Vikan - 06.11.1980, Síða 18
Glíman við alkóhólismann
Eru íslendingar kom
f ram úr öðrum þjóði
Fyrir fáeinum árum var alkóhólismi
feimnismál. Nú er rætt um þennan
sjúkdóm opinskátt og af skilningi.
Gífurlegt átak hefur verið gert í
baráttunni við alkóhólisma, og
árangurinn hefur þegar skilað sér.
Að margra dómi standa íslending-
ar nú framar flestum öðrum
þjóðum I þessum efnum.
„Ég er oröinn hundleiöur á þessu rausi
um alkóhólisma," sagði einn vina minna
við mig, þegar hann frétti, hvaða efni ég
væri með í höndunum. „Þetta er bara
spurning um karakterstyrkleika." bætti
hann við, og um leið sannfærðist ég um. að
ekki veitti nú af að rausa meira um
alkóhólisma.
Fyrir aðeins fáeinum árum var
alkóhólismi feimnismál, enda var ofan
greind afstaða gjörsamlega ríkjandi. Alkó-
hólismi var í flestra augurn einfaldlega
aumingjaskapur viðkomandi. það var litið
niður á ofdrvkkjumenn. og yfirleitt
botnuðu menn ekkert í aðstandendum
|x;irra að púkka upp á svona fólk.
Þeir urðu fyrstir
Sem betur fer er viðhorl'iö nú gjörbreytt.
þótt enn sé þörf umræðu. í II. tbl.
Vikunnar 1977 birtist viðtal við Hilniar
Helgason, Hrafn Pálsson og Tómas Agnar
Tómasson. sem reyndist tímamótaviðtal.
Þessir þrír voru meðal þeirra fyrstu. sem
hlutu meðferð á Freeport sjúkrahúsinu i
Bandarikjunum, og |ieir urðu fyrstir hér á
landi til þess að koma fram undir mynd og
nafni og ræða opinskátt um sjúkdóm sinn.
einkenni hans og meðferð. Svona skamnit
er í rauninni siðan farið var að taka á þessu
vandamáli fyriropnum tjöldum.
Síðan þá er mikið vatn til sjávar runnið.
og margir góðir menn hafa lagst á eitt um
að stórauka fræðslu um þennan sjúkdóm
og veita læim aðstoð. sem honum eru
haldnir. enda hefur komið í Ijós. að þörfin
er gífurleg.
5000 á 5 árum?
Eftir því sem næst verður komist. munu
um 5000 íslendingar hal'a hlotið meðferð
við alkóhólisma á síðastliðnum fimm árurn.
Þar af hafa um 600 manns notið vistar í
Bandaríkjunum. 476. sem nutu til þess
stvrks frá Tryggingastofnun ríkisins, og
rúntlega 100. sem kostuðu sína meðferö
sjálfir. Á deild 10 á Kleppsspítala og Vist
heimilinu á Vífilsstöðum, sem er i mörgum
tilfellum framhald al' deild 10. er um nálægt
3500 innlagningar að ræða siðustu fimm
árin. Vistheimilið á Vifilsstöðum var
opnað í maí 1976. Urn 2500 manns hafa
svo fengið meðferð á sjúkrastöð SÁÁ.
sem fyrst var opnuð í Reykjadal 1. des.
1977, en hefur nú verið á Silungapolli
síðan í maí 1979. Urn 750 manns hafa
siðan notið framhaldsmeðferðar hjá SÁÁ
á Sogni, en starfsemin þar hófst i ágúst
1978.
Þessar tölur ber að laka með miklum
fyrirvara. þótt ég gæti ekki stillt mig um
að nefna þær til að gefa lesendum ein
hverja hugmynd um. Iivað við er að fást.
Reikningsglöggir menn eru vitanlega ekki
Sá er hygginn, sem þekkir adra.
hmn er vitur. sem þekkir sjálfan sig.
Lao-tse.
Sá er sterkur, sem sigrar adra, hinn
er mikilmenni. sem sigrast a sjálfum
sér.
Lao-tse.
Gæfa og ógæfa eiga rætur i
sjálfinu.
Lao-tse.
lengi að fá út töluna 6600 eða jafnvel 7350, en
þær tölur eru ekki raunhæfar, vegna þess
að í mörgum tilvikum er uni sömu
sjúklinga að ræða. Þeir. sem sækja Sogn.
hal'a í langflestum tilfellum verið á Silunga-
polli áður. og vistmenn á Vífilsstöðum
njóta í flestum tilvikum áður meðferðar á
deild 10. Sumir fara líka oftar en einu sinni
i meðferð. Hins vegar eru hér ótaldar stofn
anir. eins og Göngudeild Flókadeildar.
vistheimilin að Víðinesi og Gunnarsholli
o.fl. Talan 5000 er því ágiskun. en varla
fjarri lagi.
Meðalaldurinn hefur lækkað um
áratug
Um árangurinn af allri þessari starfsemi
þarf ekki að deila. þótt vissulega sé hann
ekki 100% fremur en í baráttu við ýmsa
aðra sjúkdóma. En það er gleðilegt, hversu
miklu hefur verið áorkað á siðustu árum.
svo miklu. að margir telja íslendinga nú
standa framar flestum öðrum jyjóðum i
þessum efnum.
Öll fræðslustarfsemi hefur verið stór-
aukin. og má geta þess. að félagar í SÁÁ
hafa nú um tveggja ára skeið farið í skóla
um allt land og rætt við 15-16 þúsund
nentendur á aldrinum 13-17 ára.
18 Vikan 45. tbl.