Vikan


Vikan - 03.05.1984, Page 53

Vikan - 03.05.1984, Page 53
Segðu EUBOS (Jú-boss) i staðinn fyrir sápu! Sennilega er Eubos eitthvað það besta, sem komið hefur á markaðinn fyrir þá sem eru með viðkvæma húð. Eubos kemur nefnilega í stað sápu, sem oft getur verið ertandi fyrir húðina. Tilvalið fyrir þá sem vegna vinnu sinnar, iþróttaiðkana og annarra aðstæðna þurfa oft á tíðum að nota mildari sápu en aðrir. Sumir þola jafnvel ekki að nota sápu. Það eru einmitt þeir, sem eiga að nota Eubos í stað sápu. Eubos fæst bæði í hörðu og fljótandi umboð á ísiandi: formi. C. Ólafsson, Grensásvegi 8, Reykjavík. Auglýsingar Konan sem skildi loöfeld eftir í bílnum mínum í gærkvöldi er vinsamlegast beöin um aö hringja nú þegar og útskýra fyrir konunni minni hvers vegna hún gerði þaö. Til sölu bolabítur! Borðar hvaö sem er. Mjög hrifinn af börnum. Tilkynning frá lögreglunni: Reglugerð frá 24/12 ’83 og 11/1 ’84 um bann viö að fara út á ísinn á Rauöavatni er hér meö numin úr gildi. Reykjavík, 2/5 1984, lögreglustjóraembættið. Astkær faðir okkar hefur verið burtkallaöur til eilífs lífs á býli bróðursíns íSælingsdal. Öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum viö andlát mannsins míns elskulega, Tómassen lækni og séra Sakaríasi sérstaklega, þakka ég einlæglega hjálpina. Svín, sem slátra á í Raufarvík á mánudaginn, þann 8., eru vinsamlegast beöin um aö láta vita í síma 96969. — Borðiö hjá okkur, þá borðiö þiö ekki annars staðar nokkurn tíma! Ef guð og veður leyfa mun ég vera til viðtals í Sauðafiröi á morgun; annars eigi síöar en hinn daginn. M.J. tannlæknir. Til sölu: 50 hreinræktaðir hvolp- ar, 2500 krónur stykkið. Ef karl- mannsrödd svarar í símann vinsamlegast leggið á. Oskast — karlar, konur og börn á lítiö notaða kirkjubekki. Safnaðarnefnd Skólavörðu- sóknar. „Bestu ár ævinnar” framlengj- ast til sunnudags. Ungur, rólegur maöur með há- skólapróf, meö góðar tekjur og í góðri stöðu, sem finnst hann ein- mana í stórborginni, óskar eftir bréfasambandi viö unga konu úti á landi meö skipti á hug- leiðingum og smjöri í huga. 45 ára kaupmaöur, sem hefur veriö í söluferöum um Norðurland, er í kvenundirföt- um og inniskóm, óskar eftir fleiri samböndum. Trabant ’68 með rafljósum, miðstöð og góðum suðurglugg- um til sölu vegna brottflutnings. 18. tbl. Vikan 53

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.