Vikan - 29.09.1983, Side 39
Þýðandi: Anna
ÖPERA IFIMM ÞÁTTUM
leikarinn vafði upp síðasta Lög-
birtingablaði og stakk inn í
flautuna. Síðan lét hann flaut-
una vega salt á höfðum strengja-
sveitarinnar, alla leið að þeim
sem lék á enskt horn.
Fagottleikarinn sat og var að
glíma við krossgátu rétt fyrir
framan mig. Hann var í stand-
andi vandræðum með gríska
gyðju, átta stafa nafn sem byrj-
aði á P og með E sem fjórða staf.
Það gekk ekki að skrifa
Patroklos. Heldurekki Partheon.
Fagottleikarinn reif snifsi af
nótnaþlaði og krotaði á það:
,,Grísk gyðja, átta stafa, fyrsti
stafur P, fjórði stafur E,” og lét
seðilinn ganga. Fyrsta fiðla gat
hjálpað honum. Hún skrifaði
lausnina á bakhliðina á bréfsnifs-
inu og lét það ganga til baka til
fagottleikarans sem gat fyllt reit-
ina sína með orðinu Poseidon.
Það fauk í mig. Ég leit örsnöggt á
Maríönnu og þegar ég sá að hún
var niðursokkin í það sem fram
fór á sviðinu reif ég horn af pró-
gramminu mínu og krotaði á
það: ,,Hvað er að þér, maður?
Poseidon er ekki gyðja heldur
bróðir Zeusar,” og laumaði
miðanum svo niður til fagott-
leikarans. — Þú varst að rétta
hljóðfæraleikaranum eitthvað,
hvíslaði Maríanna. — Hvað var
það eiginlega?
— Leiðrétting! Hann var
kominn átta töktum aftur úr,
hvíslaði ég og leit upp á sviðið, á
Fást sem jarmaði: ,,Ó, hefði ég
til hins háa anda sótt þá ham-
ingju, yfir þröskuldinn að
stíga!”
Ég fann nú ekki fyrir neinum
erfiðleikum með að stíga yfir
þröskuldinn og úr viðjum óper-
unnar. Skyndilega datt mér í
hug lausnin á vandamálinu í
hljómsveitargryfjunni. Ég
mundi eftir átta stafa grískri
gyðju og krotaði á blað:-
Penelópa. Ég bjó til kúlu úr
bréfinu og kastaði til fagott-
leikarans. Skömmu seinna stakk
hann að mér miða. ,,Takk fyrir
hjálpina,” stóð á honum, ,,en
geturðu sagt mér fjögurra stafa
sögupersónu sem endar á T og er
með Á sem annan staf?
Eftir hlé braut ég heilann um
þessa fjögurra stafa sögupersónu.
Ég skrifaði spurninguna á nokkra
seðla og lét ganga aftur fyrir mig
í von um hjálp en fékk engin
svör til baka. Svo gróf ég höfuðið
í höndum mér til að reyna að
hugsa skýrar í myrkrinu, en þá
rak Maríanna mér rækilegt oln-
bogaskot.
— Þú skalt ekki voga þér að
sitja þarna og sofa, hvíslaði hún
áköf, hugsaðu þér bara hvað við
keyptum miðana dýru verði!
Sögupersóna, fjögurra stafa!
Sem endar á T og er með Á sem
annan staf! Ég leit í örvæntingu
minni á fyrstu fiðlu sem hafði
gert heiðarlega tilraun til að
hjálpa til fyrr um kvöldið, með
Póseidon. En fyrsta fiðla yppti
bara öxlum og var hálfvonleysis-
leg á svip svo mér skildist að hún
stæði alveg á gati með þessa
sögupersónu.
Það var ekki fyrr en við vorum
komin heim og ég leit af tilviljun
á prógrammið okkar, sem Marí-
anna hafði lagt frá sér í forstof-
unni, að upp fyrir mér rann ljós.
— Fást! sagði ég uppveðr-
aður, annar stafurinn er Á og
það endaráT.
— Hvað ertu að segja?
— Ekkert.
Kvöldið eftir vildi ég endilega
fara aftur í óperuna, Maríönnu
til mikillar undrunar. Því miður
var uppselt á fyrsta bekk niðri svo
að við fengum miða í neðri stúku
til hægri í staðinn. Ég gerði ekki
annað alla sýninguna en að út-
búa litla miða sem á stóð FÁST
og kasta þeim niður í hljóm-
sveitargryfju í von um að fagott-
leikarinn næði í einn þeirra.
Maríanna hélt því fram að litlu
hefði munað að okkur yrði fleygt
Stórkostleg verðlækkun á
prjónavélum
Vegna mjög hagstæðra samninga getum við nú boðið KH 840
prjónavélina með 4ra lita skipti á aðeins kr. 12.807,00 Ifyrra verð
kr. 14.230,00).
Þessi samningur gildir aðeins um tiltölulega fáar vélar og er viss-
ara að tryggja sér vélina strax.
Borgarfell hf.
Skólavörðustíg 23,
sími 11372.
39. tbl. Vikan 39