Vikan


Vikan - 31.05.1984, Síða 58

Vikan - 31.05.1984, Síða 58
II Barna Vikan Þýðandi: Jóhann J. Kristjánsson Teikning: Herdís Hiibner Ævintýrið umFútta og Bússu Náið nú í litina ykkar og Irtió Fútta, Bússu, Nissa og gæsina og fína herbergið hennar Bússu. í stóru borginni með háu húsunum og mannfjöldanum á heima lítill drengur sem heitir... Nei, ég ætla ekki að segja hvaö hann heitir því ég held að mamma hans vilji þaö ekki. Ég ætla bara að láta það nægja að segja ykkur að hann er kallaður Fútti og það á vel við hann. Hann er röskur drengur og á hverjum degi fer hann í leikskólann sinn. Þar á hann litla vinstúlku sem honum þykir mjög vænt um. Það er heldur ekki vert að vera að minnast á hennar rétta nafn en Fútti kallar hana Bússu. Þið megið trúa aö Fútti og Bússa eru góðir vinir og una sér vel saman. Og nú skuluö þið heyra hvað kom fyrir þau einn fagran vor- dag þegar sólin skein, fuglarnir sungu og allur heimurinn var svo fagur. Fútti og Bússa sátu inni í stofu og þeim leiddist. Þeim fannst ekkert varið í nýju leikföngin sem Bússa hafði fengið í jólagjöf og það var ekkert gaman að æfa sig að prjóna lengur. „Bara að við gætum komist út í veröldina og upplifað eitthvað æsandi,” sagði Fútti. I sama bili rak Bússa upp óp og kastaði dótinu sínu frá sér. Hún þaut til Fútta og faðmaði hann að sér. Hann rak upp stór augu því að inn í stofuna kom lítill maður og hafði hann aldrei séð annan eins. . . hann kom ríöandi á stórri gæs! „Vertu ekki hrædd, Bússa,” sagöi maðurinn og nú gátu bæði börnin séð að hann var vingjarnlegur á svipinn, með sítt, hvítt skegg. Hann var líka með skringilegan, uppmjóan hatt, í marglitum frakka og gekk á kloss- um. „Hver ert þú?” spurði Fútti og var nú orðinn hugaður aftur. „Ég heiti Nissi langskeggur,” svaraði maðurinn. „Þú kannast víst annars betur við mig úr kvæðinu um hann litla Nissa sem ferðaðist með aukapósti úr einu landi í annað. . . Það var þegar ég var ungur, en nú ferðast ég á gæsinni minni.” Bússa var heldur ekki hrædd lengur. Hún kom nær og horfði á Nissa langskegg og svo sagði hún: „Ég vissi ekki að þú værir álfur því þeir eru alltaf með rauðar húfur. ’ ’ „Þær nota ég alltaf þegar ég er heima en þú sérð að ég er núna á ferðalagi svo ég hef farið í frakkann og sett á mig þennan fína hatt,” sagði álfurinn. Börnin horfðu nú vel á hann, þeim virtist hann vera fallegur á að líta. Svo sagði Nissi langskeggur allt í einu: „Langar ykkur ekki að koma með mér og sjá dálítið merkilegt?” „Viltu taka okkur með þér til stór- mógúlsins? ” spuröi Fútti. „Það er nú svo sem lítið varið í það,” sagði Nissi langskeggur. „Nei, ég ætla að sýna ykkur annað miklu betra, komið þið bara með.” „En hvernig eigum við. . . ?” byrjaði Bússa að spyrja en stein- þagnaði svo því gæsin tók að stækka. Eða voru það börnin sem voru alltaf að minnka? Það var ekki gott að vita. Þau vissu bara að allt í einu sátu þau á bakinu á stóru gæsinni ásamt Nissa langskegg. Gæsin blakaði vængjunum og síðan flugu þau hátt upp í loftið. En hvað þetta var merkilegt! Langt fyrir neöan þau var bærinn með fjölda húsa, turna og verksmiðjureykháfa og þarna voru há tré sem gnæfðu yfir gráblá og rauð þökin. Göturnar líktust sprungum milli húsanna og fólkið virtist agnarlítið, næstum eins og maurar. Jafnvel hestar og vagnar, bílar og járnbrautarlestir litu út eins og leikföng. „Þið skuluð ekki vera hrædd um aö detta af baki, þið sitjið svo föst. Hjá mér skal ekkert illt koma fyrir ykkur. Ég er töframaður en einn af þeim góðu,” sagði langskeggur og sneri sér að börnunum tveimur. Þau voru heldur ekki hrædd, þau nutu ferðarinnar og bentu hvort öðru á hitt og þetta sem þau komu auga á. „Sjáðu skóginn, hann er alveg ljósgrænn og á sunnudaginn var hann ekki byrjaöur að laufgast,” sagði Fútti. „Þarna kemur stórt skip siglandi!” Bússa leit niöur á blátt vatnið sem var eins og skínandi silki í sólskininu. „Við fljúgum miklu hraðar en skipin sigla.” Allt í einu flaug gæsin á bak við stórt, hvítt ský svo að jörðin og allt sem henni fylgir hvarf. I stað þess sáu þau land alsetið hvítum gæsum. „Nú skulum við út,” sagði Nissi langskeggur og stökk niður af bak- inu á gæsinni og börnin fóru að dæmi hans. Nú varð gæsin allt í einu ekki stærri en gæsir eru vanar að vera. Það var eins og þau gengju um í þykkum, hvítum sængum sem voru stoppaðar upp með fjöðrum. Þetta var afar skemmtilegt. „Hvar erum við stödd?” spurði Bússa um leiö og hún fór kollhnís. „í landi skýjanna, þetta eru stóru, hvítu sumarskýin sem við leikum okkur í,” sagði Nissi langskeggur. „Gætið bara að því að rífa ekki gat á þau því þá fer að snjóa á jörðinni! ” „Er það þá snjór sem er innan í skýjunum? ” spurði Fútti. SB Vikan XX. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.