Vikan - 24.12.1981, Qupperneq 63
Pósturinn
Týndi gíróseðli
Kæra Vika
Nýlega gerðist ég áskrifandi að
Vikunni og eftir nokkurn tíma
fékk ég sendan gíróseðil. En ég
var svo klaufsk að ég týndi
honum áður en ég kom í verk
að borga.
Ég skrifaði Vikunni en ég er
hrœdd um að bréfið hafi ekki
komist til skila. Nú bið ég um
að fá sendan nýjan seðil ef
hægt er. Vikan er mjög gott
blað og ég vildi alls ekki missa
áskriftina fyrir þennan klaufa-
skap.
Með fyrirfram þökk,
E. V.M.
Hafðu minnstar áhyggjur — þér
verður snarlega sendur annar
seðill því ekki máttu missa
áskriftina að þessu ágæta blaði.
Blöð í öðrum
löndum
Kæri Póstur
Okkur langar að biðja þig
um að gera okkur æðislegan
greiða. Viltu gefa okkur nöfn
og heimilisföng erlendra blaða,
dagblaða, vikublaða eða
einhverra annarra til dœmis í
Ameríku, Englandi, Ástralíu,
Frakklandi, Ítalíu, Nýja
Sjálandi og öðrum löndum.
Okkur dauðlangar að kynna
okkur erlend blöð þar sem við
höfum áhuga á erlendum tungu-
málum. Við værum æðislega
þakklátar ef þú gæfirokkur gott
svar._Bless og takk fyrir gott svar.
Tvær áhugasamar
Ef leið ykkar liggur til Reykja-
víkur skuluð þið labba ykkur
inn í eina af stærri bóka-
verslunum miðbæjarins. Þar
fæst aragrúi dagblaða og tíma-
rita frá ýmsum löndum, í það
minnsta frá Norðurlöndunum,
Englandi, Bandaríkjunum,
Þýskalandi og Frakklandi og
yrði of langt mál að telja þau
upp.
Úrvalið frá öðrum löndum er
hins vegar minna. Pósturinn fór
á kreik til að verða við beiðninni
og gróf upp skrá yfir tímarit
heimsins, valdi nokkur heimilis-
föng úr, af handahófi. Ekki er
Pósturinn alveg viss hvers kyns
blöð er um að ræða en ályktar
að þarna séu á ferðinni einhvers
konar fjölskyldublöð.
Australian Family Circle
Golden Fleece Blgd,
100 Pacific Highway
Nort Sidney, N.S.W. 2600
Australia
Przyjaciolka Wydavinctwa,
Arystyczno- Graficzne,
„Prasa-Ksiazka-Rwdr”,
Ul. Smolna 10.
Warshaw,
Poland
Vancouver,
1008 Hornby St.,
Vancouver,
B.C.V6 7 1 V7;
Canada
Manano,
Ambers 38,
Mexico 6,
D.F. Mexico
Weekly Post
3-1. 2Chome,
Hitotsubashi,
Chiyoda-ku,
Tokyo
Látum þetta duga í bili.
(Vonandi eru þetta ekki allt
búnaðartímarit eða sérrit um
sjávarútvegsmál.)
PENNAVINIR
Kolbrún Benediktsdóttir, Skarðsbraut
17, 300 Akranesi, vill skrifast á við
stráka og stelpur á aldrinum 13-14 ára,
er sjálf 14. Áhugamál: strákar, dans,
böll, bíóogfl.
ffJHiV
vertir auglýsendum
gööa þjönustu
á skynsamlegu veröi
og hver auglýsing
nœr til allra lesenda
VIKUNNAR.
Auglýsingasími:
85320
Kristín Jónsdóttir, Kirkjubraut 18, 780
Höfn Hornafiröi, óskar eftir að skrifast á
við stelpur og stráka á aldrinum 11-13
ára, er sjálf 12 ára. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
52 tbl. Vikan 63