Vikan - 24.12.1981, Page 46
heyrði hann skaka með tönginni í arin-
inn. En þegar hún kom inn með dúkinn
og diskana stóð hann úti við gluggann,
hreyfingarlaus. t annarri hendi hélt
hann á tómri viðarkörfunni og starði út
um gluggann.
— Hvað er að, Knut? Á hvað ertu að
horfa?
Hann svaraði ekki en hélt áfram að
stara. Síðan sneri hann sér að henni.
Andlit hans var fölt.
— Hanna...?
— Já, hvað?
— Hanna, veit Arne að við erum hér?
— Hvort Arne viti að við séum hér?
Auðvitað veit hann það ekki. Af hverju í
ósköpunum spyrð þú að þvi?
Hún var skjálfrödduð.
— Ég sá mann standa úti við
mýrlendið undir hæðinni þarna, sagði
hann hægt. — Frekar langt í burtu. En
samt sem áður. Það var eitthvað við
manninn sem minnti mig á Arne.
Kaldur hrollur fór um hana.
— Arne? En þú veist að Arne er i
Þýskalandi. Og það er ekkert fólk á
þessari eyju. Þú sérð ofsjónir, Knut.
— En Hanna, ég get svarið aö ég sá
mann þarna úti.
— Þá er það sjómaður sem hefur
komið á land til að hita sér kaffi.
Hann kinkaði kolli. En hún sá
eitthvaö flöktandi i augnaráði hans.
Hún kyssti hann snöggt á kinnina og
strauk hendinni í gegnum þéttan hár-
lubbann.
— Heyrðu. Við skulum ekki minnast
á Ame meira.
— Nei. Þetta var heimskulegt af mér.
Ef til vill var þetta líka bara tré. Þú veist
að i ljósaskiptunum vill imyndunaraflið
hlaupa með mann f gönur.
Hann gekk að útidyrunum.
— Jæja. Ég ætla að labba út í
skóginn. Ef til vill finn ég nokkrar
greinar til að setja í arininn.
— Þaö er ágætt.
Hann hvarf út um dyrnar og hún hélt
áfram að útbúa matinn. Hún lagði
niðurskorna skinkuna og gæsalifrina á
tinfat, með grænmetinu sem hún átti.
Siðan náði hún i vínflösku, tók til i
eldhúsinu, fleygði öllum tómu niður-
suðudósunum og slétti úr rúmfötunum.
Þá leit hún á klukkuna og hrökk í kút.
Knut hafði verið i burtu í næstum því
klukkutíma.
Það var nasstum því orðið aldimmt og
óveðursský var á himninum. Kaldur
Þarna gæti hann verið, hugsaði hún. Ef
til vill hefur hann meitt sig þegar hann
var að höggva viðinn. Ef til vill lá hann í
blóði sínu, meðvitundarlaus, þarna inni.
Hún nálgaðist skúrinn. Vindurinn
hvein i sprungnum trjáboröunum í grá-
hvítum, ómáluðum veggjunum. Dyrnar
stóðu í hálfa gátt. Hurðin hreyfðist hægt
á ryðguðum lömunum. Hún opnaði upp
á gátt og starði inn í myrkrið. Svo æpti
hún skerandi. Einhver vera hékk niður
úr einum þverbitanum og sveiflaðist
fram og til baka, hægt og viljalaust.
DREGUR AÐ
LEIKSLOKUM
vindur blés inn um opinn eldhúsglugg-
ann. Hanna lokaði honum. Síðan fór
hún í þykka ullarpeysu og gekk út.
Sjórinn var mjög úfinn. Bylgjurnar
skullu með miklum hávaða á klettunum.
Fugl stritaðist á móti vindinum, yfir
höfði hennar, eins og svartur skuggi.
Hún starði út yfir sjóinn og hrollur fór
um hana. Hún myndi aldrei venjast
bátum og hafinu.
Hún gekk upp á lyngi vaxna hæð og
skimaði í kringum sig. Þar var engan að
sjá, hvorki úti í mýrinni né í gisnum
furuskóginum. Myrkrið lagðist nú
endanlega yfir eyjuna.
— Knut! Hvar ertu? Knut!
Hún hrópaði oft og mörgum sinnum.
En ekkert svar barst til baka. Hún fann
hvernig fæturnir skulfu undir henni. Ef
til vill hafði hann meitt sig. Ef til vill lá
hann hjálparlaus einhvers staðar inni í
skóginum.
Hún leit i átt að verkfæraskúrnum.
— Knut, hvislaði hún og fann að
fæturnir voru að láta undan.
Hún þvingaði sig til að líta upp. Svo
hrökk hún við og glennti upp augun.
Það var eitthvaö undarlegt við þann'
hengda. Hún færði sig hægt nær og
reyndi að sjá andlitið.
Það var ekkert andlit, aðeins hvitur
flötur. Þetta var ekki maður heldur
tuskudúkka klædd peysu og buxum.
Arne hafði eitt sinn búið hana til. Hann
hafði notað hana sem fuglahræðu við
litla matjurtagarðinn hjá sumarbústaðn-
Miði hafði verið festur á brjóst dúkk-
unnar. Hún reif hann niður og las:
Hanna!
Knut er dauður. Nú er röðin komin
aðþér' Kveðja, Arne.
Hún vildi öskra en gat það ekki. Hún
stóð bara þarna hreyfingarlaus en svo
var sem hún sæi einhverja hreyfingu
inni í myrkrinu, á bak við dúkkuna sem
AMe-vAX*/
sveiflaðist. Og hún heyrði þurran, lág-
væran hlátur. Eða var það aðeins
vindurinn?
Hún steig eitt skref aftur á bak, sneri
sér við og tók í ískrandi hurðina. Enginn
var fyrir utan. Enginn sem hún sá. Hún
skjögraði í blindni niður að bryggjunni
þar sem báturinn hans Knuts lá og
togaði í landfestarnar. Nei. Hún gat ekki
barist við hafið ein sins liðs. Freyðandi
hafið hvolfdist í átt til hennar eins og
svöng risaófreskja.
Hún hljóp í átt að sumarbústaðnum,
hrasaöi við dyrnar og skellti þeim aftur.
Læsti þeim. Þá mundi hún allt i einu
eftir byssunni. Arne átti byssu sem var
geymd í sumarbústaðnum. Hann hafði
skotið máva með henni. Og kennt henni
að nota hana.
Byssan var í læstri kommóðu i einu
svefnherberginu. Kaldur málmurinn
róaði hana. Hún fann til kaldranalegrar
öryggistilfinningar þegar hún greip
.þéttingsfast um svalt byssuskeftið. Síðan
athugaði hún hana og komst að raun um
að hún var hlaðin.
Hún kveikti á kerti. Síðan kom hún sér
fyrir á stól í einu horni stofunnar. Hún
heyrði ekkert annað en hljóðið í vind-
inum fyrir utan, gnauðandi vindinum og
í trjágrein sem slóst við rúðuna. Eða, var
það...?
Jú. Hún heyrði háttbundin, þung
hljóð þarna úti. Fótatak. Hún náði
tæplega andanum. Fótatak sem kom
nær og nær. Sem betur fer — skaut upp i
huga hennar — eru dyrnar læstar. En á
sama andartaki heyrði hún málmkennt
þrusk og hún mundi að Ame átti lykil að
sumarbústaönum.
Hún heyrði brakandi hljóðiö þegar
ytri dyrnar vom opnaðar. Hún lyfti
hendinni sem hélt á byssunni í átt að
dyrunum og vissi að brátt gæti hún ekki
meir. Þá var hurðinni hrundið upp. Og
Arne stóð f gættinni.
Grannleitt andlitið var náfölt og
augun uppglennt. Vatnið lak af honum
og röddin var lág og titrandi:
— Jæja, Hanna. Það er nokkuð sem
við þurfum að rasða um, við tvö?
Hann steig eitt skref í átt til hennar.
En um leið stóð hún á fætur, lyfti byss-
unni upp og æpti um leið og hún skaut:
— Þú . . . þú myrtir Knut! Þú . . .
myrtir hann!
Það heyrðist smellur þegar hún
hleypti af. Þá öskur og annað öskur. Og
síðan hné hún niður.
Hægt opnaði hún augun. Það ólgaði
og bullaði inni í henni, undir henni. Hún
lá í þröngu, ókunnugu herbergi og ein-
hvers staðar heyrðist i mótor sem drundi
og drundi. Síðan var allt í einu komið
andlit fyrir framan hana. Kunnuglegt
andlit. John Holm, hugsaði hún. Sýslu-
maðurinn. En ...
Hún mundi nokkuð af því sem gerst
hafði en vissi ekki hvort það var
draumur eða veruleiki.
46 Vikan 52. tbl.