Vikan - 14.06.1984, Page 20
1S Smásaga
„Eg vil alls ekki vera kona þing-
manns. Þaö er hræöilegt líf. Þaö
verður erfitt fyrir börnin aö eiga
fööur sem aldrei er heima.”
„Börnin?” sagöi Kobert.
„Hvaöan koma þau?"
„Undan kálhausnum ef þetta
heldur svona áfram,” sagöi hún.
„Eg vil lifa eölilegu lífi og eiga
eölilegan mann.”
„Þetta eru aldeilis fréttir. Eg
helt aö barn eyöilegöi allt fyrir
ljósmyndastofu Diane Marcus.”
„Eg sagðist vilja fá að bíöa
þangað til allt væri komiö á hreini.
Eg vann of mikiö og lengi til aö
sleppa öllu þegar ég var að
komast á tindinn.”
„Þangaö kemstu aldrei.”
„Þakka þérfyrir."
„Þú kemst aldrei þangað því að
þaö verður alltaf nýr tindur sem
þarf að klífa. Þú vilt veröa þekkt-
asti ljósmyndari landsins.”
„Og þú veröur ekki ánægður
fyrr en þú ert oröinn forsætis-
ráöherra og hefur vinkonu þína og
ráögjafa í Westminster til aö þrífa
eftir þig. Paula Schofield tæki þaö
aö sér.”
„Hún yröi aö þrífa eftir þig.
Hver annar notar gólfiö fyrir fata-
skáp?”
„Þú getur fariö beint til Paulu
Schofield mín vegna.” Kobert fór
og sótti svefnpokann sem þau
höföu keypt fyrir brúökaups-
ferðina til Suöur-Frakklands og
lagöi hann á stofugólfið.
Seinna fór hann úr stofunni og
flutti inn í íbúö. Hann tapaði
kosningunum. Diane hringdi til að
tjá honum samúð sina.
„Eg er blóðgaður en óbeygður,”
sagöi hann. „Osigur er hluti
leiksins.”
„Þú hefur Paulu til aö hugga þig
viö.”
„Þú varst meö Paulu-dellu. Hún
ergóðurfélagi.”
„Þaö sést á árangrinum,” sagði
Diane og lagðiá.
Húninum aö baöinu var snúiö.
„Eg er aö koma,” kallaði Diane,
hleypti niöur í salernið, lét renna í
vaskinn og leit á fötin sín. Hún fór
fram og gekk beint aö stóra pianó-
inu sem var notaö sem bar.
„Hvaö má bjóða?” spuröi dökk-
hæröur, laglegur maöur. Hann
var á bláum jakka meö gylltum
tölum. Barþjónn eöa einn þeirra
einhleypu?
„Hvítvin, þakka fyrir.”
„Eg hef ekki séö þig áöur,”
sagði maöurinn.
„Eg hef ekki komiö áður. Eg
heiti Diane.”
„Velkomin um borö. Eg heiti
Derek." Hann rétti fram höndina.
„Diane og Derek — nöfnin eiga vel
saman.” Hann rétti henni glasiö
og þrýsti því í hönd hennar. Var
hann aö reyna að tjá henni eitt-
hvað? Eöa vissi maðurinn ekki
hvaö hann var sterkur?
„Þaö er gott aö kynnast fólki
hérna,” sagði Derek. „Eg hef hitt
stórkostlegar skvísur hér. Eg
sleppi engum föstudegi úr.”
Diane skildi ekki ástæðuna fyrst
allar konurnar voru svona stór-
kostlegar. Hann var tvímælalaust
mest aðlaðandi maöurinn þarna
inni.
Svo kom hún auga á grannan
mann með gleraugu og hálfhauks-
legan vangasvip. Hann minnti
hálfvegis á prófessor og hálfvegis
á sjóræningja og hún fékk hjart-
slátt. Hann var að ræða
við einhverja heppna, laglega
stúlku.
Henni varö kalt þegar hún sá
hann. Hann var ekki hluti af
neinu. Hann var stjórnmála-
maöur. Hana langaði mest til aö
flýja. Hvað hlyti hann aö halda ef
hann sæi hana hér eina talandi viö
ókunnugan karlmann? Og það í
boöi sem hún hafði aldrei komiö í
áöur. Hvað var hann að gera hér?
Hvers vegna var hann ekki í boöi
meöPaulu?
„Láttu eins og þér lítist vel á
mig,” sagöi Diane við Derek og
brosti eins blítt og hún gat.
„Eg geri það,” sagði hann. „Eg
þarf ekki aö þykjast neitt. Þú ert
stórkostleg. Hvers vegna viltu aö
ég séaðlátast?”
„Séröu þennan langa þarna meö
gleraugun og stóra nefiö? Þennan
þrifna sem er sléttgreiddur um
leið og hann vaknar? ”
„Attu viö manninn sem er
aö tala viö þessa fallegu, dökk-
hærðu stúlku?”
„Sumar konur eru ekki svona
frekjulegar,” sagöi Diane.
„Hvernig veistu hvernig hann
lítur út á morgnana? Eg hélt aö þú
hefðir aldrei komiö hingaö áöur. ”
„Hann er maðurinn minn. ’ ’
„Fyndið, ég hélt að hingaö
kæmu aöeins einhleypingar.”
„Hann verður bráöum fyrrver-
andi maöurinn minn,” sagöi
Diane svo hátt að Robert heyrði til
hennar.
Robert kom til hennar. „Er
þetta ekki Díana prinsessa?”
sagöi hann.
„Nei, sko, Idi Amin kominn,”
sagöi hún og ætlaði að kynna
Derek fyrir honum en hann var
farinn.
Georgina var komin í hans staö
og ljómaöi öll. „Mikið er ég fegin
að þiö hafið hist,” sagði hún. „Eg
sá á umsóknunum að þið eigiö
einstaklega vel saman. Þaö gleður
mig mikiö ef þaö verða hjón úr
pörunum mínum. Ég biö ekki um
annaö.”
„En þaö og risainntökugjald,”
sagöi Diane lágt.
„Þú hefur fólk grunaö um að
hafa illan tilgang,” sagöi Robert.
„Ætli það sé ekki árangurinn af
nokkurra ára reynslu?”
„Eg geri ráö fyrir aö það sama
hafi fengið þig hingað en láttu mig
ekki draga úr þér,” sagöi hún og
sneri sérundan.
Svo bætti hún viö: „Annars hef
ég aldrei gert þaö.”
Hún náði í kápuna sína. Hún
heföi kannski verið áfram ef hún
heföi verið leikkona eöa eitthvaö
svoleiðis en hún ætlaði ekki að láta
Robert vaða í kvenfólki á meðan
hún stæöi ein og yfirgefin úti í
horni. Það var of mikið. Kápan
hennar var enn blaut.
Eftir að hafa litið snöggt
i kringum sig til aö sjá hvort
Georgina horföi í áttina til hennar
fórhún til dyra.
„Eg skal ná í leigubíl fyrir þig ef
þú bíður augnablik,” var kallað
fyrir aftan hana. Hann var að fara
ífrakkann sinn.
En Diane haföi fengið nóg af
karlmönnum þetta kvöldiö.
„Ég get sjálf náö mér í bíl,”
sagöi hún.
„Náðu þá í bíl fyrir mig i
leiðinni.”
Þaö var engan leigubíl aö fá og
sífellt rigndi. Diane ætlaði að
spenna upp regnhlífina sína þegar
hún mundi að hún haföi gleymt
henni hjá Georginu. Samt var
regnhlíf sett yfir höfuö hennar.
Hún gekk áfram. Regnhlífin var á
sínum stað.
„Eg veit um staö sem hægt væri
að komast inn á,” sagði hann.
„Þaö er sætt veitingahús skammt
frá.”
„Attu við heima hjá þér?”
„Hvernig datt þér þaö í hug?”
„Nei, takk,” sagöi hún. „Ég er
ekki ein af þeim stúlkum sem fer
heim meö manni sem hún hittir í
einhverjuboöi.”
„Ég er ekki maður sem reynir
aö táldraga stúlkur,” sagöi hann.
„Ég held aö fólk veröi aö kynnast
fyrst.”
Þau voru komin til Marylebona
Road. Gatan var eins og lækur.
Hún horföi á leigubíla skvetta á
fótgangandi fólk. Farþegarnir
sátu rólegir inni í bílunum. Hún
var oröin blaut þó aö regnhlífin
væri yfir höfði hennar. Hann var
enn blautari.
20 Vikan 24- tbl.