loks þurrkaðar út.
Eins og svo margir aðrir reynir
Farmer ómeðvitað að sýna umhverfinu
táknræna mynd af sjálfum sér, nafni
sínu og hugsanlegu ætterni. Hann er
maður stór vexti, klæðist tvídfötum eins
og hann væri í sveit, þó hann sé staddur
í London miðri, og hann fylgist grannt
með jafnóliklegum málefnum og naut-
gripaverði eða verðsveiflum á korn-
metismarkaðinum. Þetta er ósköp mein-
laus tilgerð, sem allir vita um — en ef
einhver nefndi það einhvern tíma við
hann í alvöru, myndi hann trúlega neita
með öllu að eiga slíkt til.
Það var Dave bóndi sem loks gat sett
saman fáein brot af fjalli fínt síaðra efna
og fengið þannig hluta af einhverju, sem
minnti á ákveðið mynstur aðgerða . .
Þegar Wall sendi fyrstu og aðra dul-
rænu-viðvörun sína nefndi hann sérlega
Gray Jordan, og Dave Farmer, sem var
að sinna skyldustörfum hjá Yard þenn-
an sunnudag, fékk einn af sínum venju
legu innblástrum.
Hitt aðaláhugamál Farmers var, og er
enn, fjársvikadeildin, sem OIB vinnur
alltaf náið með og hefur reyndar fengið
þaðan nokkra sinna bestu manna (til
dæmis Farmer sjálfan og Ian Wall).
Mikill hluti þeirra upplýsinga, sem
Farmer fær í hendurnar. fer til mótparts
hans i fjársvikadeildinni, Reg Collins
rannsóknarlögreglustjóra. Og upp á síð-
kastið hafði Collins verið að kanna
nokkur óútskýrð sjálfsmorð, eða það,
sem virtust vera sjálfsmorð, hjá fjár-
málarisunum í City. Mynstrið virtist
alltaf vera það sama. Áberandi maður
birtist á sjónarsviðinu og vann sig upp á
toppinn og dró á eftir sér halarófu hinna
og þessara fyrirtækja. Nýr keisari fædd-
ist svo að segja á einni nóttu, og nýtt
veldi reis, metið á svo eða svo margar
milljónir. Isadore-Cohn, sem fljótlega
fékk lávarðstitil. var formaður British
Imp.-Ex; sir C’harles Blomfield,
formaður AGRO Mining; og sir George
Payn, formaður og framkvæmdastjóri
Payn Paget Investments; þeir voru allir
dánir á síðustu tíu árum, og líkast til
fyrir eigin hendi. Hvert dauðsfall hafði
valdið ókyrrð á verðbréfamarkaðnum og
hlutabréf upp á ótaldar milljónir höfðu
fallið í verði í æðisgenginni sölunni. En í
öllum tilfellum hafði einhver orðið til að
I kaupa, og aftur komst kyrrð á. Þessir
kaupendur hlutu án efa verðskuldaða
umbun fyrir þá trú sína, að hin
aðskiljanlegu fjármálaveldi væru í eðli
sínu traust, þeir auðguðust ágætlega i
öllum tilfellunum, því þeir keyptu á lágu
verði og seldu hlutina síðar, þegar ró var
komin á.
Fjórða sjálfsmorðið var nýskeð. Og
það var það, sem hafði vakið áhuga
Collins á þeim öllum fjórum. Stóri Jim
Forrester, hjá verðbréfafyrirtæki BJF,
hafði á sínum snærum hóp með svo
margs konar áhugamál, að það olli bók-
höldurunum hans miklum áhyggjum, en
hlutafjáreigendum þeirra mörgu fyrir-
tækja, sem um var að ræða, talsverðum
hagnaði. Veisluhöldar, bíla- og flugvéla-
leigur, auglýsingastofur og mjög arðbær
keðja ráðningastofa fyrir skrifstofufólk,
svo aðeins séu nefnd nokkur af áhuga-
málum hans. Hann var rúmir tveir
metrar á hæð, þrekinn og vöðvastæltur
og hafði ávallt virst ímynd styrks og
varanleika. Braskarar börðust um að fá
far með öllum ört stígandi loftbelgjun-
um hans — uns dag nokkurn, að þeir
hófu að síga, hægt en allir samtímis, og
loks bárust þær fréttir að snillingurinn
aðbaki þeim væri látinn.
Á tæpum þrem mánuðum höfðu
hlutabréfin i BJF fallið um meira en
þrjá fjórðu. Sögur voru á kreiki um enn
meira hrun. Siðan komu stóru kaupend-
urnir hljóðlega til skjalanna. Kyrrð
komst á. Verðið hafði aldrei komist
alveg jafnhátt og á meðan stóri Jim var
og hét, en þó var rúmlega ‘helmingur af
glötuðu milljónunum kominn aftur á
markaðinn. Þeir sem höfðu selt i
hræðslukasti, bölvuðu sjálfum sér og
sleiktu sár sín. Þeir sem komu í staðinn,
fóru yfir skjölin og sáu, að i heildina
hafði hagnaður þeirra orðið margar
milljónir punda.
Aftur vár þarna sama mynstrið. En
hvaða þættir voru þarna sameiginlegir?
Hvers vegna höfðu Isadore-Cohn,
Charles Blomfield. George Payn og nú
Jim Forrester, allt saman menn á tindi
traustra fjármálavelda, skyndilega svipt
sig lífi? Hvers vegna varð Charles Blom-
field, svo hann væri tekinn sem dæmi,
að berjast við stjórnarmeðlimi sína,
þegar þeir reyndu opinberlega að svipta
hann völdum? Hví skyldi slíkur maður.
nýkominn á fimmtugsaldur, sæta ásök-
unum um skerta ábyrgðarkennd?
Reg Collins rannsóknarlögreglustjóri
og þrír aðrir meðlimir fjársvikadeildar-
innar voru að reyna að finna svörin við
þessum spumingum, og Dave Farmer
hafði séð mikið af gögnunum, sem þeir
höfðu úr að vinna. Það hafði i rauninni
ekkert bent til dulrænna athafna, það
gerir það sjaldan. Á efnissviðinu verður
einhver atburðarás, og oft er það ekki
nema óljós tilfinning, eða ef tveir að því
er virðist óskyldir hlutif eru tengdir af
tilviljun, sem eitthvað annað kemur i
ljós.
Collins hafði verið að aðgæta kaup-
endurna, sem komu svona heppilega til
bjargar í öllum tilfellunum fjórum.
Mikið af stærri hlutunum hafði farið til
kaupenda á meginlandinu, andlitslausra
samsteypna, sem virtust hafa yfir tals-
verðum sjóðum að ráða og vera reiðu-
búnar að flytja sig um set á svæði, sem
heimamönnum virtust ótrygg. En með
aðstoð Interpol tókst loks að setja nöfn í
samband við þessa hópa. Og þó að sum
nöfnin kæmu fyrir aftur og aftur, merkti
það svo sem ekki neitt. Nema nafn G.K.
Jordan. Og þar var það óvenju næmur
hugur Dave bónda, sem greindi sam-
hengið. G.K. Jordan, sem kom viðsögu í
öllum fjórum málunum, sem fjársvika-
deildin hafði til rannsóknar; og Graham
(Gray) Jordan, sem OIB lýsti eftir.
Þetta var fyrsti veiki hlekkurinn milli
satanistanna á Friars Hill og óútskýrðra
dauðsfalla fjögurra fjármálamanna.
Þegar víst varð, að samband var hugsan-
legt, voru Collins rannsóknarlögreglu-
stjóri og hinir þrír mennirnir frá fjár-
svikadeildinni kallaðir úr helgarfríi til að
sitja með Farmer og öðrum OIB-mönn-
um umhverfis stóra borðið í vinnuher-
bergi Dave. G.K. Jordan? Dulmálssend-
ing til Interpol kom þegar með svarið.
Graham Kenneth Jordan, tvö heimilis-
föng, sem hvorugt kom að notum. Bæði
voru c/o Coutts International, annað í
París, hitt við Berkeley Square.
NÝJUNG:
11 Sláttuvél með
nykmþræði,
III t
VÉLORF
Frœ, allskyns fræ, áburöur, pottar, sláttuvélar,
hjólbörur, úðadælur, vökvunartæki, slöngur, slöngu-
vagnar, slönguhengi, plastdúkur og ótal fleiri vörur til
garðyrkju s.s. lúsalyf, sveppalyf, arfalyf.
Eiturúðunardælur til
úðunar með ýmsum
vökvum.
j{> s. im
k luj
SÖLUFÉLAG
GARÐYRKJU-
MANNA
Reykjanesbraut 6
101 Reykjavík Simi 24366
24. tbl. VlKan 43