Vikan - 29.09.1983, Qupperneq 48
iS
raaiy
40. tbl. — 45. árg. 6. okt.
ÍSLENSK FEGURÐ Á IBIZA
Stjörnustúlkurnar úr Stjörnukeppni Vikunnar, Úrvals og Hollywood frá í vor
áttu góda daga á Ibiza í sumar, en það var hluti af verðlaunum sigurvegaranna
og þátttökulaunum. Fararstjóri Úrvals á Ibiza, Jón Björgvinsson, er gamal-
reyndur blaðamaður og myndatökumaður og sendi okkur nokkrar myndir frá
heimsókn stjörnustúiknanna, ásamt stuttri frásögn. Þetta fáum við að sjá í
nœstu Viku.
VEIÐISAGA ÚR ELLIÐAÁNUM
Nú er allri laxveiði lokið þetta árið. Ekki er þó úr vegi að rifja upp góða sögu
frá sumrinu, síst þar sem sagan er raunverulega sögð í myndum og sýnir það
sem um er að vera. Þröstur Elliðason var þar nœrri sem tveir menn áttu við lax
í Elliðaánum og gekk á ýmsuþar til sá silfraði var kominn upp á bakkann.
ÞANNIG VERÐUR NÝJA FLUGSTÖÐIN
Þeir sem kynnst hafa aðstöðunni í blessaðri flugstöðinni okkar á Keflavíkur-
flugvelli munu líklega flestir á einu máli um að vel gœti sú aðstaða batnað. Nú
er fyrirhugað að bœta úr því sem kunnugt er og reisa nýja flugstöð. Hvernig
hún verður fáum við að sjá í nœstu Viku.
Úr dagbýk Helgu Thorberg:
KVENNAFERÐ TIL FRÖKEN PARÍSAR
/ nœstu Viku kíkjum við á nokkur blöð úr dagbók Helgu Thorberg, en þetta
sumar hefur verið sérlega viðburðaríkt í hennar lífi. Söguefnið er kvennaferð til
heimsborgarinnar, Parísar sjálfrar, og við fylgjumst með henni í tyrknesku
baðhúsi, á hlaupum eftir Signubökkum og alltafígóðum félagsskap.
HANDAVINNA
Nú er farið að kólna í lofti og flestir búnir að draga fram hlýrri fatnað. Því
ekki að prjóna sér eitthvað fallegt, eins og til dæmis þessa glœsilegu kápu sem
hún Anna Kristjánsdóttir í Bjarkarlundi hannaði. Við birtum uppskrift að
henni í nœstu VIKU.
N.