Vikan - 31.05.1984, Síða 35
Draumar
Páfagaukar
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi að ég væri að
gefa fuglunum mínum að borða
og þá voru komnir tveir aðrir
stórir páfagaukar í staðinn fyrir
mína litlu en ég tók ekki eftirþví
fyrr en þeir fóru að tala við mig
og settust áputtann á mér, mínir
hafa aldrei gert það. Þá tók ég
eftir að mínir voru sloppnir út og
þeir voru orðnir þrir. Þegar ég
ætlaði svo að ná þeim þá kramdi
ég einn. Eg hef miklar áhyggjur
út af þessum draumi svo mig
langar til að þú birtir þetta sem
fyrst.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Ein áhyggjufull.
Þetta er fyrir kjaftagangi vin-
kvenna þinna. Þær sem þú
þekkir best munu að líkindum
verða eitthvað ósáttar við þig og
því miður munu nýjar vinkonur
ekki reynast þér neitt betri en þér
mun takast að taka þannig á
móti kjaftaganginum í einni
þeirra að það mun að líkindum
verða til að draga úr hinum.
Gengið
upp stiga
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig að
ráða draum fyrir mig.
I nótt dreymdi mig að við
sonur minn, 7 ára, vœrum að
ganga upp háan tréstiga (hann
var ansi hár) sem reistur var
lóðrétt upp. Við gengum á hvítu
efni eða pappír, tandurhreinu,
sem var lagt upp yfir þrepin alla
leið upp. Sonur minn var kominn
upp svona tveim þrepum á und-
an mér og ég vaknaði um leið og
ég sté á jörðina.
Kær kveðja og fyrirfram
þ ókk,
Steinunn.
Þetta er mikill heilladraumur
fyrir þig og son þinn og bendir til
að einhver (þig grunar líklegast
hver) fylgist sérstaklega með
honum og hugsi vel um hann.
Þessi sonur þinn verður þér
væntanlega til mikillar ánægju í
blíðu og stríðu, honum fylgir
margt gott um ævina og hon-
um ætti að vegna vel í lífinu.
Að ganga
fyrir horn
Kæri draumráðandi.
10. apríl 1980 sendi ég draum
til ráðnmgar með undirskriftinni
Anna í sambandi við þennan
draum. Langar mig nú til að fá
að vita hvað það merkir í draumi
að ganga fyrir horn, í þessu
tilfelli bryggjuhorn.
Með bestu þökk fyrir,
Anna.
Að ganga fyrir horn merkir að
breyting, yfirleitt til batnaðar,
sé í aðsigi og fyrst hornið var á
bryggju máttu gera ráð fyrir að
þessi breyting hafi eitthvað með
útlönd að gera.
Hér er bréf fré póstmélastjóra. Hann vill fé að
vita hvernig við förum að því að koma kjarn-
orkupakka hvert sem er i heiminum á aðeins 16
minútum.
Þetta er ekki bara alfullkomin garðsláttuvél.
Þú getur líka hreinsað burt alla hunda sem
komast ólöglega inn í garðinn þinn, með einni,
ódýrri sprengikúlu.
22. tbl. Vikan 35