Vikan - 31.05.1984, Blaðsíða 11
Joan Collins
Ijóstrar upp leyndarmáli!
Joan Coilins og ástmaðurinn, Peter Holm.
Joan Collins, Dynasti-gellan númer eitt, ljóstraði upp í viðtali á dögun-
um hvaða maður henni þætti mestur og bestur! Með þeim fyrirvara aö
segja „Fyrir utan Peter Holm. . . ”, sem er ástmaður stjörnunnar um
þessar mundir, sagðist stjarnan halda mest upp á Warren Beatty.
„Hann er sá villtasti, eldheitasti elskhugi sem ég hef nokkurn tíma
komist í kynni við! Hann er óseðjandi...Svo mörg voru nú þau orö.
— Jónas minn, vertu nú góöur viö hana mömmu þegar hún
kemur í dag, láttu þig detta þegar hún lemur þig.
Auglýsing: Okkur vantar mann til að þvo diska og tvær gengil-
beinur.
— Konanmínskilurmigekki.
— Erhúnámótidrykkjuskapnum?
— Nei, nei, hún er Kínverji.
Lestin nam staðar mjög skyndilega svo að farþegarnir þeyttust
úr sætum sínum.
— Hvað kom fyrir, lestarstjóri? spurði einn farþeganna.
— Smámunir, við ókum á kú.
— Var hún á teinunum?
— Nei, við eltum hana inn í fjós.
Sylvester Sta/lone
í sjokki
Sylvester Stallone er mikill
íþróttamaður og varla hefur það
farið fram hjá neinum að hann er
íturvaxinn mjög af öllu þessu
líkamsræktar- og íþróttapuði sínu.
Það sem færri vita er að hann átti
sjö hesta og hafði mjög gaman af
að spila póló. Hann átti sjö hesta,
sögðum við, því fyrir stuttu seldi
hann þá alla. Ástæðan fyrir því
mun vera sú að eiginkona hans,
Sasha, datt af baki í einni keppn-
inni og meiddi sig. Sylvester
Stallone vill ekki eiga neitt á hættu
eftir að leikarinn John Hurt missti
eiginkonu sína sviplega, einmitt
við það að hún datt af hestbaki!
l/£T/?4£-F€i %
22. tbl. Vikan II