Vikan - 03.05.1984, Síða 45
yfirmenn hennar aö skoöa kort af
Finnmörk, norö-austasta hluta
landsins þar sem landamærin við
Sovétríkin teygðust inn frá
Barentshafi í 191 kílómetra aö
finnsku landamærunum. Ekki svo
að skilja að Rússar myndu ein-
skoröa sig viö sameiginleg landa-
mæri fyrir hersveitir sínar ef þeir
geröu innrás. Þaö var ekki viö því
aö búast aö hlutleysi Finnlands
stæði gegn kröfu Sovétríkjanna
um aö fá að fara aörar leiðir til
Noregs.
Hreyfanlegu sveitirnar voru
ekki einu liðsveitirnar sem undir-
bjuggu sig. Þaö var verið aö flytja
norska hermenn í flýti noröur í
leiguflugvélum til aö styrkja her-
inn í Noröur-Noregi. Þaö var búiö
aö láta heimavarnaliðiö vita. Búiö
var aö skipuleggja eyðileggingu á
öllum brúm í noröri, fyrirsát viö
öll mikilvæg vegamót, varnir fyrir
allar orkustöövar. Þó aö forsætis-
ráðherrann legði á það áherslu í
útvarpsræöum sínum aö þaö væri
engin yfirvofandi hætta vissu allir
Norðmenn aö neyðarástand var í
uppsiglingu. Þegar snjóbílar og
vörubifreiöar bandamanna
skröltu norður frá Bardufossi
stóöu þorpsbúar í röðum við
vegina, veifuöu fánum og hrópuðu
húrra.
I Moskvu birti Pravda langan
leiðara sem fordæmdi æfingar
heimsvaldasinnanna í NATO,
sagði þær stofna öryggi
Skandinavíu í hættu og ógna
heimsfriðnum. „Þannig undir-
strika þær þörfina á því aö USSR
taki þátt í vörnum fyrir hlutleysi
Svalbarða,” var yfirlýsing
blaðsins.
„MAKAROV ER gagntekinn af
fjallinu. Eg er viss um aö hún
verður reist þar.” Folvik var aö
endurtaka sjálfan sig, glímdi við
merkingu þess sem Mydland hafði
veriö að spyrja um. Að senda
leynilegar loftskeytasendingar til
Noregs, aö vera njósnari, hugsan-
lega aö vera settur upp við vegg
og skotinn, aö vera hetja.
Imyndirnar þutu í gegnum huga
hans, móöir hans grátandi viö gröf
hans, presturinn í snjónum, ljós-
myndir í blöðunum, hann sá þetta
allt fyrir sér eins og spennumynd í
sjónvarpi. Svo hristi hann höfuðið
vantrúaöur. Atburöir síðustu
tveggja mánaða voru óraunveru-
legir. Fyrst tóku Rússarnir völdin
á flugvellinum sem hann var svo
stoltur af, auömýkingin aö deila
með þeim skyldustörfum, að fá
EINMITT
FYRIR ÞIG!
Hægt er aö fá innréttingu í hvaða eldhús sem er, stór eöa lítil, viö viljum benda þeim á
sem hafa mjög þröng eldhús aö hægt er aö gera þessi litlu ótrúlega „stór".
Hægt er aö fá margskonar aukahluti svo sem
hillur fyrir búsáhöld, brauðbretti, vínrekka, o.fl. o.fl.
18. tbl. Vikan 45