Vikan - 14.06.1984, Qupperneq 4
Bleikja hefur tekið í Soginu skammt fyrir neðan Þrast-
arlund.
LOKSINS er sá tími kominn er
ýmsir hafa rennt og fengið lax eða
silung en aðrir bíða og hlakka til
komandi daga. Veturinn hefur
verið erfiður, veðurfar slæmt, að
minnsta kosti hér sunnanlands, og
hefur margur veiðimaður þá látið
hugann reika til síðasta sumars
þegar hann glímdi við stórfursta
vatnanna.
1 hugum margra veiöimanna er
sjóbirtingur fyrsti vorboðinn en
hann má veiða frá 1. apríl. Er það
bæði niðurgöngufiskur og göngu-
fiskur sem menn reyna að ginna
til að taka öngulinn, en meö mis-
jölnum arangri. Sjóbirting er
helst aö fá í ánum sunnan- og
vestanlands. A Suðurlandi er það
helst Geirlandsá í V-Skaftafells-
sýslu og svæöið þar í kring. Einnig
hafa Rangárnar góöan sjóbirting
en í ánum vestanlands er hann
minni. Þar er hann helst í Laxá í
Kjós, Laxá í Leirársveit og
einhverjum fleiri. Sjóbirtingur er
skemmtilegur á færi, stekkur og
djöflast mikið en hefur ekki sama
úthald og laxinn. Sundhraði sjó-
birtings er með ólíkindum. Ein-
hvers staðar er skrifaö að hann
gcti orðið um 37 km á klst.
Laxveiðin
I vertíðarbyrjun vakna margar
spurningar um laxinn. Til dæmis:
Veröur þetta gott eða slæmt veiði-
sumar? Mun veiöin á Norðaustur-
landi komast upp úr þeirri
ládeyðu sem hún hefur verið í?
Verður mikið um stórlax eða smá-
lax í ánum í sumar? Við þessu
fæst ekkert svar fyrr en líður á
veiöitímann.
Aflahæsta veiðiáin í fyrrasumar
var Laxá í Kjós með 1.995 laxa.
Þær veiðiár sem oftast hafa barist
um titilinn sem aflahæsta á lands-
ins eru: Þverá í Borgarfirði, Laxá
í Aðaldal, Miðfjarðará og Laxá í
Kjós. Nokkrar aðrar fylgja svo
fast á eftir. En aflamagniö eitt
segir ekki til um hver sé besta
veiöiáin því stangafjöldinn er mis-
jafn í hverri á. Líklega hefur Laxá
a Asum oftast vinninginn i fjölda
laxa á hverja stöng>En dagurinn
er ekki gefinn í svona á og er lík-
legt að hann kosti eitthvað yfir 10
þúsund á besta tíina í sumar.
Laxveiði skapar glæstar vonir,
mikla gleði og sár vonbrigði. Þeir
sem hafa misst þann stóra bera
þess jafnvel aldrei bætur. Sú saga
hefur heyrst að veiðimaður
Kistukvísl í Laxá í Aðaldal. Lax hefur tekið ofarlega i kvísl-
inni en er landað nokkru neðar. Hann reynist 13 pund og
alveg nýrunninn.
4 Vikan 24. tbl.