Vikan - 03.05.1984, Page 31
Verðlaunamyndin
í samkeppninni
VETUR
Eiginkonan benti á mótífið eftir
eitt óveðurskastið f vetur
Bjarni B. Halldórsson, eigandi Ljósmyndaþjónustunnar og umboósmaður Polaroid á
Islandi, afhendir Baldri Kristjánssyni verðlaunin góðu.
Aukaverðlaun:
Fimm Polaroid
1000 Combi vélar
Þátttaka í ljósmyndasamkeppni Vikunnar — VETUR — var ótrúlega
góö og höföum viö í dómnefndinni úr miklu aö moða. Viö vorum ánægðir
meö þær sex myndir sem við völdum í úrvalshópinn. Við munum síöar
birta fleiri myndir úr keppninni og kemur næsti skammtur þann 17. maí.
Bjarni B. Halldórsson, eigandi Ljósmyndaþjónustunnar, ákvaö, þeg-
ar hann sá hve þátttakan var góö, aö bæta viö aðalverölaunin, sem sagt
er frá á öðrum stað, fimm aukaverðlaunum sem eru Polaroidvélar af
gerðinni 1000 Combi, hver aö verömæti um 1200 krónur. Þannig fá þeir
sex, sem eiga myndimar hér, Polaroidvélar að launum plús ávísun á
þrjár framkallanir og kópíeringar hjá LITSÝN.
I dómnefndinni áttu sæti: Emil Þór Sigurðsson, eigandi Ljósmynda-
stofu Reykjavíkur, Ragnar Th. Sigurðsson, ljósmyndari Vikunnar,
Bjami B. Halldórsson, eigandi Ljósmyndaþjónustunnar, og Sigurjón
Jóhannsson blaðamaður.
Þá eigum viö til góöa 32 ávísanir á framköllun og kópíeringar hjá
LITSÝN sem viö dreifum meðal þátttakenda sem síðar fá myndir sínar
birtar í Vikunni.
Sá sem varö hlutskarpastur í
samkeppninni VETUR heitir
Baldur Kristjánsson, sálfræðingur
aö mennt og starfar sem skólasál-
fræðingur í Reykjanesumdæmi.
Baldur byrjaöi aö taka myndir
árið 1978 og kvaðst fyrst í staö
hafa tekiö venjulegar pappírslit-
myndir. ,,Eg hef alla tíö haft
gaman af myndum og formum og
svarthvítar myndir hafa alltaf
höfðað til mín,” sagöi Baldur.
„Þaö er gaman aö gera allt sjálfur
og ráöa framvindunni.” Baldur
fór að taka ljósmyndunina alvar-
lega er hann dvaldi viö nám í
Gautaborg og gekk þá í ljós-
myndaklúbb sem hann var í þar
til hann fór heim til Islands ásamt
fjölskyldu sinni.
Verölaunamyndin var tekin í
einu óveöurskastinu í vetur og þaö
var eiginkonan sem benti honum á
mótífið. Myndin er tekin á FP—4,
125 asa Dfordfilmu og framkölluö
í Kodakframkallara. Baldur
kvaöst hafa átt auðvelt meö aö
stækka myndina en hann tók hana
á einum stærra ljósopi en mæling
sagöi til um til aö fá teikningu í
snjóinn.
Baldur notar Pentaxmyndavél
og tekur jafnt svarthvítar myndir
og slidesmyndir. Hann hefur
mestan áhuga á þeim formum í
náttúrunni sem eru hulin flestra
augum og notar þá mikið
makrólinsu viö nærmyndatöku.
Þegar viö spuröum hvort hann
hygðist sýna myndir sínar í náinni
framtíð þá þvertók hann ekki fyrir
að það heföi hvarflaö að sér en
vildi þó gefa sér meiri tíma og
safna fleiri myndum.
„Ljósmyndasýning þarf aö hafa
eitthvert „heiti”, ég get ekki hugs-
að mér aö sýna myndir sína úr
hverri áttinni.”
Nú var komið aö því aö taka viö
hinum veglegu verðlaunum sem
Bjarni B. Halldórsson, eigandi
Ljósmyndaþjónustunnar, afhenti
og sagt er frá á öörum staö.
Vor- og sumarmyndir —
skilafrestur til 15. ágúst
Að athuguðu máli ákváðum við hér á ritstjórninni að slá
saman vor- og sumarmyndakeppninni og er skilafrestur til
15. ágúst. í boði eru ein aðalverðlaun, Minolta X 300, sem
við gerum nánar grein fyrir á bls. 34. Að auki eru 50 verðlaun
frá LITSÝIM, þ.e. kópíering og framköllun á 50 litfilmum.
30 Vikan 18. tbl.
18. tbl. Vikan 31