Vikan - 29.09.1983, Blaðsíða 31
I
\farúð!
SKRIFSTOFU- OG KYRRSETU-
BÓLGAN - ALGER FARALDUR! TEXTk'sVEINBJÖRN GUÐJOHINISEN
það er lítið um
varahluti í hann!
Vikan vill
leggja sitt af
mörkum til þess-
arar uppbygging-
ar. Þess vegna
höfum við fengið
Sveinbjörn Guð-
johnsen, áhuga-
mann um lík-
ams- og vaxtar-
rækt, til að gefa
okkur og lesend-
um Vikunnar
góð ráð. Við
byrjum með því
að kynna nokkr-
ar léttar æfingar
sem hver og einn
getur gert á
vinnustað eða
heima hjá sér og
geta örugglega
ekki orðið að
öðru en gagni.
Síðar munum við
halda áfram og
færa út kvíarnar.
Vöðvabólga einkennist af verkjum og stirðleika —
þreytu — í vöðvum og vöðvafestingum.
Kyrrsetufólk kannast við þetta og þá gjarnan sem háls-
rig, höfuðverk, þreytu og verki yfir herðum, sem leiða
niður i bak og handleggi. Svæðin verða þrútin og aum
viðkomu.
Þeir sem stunda kyrrsetuvinnu þurfa i fæstum tilvikum
að inna líkamlegt erfiði af hendi. Þess i stað getur andlegt
álag orðið mikið. Þegar starfið krefst mikillar hugsunar
og einbeitingar er nauðsynlegt að ekkert trufli eða valdi
óþægindum.
Vöðvabólga getur orðið svo slæm að viðkomandi
leggist í rúmið. Oftast skánar hún þá og maðurinn hverfur
aftur til vinnu en sagan endurtekur sig og þetta verður
verra og þrálátara ef ekki er gert eitthvað raunhæft i
málinu.
En hvað er hægt að gera til varnar og bóta? — Til eru
nokkur ráð sem sjálfsagt er að fylgja:
1. Leitatillæknis.
2. Leita til líkamsræktarstöðva og biðja um viðeigandi
æfingar.
3. Temja sér réttar vinnustellingar.
4. Stunda æfingar i vinnunni og heima.
5. Til að árangur vinnunnar náist þurfa hvíld og matar-
æði að haldast í hendur.
— Hér á eftir eru sýndar nokkrar æfingar og teygjur sem
gætu hjálpað:
Búast má við að
sumarið hafi
brugðist sumum,
að minnsta kosti
á rigningarsvæð-
unum, þannig að
þeir hafa ekki
náð að byggja
upp líkamann
sem skyldi fyrir
komandi vetrar-
átök. Hins vegar
hefur mönnum
orðið æ Ijósara
mikilvægi þess
að halda líkam-
anum í lagi og
veita honum þá
umönnun sem
hann þarf til að
duga sem lengst
og best. Líkams-
rækt af sérhverju
tagi hefur orðið
sífellt vinsælli
eftir því sem
mönnum verður
Ijósara að þeir
hafa ekki nema
einn líkama og