Vikan - 06.11.1980, Page 63
ekki vera með neinum nema B
sem er hrifinn af D en hún er
hrifln af A. Hvað eigum við
að gera?
Tvær hrifnar á kross.
Ástarflækja ykkar er illleysan-
leg. í tilfinningamáli sem þessu
stoðar víst lítt að benda
mönnum á að beina hrifningu
sinni í rétta staði. Þið eigið á
hættu að eyðileggja vináttu
ykkar tveggja, svo og vináttu
ykkar og strákanna vegna
afbrýðisemi o.þ.l. ef þið fylgið
málinu eitthvað eftir. Það eru
fleiri fiskar í sjónum og
ráðlegast er að líta í kringum sig
eftir öðrum strákum, en eiga
þá A og B að góðum vinum.
Söngnám og
plakat
af Diönu Ross
Hæ Póstur!
Ég hefði gaman af að vita
hvort þú getir sagt mér hvar
hægt er að komast í söngnám.
samt ekki óperunám. Þarf að
hafa einhver réttindi til að
komast í eitthvað svona? Jæja,
ég veit þú segir það sem ég
þarf að vita. Getiði birt plakat
af Diönu Ross?
Bæ, bæ. Takk fyrir.
Ein af Norðurlandi
Söngskólinn i Reykjavík veitir
tilsögn í söng og raddþjálfun.
Úti á landi er helst að leita til
tónlistarskólanna. Yfirleitt
þurfa menn aðeins áhuga og
góða rödd i söngnámið, en
nánari upplýsingar fást á
áðurnefndum stöðum. Óskinni
um plakat af Diönu Ross hefur
verið komið á framfæri.
Tvœr píur úti
á landi
Kæri Póstur!
Við erum tvœr píur úti á
landi. Getur þú sagt okkur
hvert við eigum að snúa okkur
ef við ætlum að verða skipti-
nema úti íAmeríku? Verðum
Wð að læra eitthvað áður? Er
eitthvert aldurstakmark?
Kostar eitthvað að fara út til
Qð verða skiptinemi?
Okkur liggur á svari og
vonandi er Helga södd. Ef ekki
þá má hún éta blómin á
blaðinu. Vikan er mjög góð og
líka svörin í Póstinum.
Tvær píur úti á landi.
AFS skiptinemasamtökin eru
til húsa að Hverfisgötu 39,
Reykjavík, en Skiptinema-
samtök þjóðkirkjunnar, ICYE,
hafa aðsetur í Hallgrímskirkju í
Reykjavík. Skiptinemar á
vegum AFS skulu vera á
aldrinum 16-18 ára, en hjá
ICYE 17-25 ára. Engin sérstök
skilyrði eru sett að öðru leyti.
Nemarnir greiða ákveðið gjald
og eru ferðir, tryggingar og
fleira innifalið í því, en fæði
og uppihald er frítt. Nánari
upplýsingar eru fúslega veittar
á skrifstofum samtakanna.
Strákur með
stóran rass
Kœri Póstur.
Mitt stóra vandamál er minn
stóri rass. Og ég er ekki einn
um þetta vandamál því mikill
hluti fólks, bæði strákar og
stelpur, hefur stöðugar áhyggjur
út af bakhluta sínum. Samt
sem áður er þetta hálfgert
feimnismál og ekkert gert úr
því, t.d. í blöðum.
Gætir þú nú ekki, elsku
Póstur, reynt að birta
upplýsingar um þetta mál? Af
hverju safnast fta svona mikið
á bakhluta fólks? Og hvernig er
hægt að losna við hana? Er
nudd til einhvers gagns
(rassnuddvélar)?
Ég veit að flestir vildu leggja
mikið á sit til að minnka sinn
rass. Þú gerðir því mér og
fleirum mikinn greiða ef þú
gætir útvegað upplýsingar um
þetta mál.
Með fyrirfram þökk.
J.P.
Það mun víst vera rétt hjá þér
að margir eiga við stóran rass
að stríða. Rassfitan er yfirleitt í
ákveðnu hlutfalli við aðra
líkamsfitu. Því er mjög mikii-
vægt fyrir þá sem hafa vel
útilátinn sitjanda að gæta vel
að þyngdinni. Æfingar gætu
líka hjálpað, sömuleiðis ein-
hvers konar nudd, t.d.
rassnuddvélar. Pósturinn
bendir þér því á að einna
vænlegast er að hafa samband
við einhverja heilsurækt* eða
nuddstofu. Þar má fá leiðbein-
ingar og þar eru einnig æfinga-
tímar fyrir fólk og hægt er að fá
afnot af ýmsum hjálpartækjum.
Árótting
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að Jón örn Arnarson hefur
aldrei óskað eftir pennavinum.
Ósk þar að lútandi með nafni
hans, sem birtist i 41. tölublaði,
virðist hafa verið send af ein-
hverjum „vinum” hans og þykir
Vikunni mjög miður að þessi
sjálfsagða þjónusta við lesendur
skuli misnotuð á svo smekklaus-
an hátt.
Jafnframt leggjum við áherslu
á að beiðnir um pennavini séu
handskrifaðar en ekki vélritaðar.
45. tbl. Vlkan 71