Vikan - 31.05.1984, Blaðsíða 56
„Góðan daginn, gefðu mér pening!"
Þeir félagar Kristján Bjarnason og Hreinn Jónsson hafa fgrr látið okkur fá
sgnishorn af því sem fyrir þá bar á leið þeirra um Austurlönd. Fyrsl fylgd-
umst við með þeim í Síberíulestinni, síðan kynntumst við Kína fyrir þeirra
milligöngu og loks fáum við í nœstu VIKU að trítla með þeim um Thailand.
Þar ber margt fyrir augu og eyru sem íslendingum þykir skondið og ekki
spilla myndirnar fyrir.
Baltasar
Hann kom frá Katalóníu fyrir meira en tuttugu árum og er orðinn leiður á
því að svara spurningunni hvers vegna í ósköpunum . . . hann settist að á
íslandi. Síðan hefur nœtt um hann hér á skerinu í fleiri en einum skilningi
og í nœstu VIKU er meira um það að segja.
Stiklað á stóru - um járningar
/ nœstu VIKU fylgjumst við með því hvernig hestur er járnaður, það er
stiklað á stóru, en þó gefin hugmynd um nokkur grundvallaratriði sem
aldrei œttu að gleymast við járningar.
Enn einn franskur
Og við höldum áfram að kynna þessa frönsku og frœgu hönnuði sem meira og
minna einoka tískuheiminn nú sem áður. Sá nœsti er Jean-Louis Scherrer og
í nœstu VIKU verðum við með frásögn og myndir af tísku gœrdagsins,
dagsins í dag og morgundagsins frá hans frœga tískuhúsi í miðborg Parísar.
Þegar börn eignast stjúpforeldri
Æ fleiri börn eignast stjúpforeldri. Með aukinni tíðni hjónaskilnaða aukast
líkurnar á myndun stjúpfjölskyldna. Og það eru ekki bara börnin í stjúpfjöl-
skyldunum sem oft eiga erfitt heldur líka stjúpforeldrarnir — og líklega þá
oftar stjúpfeðurnir. Um þetta vandamál fjallar Guðfinna Eydal sál-
frœðingur íþœtti sínum í nœstu VIKU.
Handavinna
Sól og sumar vekur löngun til að halda sér í góðu formi. Og það þarf spjarir á
kroppinn við slíkar tilfœringar. Peysur og bolir úr gerviefnum er ekki rétti
klœðnaðurinn, náttúruefnin eiga best við þegar um líkamsrœkt er að rœða.
Því birtum við í nœstu VIKU uppskrift að ekta leikfimipeysu úr bómull og
hörgarni.