Vikan - 14.06.1984, Page 34
\3 Bílar
Þegar Volkswagen var breytt úr bjöllu í
Svona leit Golfinn út eins og Giugiaro
skilaði honum í ágúst 1970. Honum var
breytt lítilsháttar eftir próf í risablásara
verksmiðjanna og settar á hann kringlótt-
ar framlugtir.
Hjá Volkswagen-verksmiðjunum urðu á
sinum tíma til margar hugmyndir um arf-
taka „voffans" eða „bjöllunnar" vinsælu.
Hönnuðirnir gerðu módel (sum í fullri
stærð) af tillögum sínum og eru þau geymd
á safni verksmiðjanna í Wolfsburg i Vestur-
Þýskalandi. Við sýnum hér sum þeitra.
Á sjötta og sjöunda áratugnum gekk allt
í haginn hjá Volkswagen, „bjallan" seldist
og seldist. En til að halda þróunardeildinni
vakandi og áhugasamri voru verkfræðingar
og aðrir kunnáttumenn stöðugt að vinna að
nýjum hugmyndum. Tillögurnar lentu allar
á safninu hjá verksmiðjunum.
Þegar halla tók undan fæti á áttunda ára-
tugnum og aðrir smábílar fóru að seljast vel
þurfti Volkswagen-risinn að grípa til betri
ráða. Fenginn var til leiks í apríl 1970 italski
hönnuðurínn Giugiaro og hann skilaði
módeli af hugmyndum sínum í ágúst sama
ár. Fyrsta útgáfan í fullri stærð kom á
götuna 1971 en það var ekki fyrr en þrem
árum síðar að bíllinn var skírður Volks-
wagen Gotf. í maí 1974 gátu kaupendur
valið á milli „bjöllunnar" og Golf og við
vitum nú hvor hafði betur.
Stækkuð mynd af Volkswagen frá yfirmanni
hönnunardeildarinnar, Herbert Schafer. Kom of seint,
vinsældir bjöllunnar voru farnar að dvína.
Aftur reyndi Porsche
1957. Frambrettin eru
rennileg og sleppt er
stöllum undir
hurðunum.
Forfaðir Golfsins var
hannaður 1968.
Tæknin var þegar öll
fyrir hendi.
Meira rými bauðst í
þessari hugmynd frá
1956. Of snemma á
ferðinni, núna eru
þeir rúmgóðu að
komast í tísku.
Rennilegt útlitið ber
með sér svipmót
sem einkennir
hönnuðinn Porsche
(tillaga frá 1952).
Hægt var að setja
þessa yfirbyggingu
beint á vél og
grind frá Volkswag-
en.
GOLF
34 Vikan 24. tbl.