Vikan - 24.12.1981, Síða 37
Stjörnuspá
Þýð.: Anna
verð að segja að húsgögnin eru í
sínu rétta umhverfi hér. Þetta
teppi er eins og hannað við
Heppelwhite!
— Já, þú segir satt, sagði
Maríanna, við verðum nú að
fara að skipta um teppi á borð-
stofunni. Við getum ekki verið
þekkt fyrir að. . . nei, en hvað
þessir kertastjakar eru fallegir!
Hvar hafið þið náð í þá?
— Það má næstum segja að
maðurinn minn hafi dottið um
þá á listmunauppboði með
dýrmætum húsbúnaði. En gerið
svo vel, kaffiðbíður!
Við komum okkur fyrir í
rókókó-herberginu og Maríanna
lýsti hrifningu sinni yfir fallega
veggfóðrinu sem var úr silki-
velúr. Og svona leið kvöldið.
Það var orðið nokkuð áliðið
þegar við héldum heim á leið.
— Þetta hefur verið einstak-
lega áhugavert, allt saman, sagði
Maríanna þegar við buðum
góða nótt, nú vonum við
sannarlega að þið lítið inn hjá
okkur eitthvert kvöldið og sjáið
hvernig við höfum komið okkur
fyrir.
— Hjartans þakkir, okkur
langar reglulega að gera alvöru
úr því.
— Svo veifuðum við í kveðju-
skyni og fórum út í bíl.
— Jæja, sagði Maríannna
þegar við ókum niður kyrrláta
götuna í einbýlishúsahverfinu,
hvað fannst þér svo?
— Ja, sagði ég og yppti
öxlum, þetta var nú ekki alveg
það sem ég átti von á. Ekki eftir
allt sem þau voru búin að taka
upp í sig. Þetta teppi í for-
stofunni til dæmis. . . það var
fyrir neðan allar hellur að
hengja það þarna! Ef það er
þetta sem finnski forsetinn er
veikur fyrir þá vorkenni ég
honum sannarlega smekkleysið!
— Og eikarkistan, hvað sagði
hann aftur að hún væri gömul?
— Frá árinu 1762! Þá er
það frekar frá 1962! Hvaða asni
sem var gat fundið á lyktinni að
hún var rétt nýkomin úr vinnu-
stofu trésmiðsins!
— Trúðir þú því virkilega að
teppið í húsbóndaherberginu
væri ekta Bidjar?
— Bidjar! Ha, þetta var
bómull og ekkert annað! Með
sex mánaða jöfnum af-
borgunum, ef mér skjátlast ekki.
— Og Serves-lampinn var
rifinn, sagði Maríanna með
vanþóknun.
Mér varð hugsað til borð-
stofunnar.
— Ekkert skil ég í því hvers
vegna fólk er að reyna að vera
með Heppelwhite-borðstofu
þegar það hefur ekkert rými
fyrir hana, sagði ég.
— Og svo þetta hræðilega
gólfteppi! sagði Maríanna.
— Og kertastjakarnir, sagði
ég yfir mig hneykslaður, hjálpi
mér allir! Hvorki vildi ég eiga þá
né fá hvað sem í boði væri!
Það má eiginlega segja að
ýmislegt geti verið í boði. Til
dæmis ef Nabelkrants les þetta.
En það gerir hann áreiðanlega
ekki. Alla vega ekki ef maður
getur ráðið lestrarvenjur hans af
Lögbirtingarblaðinu, Hver er
maðurinn? og Árbók Þjóðvina-
félagsins sem hann hafði raðað
svona snyrtilega á skrifborðið sitt.
VIKAN er ekki sérrit.
Enginn efnisflokkur er
henni óviðkomandi.
Auglýsing í VIKUNNI
skilar sér.
Auglýsingasími: 85320
llnilurinn Zl.mnrs 20.aiiríl
Þetta verður tíðindalítil
vika en mjög ánægjuleg
ef þú gerir ekki of
miklar kröfur. Njóttu
hvíldarinnar sem best
til þess að þú verðir
betur undir hversdags-
amstrið búin(n) að
loknum hátíðunum.
kr. hhinii 22. júni 23. júli
Láttu ekki fjölskyldu-
deilur og úlfúð skemma
jólin fyrir þér. öllu slíku
má fresta fram yfir
hátíðirnar og útkljá
síðan í góðu tómi.
Reyndu að skemmta þér
og fjölskyldunni sem
best og plasgja akurinn
fyrir framtíðina.
Þú hefur nýverið orðiö
fyrir vonbrigðum og átt
erfitt með að líta fram-
tíðina réttum augum.
Jólin ættu að geta orðið
góður timi til að hugsa
málin á jákvæðan hátt
og opna augu þín fyrir
bjartari hliðum
tilverunnar.
Góður vinur þinn er
jafnan boðin og búinn
að aðstoða þig ef þú
þarft á því að halda. Þú
hefur ekki leitað jafnoft
til hans og skyldi. Vertu
óhrædd(ur) við að trúa
vininum fyrir vanda-
málum þínum og hlusta
á ráðleggingar hans.
Viulirt 21. ipriI 2l.mai T\ihurarnir 22.mai 2l.júni
Þú hefur lengi haft Gleymdu ekki gömlum
áhyggjur en þær mega ættingjum um jólin.
ekki eyðileggja fyrir þér Farðu og heimsæktu
jólagleðina. Þetta er sem flesta og þú munt
smámál þegar til lengri hafa mjög gott af því
tíma er litið og reyndu bseði nú og síðar meir.
að gleyma þvi um stund Sönn jólagleði felst i því
og njóta lífsins. að reyna að gleðja aðra.
I.jóniö 24. júli 24. áiiú*l
Þú hefur fengiö snjalla
hugmynd og skalt ekki
láta neinn vita um fyrir-
ætlanir þínar fyrst um
sinn því þá er hætt viö
að aðrir reyni að
notfæra sér hugmyndina
og allt fari í vaskinn
fyrir þér.
Umstangið og jólaskapið
hjá öðrum fer eitthvað i
taugarnar á þér og þér
finnst fólk barnalegt og
með óþarfa tilfinninga-
semi. Líttu í eigin barm.
Hefur þú ekki líka
gaman af öllu saman
innst inni?
Sporðilrvkinn 24.okl. 23.uó\.
Margt af því sem þú
ætlaðir að ljúka fyrir
jólin verður að bíða
betri tíma og það er til-
gangslaust að sýta slika
smámuni. Jólin verða
óvenjuviðburðarík, þér
og þínum til mikillar
gleði.
\alnshcrinn 2l.jan. ló.fchr.
Haltu þig í aðalatriðum
við skoðanir þínar í
erfiðu fjölskyldumáli en
þér er óhætt að hlusta
betur á aðra og reyna
að setja þig í þeirra
spor. Við það víkkar
sjóndeildarhringur þinn
og líkur aukast á að
finna megi málalok sem
allir una við.
Hogmadurinn 24.nó\. 2Ldc*
Ýmsar freistingar urðu
á vegi þínum fyrir jólin
og þér tókst að falla
fyrir hæfilega mörgum
þannig að skapiö er með
léttasta móti og
samviskan alveg hrein.
Fyrir vikið verða
hátiðarnar einstaklega
gleðilegar.
Fiskarnir20.fchr. 20.mars
Láttu umtal annarra um
það sem þeim kemur
ekki við sem vind um
eyru þjóta. Þú verður
sjálf(ur) að vita hvað
þér er fyrir bestu og
aðrir mega ekki hafa vit
fyrir þér í málum sem
skipta sköpum.
52. tbl. Vikan 37