Vikan - 29.09.1983, Síða 50
Eldhús
Vikunnar Umsjón: Jón Ásgeir
Kúmen-kótelettusteik
1 kíló svínakótelettusteik með beinum
salt, þipar
nóg af kúmeni
3 matskeiðar olía eða steikingarfeiti
2 laukar
5 00 grömm gulrætur
300—730 grömm litlar kartöflur
kjötseyði (úr teningum)
SALATIÐ:
1 dós rauðar baunir
1 dós hvítar baunir
1 pakki djúpfrystar grænar baumr
SALATSÓSAN:
1 /2 bolli vatn
4—3 matskeiðar vtnedik
salt, pipar
1 hristasykur
1 —2 meðalstórir teningsskornir laukar
Hreinsið kjötið undir köldu vatni, þerrið það og núið
duglega salti, pipar og kúmeni í vöðvann. Sjóðhitið feitina
á pönnu og snöggbrúnið kjötið. Bætið laukbitunum á
pönnuna, látið kjöthliðina snúa upp á svínakótelettusteik-
inni og færið pönnuna á neðstu hillu í 200 gráða heitum
bökunarofni. Látið steikina malla þar í klukkustund.
Skerið gulræturnar í lengjur og sjóðið þær ásamt
skrældum kartöflunum í einum bolla af saltvatni. Hellið
síðan vökvanum í annað ílát (geymið vökvann) og færið
gulrætur og kartöflur yfir í ofninn þegar 20 mínútur eru
liðnar. Hellið öðru hverju kjötseyðinu yfir kjötið og snúið
um leið meðlætinu. Notið einnig grænmetisvökvann til að
hella yfir með. Látið kjötið bíða í tíu mínútur eftir að það
hefur verið bakað þar til það er skorið.
Prófa má hvort kjötið er gegnumsteikt með því að
þrýsta fast á það með neðri hliðinni á gaffli. Gefið kjötið
lítið eftir undir gafflinum er steikin tilbúin.
Salatið: Látið vökvann renna af baununum, hitið grænu
baunirnar í 10 mínútur í bolla af söltu vatni, sem einnig er
hellt burt. Blandið baununum saman, hellið sterkri salat-
sósunni yfir, látið standa í klukkutíma og bragðbætið ef
þarf.
Kókos-kótelettur
með saffrangrjónum
4 svínakótelettur
2 matskeiðar sojasósa
pipar, salt
Kjötinu velt í:
hveiti
2egg
kókosmjöl
MEÐLÆTI:
200—230grömm langkorna-hrísgrjón
6—7,3 sentílítrar kjúklingaseyði (úr teningum)
1 meðalstór laukur sem 3 negulnöglum erstungið í
1 smábréfafsaffran
Hreinsið kóteletturnar undir köldu vatni og þerrið þær.
Skerið í fituna með 2 sentímetra millibili til að
kóteletturnar vindi sig ekki við steikinguna. Þrýstið á þær
með þykkum hníf. Djúpfrystar kótelettur þarf aðeins að
þíða að hluta áður en þær eru steiktar.
Penslið kóteletturnar með sojaolíu en saltið þær ekki,
þá verða þær seigar. Látið olíuna síga í þær í 2—3 klukku-
stundir og þá má salta þær og pipra. Veltið kótelettunum í
hveiti, síðan í eggjum og loks í kókosmjöli. Steikið þær í 10
mínútur á pönnu, þar til þær eru gullinbrúnar. Berið fram
ásamt sítrónusneiðum.
Saffranhrísgrjón: Sjóðið seyðið, bætið lauk, saffran og
hrísgrjónum saman við og sjóðið í 2 mínútur. Lækkið
hitann og látið hrísgrjónin soðna í lokuðu íláti í 12—15
mínútur.
Með þessum rétti mætti framreiða ferskt græn-
metissalat.
50 Vikan 39. tbl.