Vikan


Vikan - 31.05.1984, Qupperneq 60

Vikan - 31.05.1984, Qupperneq 60
S Popp Texti: Hörður Mánaðar legar melónur Einu sinni sagöi Bubbi melóna Morthens í blaðaviötali að sér þætti lítiö til íslenskra poppskríbenta koma. Þetta var fyrir löngu og ég man nú ekki hvaö hann sagði, orö fyrir orð, en hann bætti svo viö að poppblaöamenn snobbuöu fyrir erlendum listamönnum og veittu þeim miklu meiri athygli, gagnrýndu plötur þeirra miklu nákvæmar og vönduöu alltaf minna til í umfjöllunum sínum um íslendingana. Ég ætla þó ekki aö fara aö leggja orð í belg um þetta mál nema hvaö mér finnst þetta ekki satt. í staö þess aö ræða löngu gleymda hluti ætla ég nú aö fjalla lítillega um tvær plötur þar sem Bubbi kemur aö meira eöa minna leyti viö sögu. Bubbi Morthens: Ný spor. Safarí Records /dreifing: Skífan. Hér er Bubbi prímadonna. Upptökum stjórnaði hann sjálfur ásamt Siguröi Bjólu og er skrifaður fyrir öllum útsetningum. Ennfremur deilir hann gítarleiknum meö Þorsteini Magnússyni og Bergþóri bróður sínum. Sem áöur hefur Bubbi ýmislegt aö segja. I þetta sinniö er ég ekkert yfir mig hrifinn af kveðskapnum, finnst hann á stundum verulega „confusing” og stundum jafnvel klúöurslega settur fram. Dæmi: „Eg missti ástina út um gluggann / hún var raun- veruleg fyrir mér / Hún flaug því ég elskaði skuggann / ég elti skuggannígegnumlitaögler”. . . . Litað gler? Flaug ástin út um gluggann því ég elskaði skuggann? Ég verö að viöurkenna aö ég skil hvorki upp né niður í þessu. Textablaðið er vaðandi í villum, bæði eru þar stafsetn- ingarvillur og oft passaöi sungni textinn ekki við blaðið. Einn textinn var ekki meö og þegar ég fór aö hugsa málið þóttist ég vita ástæðuna. A umslaginu stendur eitthvaö um aö platan sé tileinkuö eiginkonu Bubba, Ingu, sem hefur mátt þola góöu og slæmu hliöarnar á bransanum. „ — Ég elska þig Inga!” Síðasta lag plötunnar, „Eg hata þetta bít”, inniheldur þetta: „Ég hata diskó/Ríö í takt við Lou Reed. . .” Næs. Þaö getur vel verið að Lou Reed sé þægilegur til þess brúks, sérstaklega ef maður á erfitt meö taktvissar hreyfingar, en þetta er bara eitthvaö svo kauðalegt. Ekki meira um þaö. Tónlistin er mjög í anda þess sem við er aö búast frá Bubba: rokk af einfaldari geröinni, lítil aukahljóðfæranotkun og söngur- inn látinn ráöa feröinni. Lögin eru flest þokkaleg, ekkert rosaleg, en hér og þar koma ágætis laglínur. Langbesta lag plötunnar er náttúrlega „Strákamir á Borginni” en restin er öll í einum klassa fyrir neöan. Sorrí, sad storrí. Ef á heildina er litið er þetta verk þó frekar heilsteypt og í raun- inni er allt í lagi að hlusta á þessa plötu ef maöur hefur ekkert annaö aö gera, hægt er að telja villurnar á textablaöinu í leiðinni. Umslagið er OK. t A- 444 Egó: Egó (Steinar). Ah, þetta er miklu skárra; miklu meira víraö. Hér er Bubbi einungis einn af þremur; reyndar eru þaö þeir Beggi og Rúnar sem stjórna málunum að mestu leyti. Þeir þrír hafa svo fengiö Asgeir Öskarsson á trommur og Pétur Hjaltested á hljómborð. Á útgáfudegi plötunnar fullyrtu þeir félagar að platan væri laus viö hiö hvimleiða Hljóöritasánd sem hefur oft viljað loða viö upptök- ur þaðan, flatan og leiðinlegan hljóm, og get ég staðfest þaö. Utsetningarnar og öll „próduktíón” (ekkert íslenskt orö til yfir þennan hlut, hugmyndir vel þegnar) er í góðu lagi, greinilega verið að sækjast eftir höröum og þéttum hljómi. Þaö hefur tekist, enda bjóöa lagasmíðarnar upp á þaö. Hraðir og hvassir taktar einkenna plötuna mjög sem gerir hana vissulega vel flytjanlega „læf” (lifandi er halló orð) og verður spennandi að fylgjast með hvernig meöferð lögin koma til meö að fá í höndum arftaka Bubba og hinna nýju meðlima Egósins. Annars er Bubbi á þessari plötu, eins og áður, á tveimur áttum um hvort hann á aö þruma textunum út úr sér eða fara blíðar aö og stundum er eins og annars þróttmikil rödd hans sé að springa. Á meðan hann heldur sig á miöri braut syngur hann samt alltaf skemmtilega. Hljóö- færaleikur þeirra pilta er fyrirtaksgóöur, aö vísu stendur á umslaginu aö Rúnar sé ábyrgur fyrir „berum feilum” en viö venjulega hlustun ber ekkert á þeim. Þetta er fyrsta platan þar sem Beggi og Rúnar spila svo stórt hlutverk, eiga heiöurinn af öllum lögum og eru í forsvari fyrir upptökustjórn. Ekki er hægt að segja annað en aö bærilega hafi til tekist en þegar tíminn veröur nægur er þaö sannfæring mín aö þeir eigi eftir að gera góða hluti á þessum sviðum, betri en nú. 444 60 Vikan 22. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.