Vikan


Vikan - 24.12.1981, Side 25

Vikan - 24.12.1981, Side 25
Kvikmyndir Þau hjónin Jakob Magnússon (Jack Magnet) og Anna Björnsdóttir (Anna Bjorn) hafa að undanförnu gert garðinn frægan úti i hinum stóra heimi. Anna hefur nú nýlokið við að leika í stór- brotinni ævintýramynd er ber nafnið „The Sword and the Sorcerer”. Tónabíó hefur fest kaup á myndinni og áætlar að geta hafið sýningar á henni strax nú í sumar. Anna Björnsdóttir hefur áður leikið í kvikmynd, „American Graffiti II”, eins og menn eflaust muna. Þar lék hún íslenskan skiptinema í Ameríku og hlaut góða dóma fyrir frammistöðu sína, Hlutverk hennar í þessari kvikmynd er talsvert annars eðlis, enda er þetta ævintýramynd eins og þær gerast bestar. Hún segir frá valdabaráttu Cromwells nokkurs, sem leikinn er af Richard Lynch, og hefnd afkomenda eins þjóð- höfðingja er hann tortímir. Sá heitir Talon (leikinn af Lee Horsley) og berst hann við hina hryllilegustu óvætti og skrímsli. áður en honum tekst að full- nægja hefndarskyldunni. Þarna koma einnig við sögu ung og falleg prinsessa, Alana (Kathleen Beller) og bróðir hennar Mikah (Simon MacCorkindale). Og þó Alana veiti Talon verðug sigurverðlaun vill hann ekki eyða ævi sinni í örmum hennar. Hann stígur á bak gæðingi sínum og með riddurunum heldur hann á vit ævintýranna á ný. . ,.v -' *•

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.