Vikan


Vikan - 03.05.1984, Síða 41

Vikan - 03.05.1984, Síða 41
skammti á mergðina. Nákvæm- lega jafneldsnöggt hvarf hver ein- asta silfurskotta úr skálinni. — Já, takk, heyrði ég í Marí- önnu við dyrnar, þetta nægir! Sítrónubúðingurinn minn! Eins og sé nú ekki nóg af eiturefnum í matvörunni samt. Silfurskotturnar fylgdust spenntar með hverju fram yndi úr glufum og holum sem voru felu- staöirnir þeirra. Ég ýtti Maríönnu út úr eldhúsinu og lét sem ég væri aö fara að borða sítrónubúðinginn eftir að hafa skafið efsta lagið af. Síðan reyndi ég að stauta mig fram úr áletruninni á úðabrúsan- um, þó máð væri. „Fullur árangur næst ekki fyrr en eftir hálfan til heilan sólarhring,” stóð þarna. Það virtist nógu sanngjarnt. Þess vegna fór ég út úr eldhúsinu og læsti vandlega á eftir mér. — Á morgun finnum við þúsundir dauðra silfurskottna í eldhúsinu, sagði ég viö Maríönnu. — Þær ættu að fá þaö óþvegið, á magann, hálsinn og falla unn- vörpum fyrir eitrinu! Síðan sópum við þeim saman, leggjum þær í stóra hrúgu í ruslahauginn og ausum á þær bensíni og kveikj- umí. Daginn eftir fundum viö dauða silfurskottu í eldhúsinu. Eina. — Sópaðu henni saman, leggðu hana í stóra hrúgu ofan á rusla- hauginn og kveiktu í! sagði Marí- anna napurlega. Ég opnaði eld- hússkápinn. Þar voru silfur- skotturnar í óða önn að ryðja sér braut gegnum hafsjó af rottueitri. Þær voru greinilega lúsiðnar þegar þær lögðu saman, þaö máttu þær eiga. Þar sem mér sýndist að aðalathafnasvæðiö þeirra væri þarna í skápnum þá náði ég í úðabrúsann til aö gefa þeim nú ærlegt skot. Á milli augn- anna. Það var ekki ein einasta silfurskotta á staðnum þegar ég var búinn að koma brúsanum í skotstöðu. — Komið þið fram, hugleysingj- arnir ykkar! hrópaði ég. En nei, takk. Ekki þorðu þær. Ég lét mér því nægja að úöa rottueitri um allan skáp svo það var farið að safnast í hauga sums staðar. Ég vonaði að þær myndu að minnsta kosti drukkna í duftinu. Morguninn eftir fór ég snemma á fætur til að athuga gang mála í eldhússkápnum. Þar var allt við bestu heilsu. Svo lúsiðnar sem þessar pöddur eru þá þurfti ég kannski ekki að láta mér koma það á óvart að þær voru búnar aö Þýöandi: Anna sópa öllu eitrinu saman í eina hrúgu. Og þar að auki sá ég ekki betur en þær væru langt komnar meö að byggja sér brú úr eldspýt- um upp í hunangskrukku sem þarna var mitt í skál fullri af vatni. Þegar þær sáu mig lögðu þær umsvifalaust á flótta. — Afbragö, sagði ég, ef þið viljið hafa það svona, þá gerið svo vel. En gleymið því ekki að það eruð þið sem eruð svona lítt sam- starfsfúsar. Ég hefði ekkert á móti því að geta þyrmt ykkur, en ef þið ætlið að hafa það svona neyðist ég til að fara í hart! Ég sneri mér að Maríönnu og bað hana um að fara með barnið út. Það skyldi ekki verða vitni að þeim hildarleik sem nú yrði háður. — Þessir silfurskottuaumingjar eiga ekki betra skilið en ég svæli þá burt með gasi, sagði ég. — Ö, nei, ekki það. Þú veröur að gefa þeim tækifæri, sagði Mari- anna. — Út úr eldhúsinu, sagöi ég ákveðinn. Ég var farinn aö ryöga einum um of í því hver var hús- bóndinn á heimilinu. Maríanna dró sig í hlé, dauö- skelkuð. Svo lokaði ég gluggum, tróð upp í allar rifur og glufur meö dagblaðapappír. . . og skrúfaði frá gasinu. Síðan flýtti ég mér út, lokaði dyrunum, sneri lyklinum í skránni, tók hann úr, tróð í skráar- gatið, svo enginn slyppi þá leiðina. Undir kvöld braust ég inn í eld- hús, meö skýlt fyrir öll vit, skrúfaði fyrir gasið og opnaði síðan alla glugga og huröir til að lofta út. Nokkrum tímum síöar hætti ég mér aftur inn í eldhús. Ég kallaði á Maríönnu sigri hrósandi og benti henni á gaseldavélina. — Þarna sérðu, sagði ég stoltur, þaö varö að taka þetta mál föstum tökum eða sleppa því alveg. Það varð að fara sem vildi! Á gaseldavélinni lágu tvær silfurskottur í valnum. Það var ekkert lífsmark með þeim. Þær voru eins dauðar og hægt var að hugsa sér. Þegar við vorum að ganga til náða um miðnæturskeið fór ég fram í eldhús til að kanna ástandið þar. Þaö var alveg prýðilegt. Þarna voru mörg hundruð silfurskottur í einfaldri sorgarröð og stefndu út úr eldhúsinu. Fremst fór fríður flokkur með lík hinna föllnu. Þær ætluöu rétt að skreppa út að bera hina látnu til hinstu hvílu. Stjörnuspá Hrúturinn 21. mars-20. apríl Nautið 21. april - 21. mai Tvíburarnir 22. mai-21. júni Þú hefur verið undir miklu álagi að undan- förnu og þú átt mjög erfitt meö að ná þér niöur á jörðina eftir það. Langbesta ráö- ið er að skipta um umhverfi og mun sú breyting færa þér margar ánægjustund- ir. Þér hefur fundist eins og þér miöaði ekkert áfram í ákveðnu verkefni. En nú mátt þú búast við að fara aö sjá sólarljósið og þú verður fljótur að gleyma öllum erfiö- leikum er þeir verða að baki. Þú átt þér leyndan draum sem þú óskar að rætist sem fyrst. En þú mátt búast viö að þurfa að fórna ein- hverju í staðinn og ekki er víst að allir í fjölskyldu þinni veröi jafnhrifnir af því. Krabbinn 22. júní - 23. júli Þú mátt eiga von á heimsókn og mun viökomandi færa þér mjög girnilegt tilboð. Þú ættir að hugsa vel um alla þætti málsins áður en þú tekur því, fleiri tilboð leynast hinum megin við horniö. Ljónið 24. júlí - 24. ágúst Einkalífiö verður svolítið stormasamt en þegar upp er stað- ið uppgötvar þú að sökin liggur alveg eins þín megin. Þú verður að læra aö stilla skap þitt og telja upp á tíu áður en vanhugsuö orö falla. Meyjan 24. ágúst - 23. sept. Framtíö þín hefur veriö nokkuð óörugg upp á síðkastiö. En nú bregöur svo við aö þú finnur þig í nýju umhverfi og þaö á eftir að gerast mjög margt spennandi hjá þér næstu vikur og mánuöi. Vogin 24. sept. - 23. okt. Þú ert mjög félags- lyndur og þér þykir alltaf gaman að kynnast nýju fólki. Þú færö mörg tæki- færi til þess á næstunni og allt bendir til þess að næstu vikur veröi afskaplega líflegar hjá þér. Sporódrekinn 24. okt. - 23. nóv. Einhver þér nákom- inn er ekki ánægður með lífið þessa dagana og þér geng- ur illa að setja þig í hans spor. Reyndu samt aö líta á málið frá báðum sjónar- hornum, það getur hjálpaö viðkomandi mikið. Bogmaðurinn 24. nóv. - 21. des. Undanfarið hefur daglegt líf þitt tekiö miklum breytingum. Þú munt eiga í ein- hverri innri baráttu út af mikilvægri ákvöröun sem þú þarft að taka en að lokum séröu að þú geröir það eina rétta. Steingeitin 22. des. - 20. jan. Þú hefur einu sinni brennt þig á ákveön- um mistökum og þú ætlar ekki aö lenda í því aftur. Einhver sýnir hugmyndum þínum ekki nægilega mikinn áhuga og þér sárnar það. Láttu það samt ekki á þig fá. Vatnsberinn 21. jan. - 19. febr. Þú færð tækifæri til að sýna ákveömni manneskju að þú kannt vel aö meta þaö sem hún hefur gert fyrir þig. Þú ættir aö gera meira aö slíku, þaö gefur lífinu aukiö gildi. Fiskarnir 20. febr. — 20. mars Þú hefur haft einhverjar áhyggjur af fjárhagnum að undanförnu. Öll slík vandamál munu leys- ast á næstunni og þú færð þar að auki möguleika á aö sýna sjálfstæði þitt og hvað í þér býr. 18. tbl. Víkan 41

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.