Vikan - 24.12.1981, Síða 47
Sakamálasaga
— Jæja? sagöi Holm. — Líður þér
betur núna?
— En hvaö... hvar...?
— Þú ert um borð í lögreglubát. Og
Knut Movold hefur játað allt.
— Knut? En hann er... dáinn.
— Það er ég nú hræddur um ekki.
— En...
Sýslumaðurinn settist á stól. Hann
hafði þekkt Hönnu Vik frá því að hún
var litil og hann var næstum því eins og
frændi hennar.
— Sannleikurinn er sá, Hanna, sagði
hann, — að Knut Movold og maðurinn
þinn áttu fyrirtækið saman. Já, það veist
þú líka. En Movold vildi eiga það einn.
Þess vegna vildi hann losna við Arne,
einfaldlega drepa hann. Og þú áttir að
framkvæma verknaðinn.
— Átti ég...?
— Einmitt. Þú varst með í áætlun
hans alveg frá byrjun. Þess vegna
byrjaði hann að gefa þér undir fótinn.
Þú verður að fyrirgefa að ég skuli segja
þetta svona hreint út en svona var þaö.
Hann hvarf viljandi þegar hann sagðist
ætla að fara út að sækja eldivið. Fyrst
hengdi hann tuskudúkkuna upp í skúrn-
um. Hugmyndina um að nota hana
hafði hann fengið þegar hann fór með
Arne hingað í fyrra. Það sem stóð á
miðanum hafði hann sjálfur skrifað á
eina af ritvélum fyrirtækisins. Það hefði
ekki verið hægt að afsanna að Arne
hefði skrifað þær setningar. Hann
treysti á að þú myndir ná í byssuna til að
verja þig með henni. Arne hafði oft sagt
honum frá byssunni og hvað hann væri
laginn að skjóta mávana hér við
bústaðinn.
— En Arne. Er hann ...?
— Nei. Hann fékk skot í öxlina og er
ekki í neinni hættu. Honum tókst að
komast niður að bátnum. Þar skaut
hann upp neyðarblysi. Þá skildum við
hér á meginlandinu að eitthvað hafði
farið úrskeiðis.
Hanna dró andann léttar. Svo
hrukkaði hún enniö. Það var svo margt
sem hún skildi ekki.
— En Arne ætlaði að fara til Þýska-
lands, sagði hún.
Holm hafði dregiö fram pípu sína og
stakk henni upp í sig.
— Knut Movold er útsmoginn þrjót-
ur, Hanna. Svo útsmoginn að hann
skrifaði nafnlaust bréf til Arne þar sem
stóð að þú og hann — ég meina Knut
Movold — ætluðuð að eyða helginni
saman í sumarbústaðnum á Vardöya.
Arne ákvað að komast að sannleik-
anum. Þess vegna sagðist hann þurfa að
fara til Þýskalands. En þess í stað faldi
hann sig í borginni og svo fór hann út í
Vardöya á sínum bát í kvöld. Hann sá
bátinn hans Knut Movold og fór upp í
sumarbústaðinn til að tala út um hlutina
við þig. Þaö er jú skiljanlegt þrátt fyrir
allt. En þarna inni sast þú og beiðst, hár-
viss um að hann væri geðveikur
morðingi. Knut Movold hafði séð um að
þú héldir það. Og Arne skildi hvað um
var að ræða, eftir að þú hrópaðir að
honum að hann hefði myrt Knut
Movold. Nú getur þú þakkaö örlög-
unum fyrir að þú hæföir ekki betur en
þetta.
— En hvar var Knut... Movold?
— Hann faldi sig inni í skóginum.
Hann hafði slegið sjálfan sig mörgum
sinnum í höfuðið og efri hluta líkamans
með skaftinu á exinni og fengið ljót sár.
Ætlun hans var að segja að Arne hefði
ráðist á hann og slegið hann, þar til
hann — Arne meina ég — héldi að hann
væri dáinn. Áætlunin var úthugsuð í
smáatriðum. En þegar hún misheppn-
aðist, þar sem þú myrtir ekki Arne, flýði
Knut Movold. En undirmaður minn
handsamaði hann fyrir nokkrum
klukkustundum. Hann sleppur ekki.
Hugsanirnar flögruðu í gegnum huga
Hönnu. Það sem haföi gerst var svo
óraunverulegt, of tilgangslaust og
grimmdarlegt. Hún gat ekki komið
orðum að því hvernig henni leið.
— Og Arne, sagði hún hljómlausum
rómi. — Er hann hér um borð í þessum
báti!
— Nei. Læknirinn fór með hann á
sínum bát. Reyndar bað hann mig fyrir
kveðju til þín, þakklætiskveöju. Fyrir
það að þú skulir vera svona léleg skytta.
kí
RÆKTAÐU
LÍKAMA ÞINN
Líkamsræktin hf.,
Laugavegi 59, kjallara Kjörgarðs,
sími 16400.
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ — BYRJUM NÝTT LÍF
ÖLLTÆK.IOG AÐSTAÐA ER ÁBORÐ VIÐÞAÐ BESTA í HEIMINUM
Opnunartímar í desemberfyrir bæði kynin: Mán. —föstud. Laugard. 7.00 — 22.00 10.00—17.00 Yfir hátíðirnar Þorláksmessu Aðfangadag 7.00—18.00 8.00 — 12.00 Annan dagjóla Gamlársdag 11.00—15.00 8.00—14.00 Mánaðargjald kr. 380. Innifalið: Vatnsnudd, sólarbekkir, gufu- böð, matseðlar og að sjálfsögðu œf- ingar undir tryggri leiðsögn.
52. tbl. Vlkan 47