Vikan


Vikan - 29.09.1983, Síða 31

Vikan - 29.09.1983, Síða 31
I \farúð! SKRIFSTOFU- OG KYRRSETU- BÓLGAN - ALGER FARALDUR! TEXTk'sVEINBJÖRN GUÐJOHINISEN það er lítið um varahluti í hann! Vikan vill leggja sitt af mörkum til þess- arar uppbygging- ar. Þess vegna höfum við fengið Sveinbjörn Guð- johnsen, áhuga- mann um lík- ams- og vaxtar- rækt, til að gefa okkur og lesend- um Vikunnar góð ráð. Við byrjum með því að kynna nokkr- ar léttar æfingar sem hver og einn getur gert á vinnustað eða heima hjá sér og geta örugglega ekki orðið að öðru en gagni. Síðar munum við halda áfram og færa út kvíarnar. Vöðvabólga einkennist af verkjum og stirðleika — þreytu — í vöðvum og vöðvafestingum. Kyrrsetufólk kannast við þetta og þá gjarnan sem háls- rig, höfuðverk, þreytu og verki yfir herðum, sem leiða niður i bak og handleggi. Svæðin verða þrútin og aum viðkomu. Þeir sem stunda kyrrsetuvinnu þurfa i fæstum tilvikum að inna líkamlegt erfiði af hendi. Þess i stað getur andlegt álag orðið mikið. Þegar starfið krefst mikillar hugsunar og einbeitingar er nauðsynlegt að ekkert trufli eða valdi óþægindum. Vöðvabólga getur orðið svo slæm að viðkomandi leggist í rúmið. Oftast skánar hún þá og maðurinn hverfur aftur til vinnu en sagan endurtekur sig og þetta verður verra og þrálátara ef ekki er gert eitthvað raunhæft i málinu. En hvað er hægt að gera til varnar og bóta? — Til eru nokkur ráð sem sjálfsagt er að fylgja: 1. Leitatillæknis. 2. Leita til líkamsræktarstöðva og biðja um viðeigandi æfingar. 3. Temja sér réttar vinnustellingar. 4. Stunda æfingar i vinnunni og heima. 5. Til að árangur vinnunnar náist þurfa hvíld og matar- æði að haldast í hendur. — Hér á eftir eru sýndar nokkrar æfingar og teygjur sem gætu hjálpað: Búast má við að sumarið hafi brugðist sumum, að minnsta kosti á rigningarsvæð- unum, þannig að þeir hafa ekki náð að byggja upp líkamann sem skyldi fyrir komandi vetrar- átök. Hins vegar hefur mönnum orðið æ Ijósara mikilvægi þess að halda líkam- anum í lagi og veita honum þá umönnun sem hann þarf til að duga sem lengst og best. Líkams- rækt af sérhverju tagi hefur orðið sífellt vinsælli eftir því sem mönnum verður Ijósara að þeir hafa ekki nema einn líkama og

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.