Vikan - 04.04.1985, Síða 38
Paradísar
heimt
Ef þig dreymir um að eyða
sumarleyfinu á suðrænni sólar-
strönd með margra kilómetra
löngum hvitum sandströndum
eru Hawaiieyjar rétti staðurinn,
sannkölluð paradis á jörð — ef
hana er þá nokkurs staðar að
finna.
Hawaiieyjar eru hluti Banda-
ríkja Norður-Ameríku, fimm-
tugasta fylkið. Cook skipstjóri
og kappar hans fundu eyjarnar
árið 1778 og kölluðu þær Sand-
wich eyjar. islendingar þýddu
það snarlega og kölluðu Sand-
vikureyjar. Réttara væri þó að
kalla þær Samlokueyjar en það
er önnur saga.
Höfuðstaður Hawaiieyja er
Honolulu, hinn liflegasti bær
svo ekki sé meira sagt.
Skemmtanalífið er ákaflega
blómlegt í orðsins fyllstu merk-
ingu. Án efa finna ferðalangar á
öllum aldri eitthvað við sitt hæfi
þar á bæ.
Eitt af því skemmtilegasta,
sem hægt er að taka sér fyrir
hendur í sumarleyfi á Hawaii, er
að fara í eyjaráp. Innan við
tuttugu mínútna flugtími er frá
Honolulu til fjariægustu eyjanna í
klasanum og er ákaflega ódýrt
að ferðast á þann hátt. Molokai
er athyglisverð eyja. Best er að
komast þangað sjóleiðina frá
Maui sem einnig er
sannkallaður gimsteinn í eyja-
keðjunni. Lent er við strönd þar
sem Robinson Crusoe hefði á-
reiðanlega kannast við sig og
gestirnir þurfa allt að því að
hrista bananana úr hári sínu.
Landslag eyjanna er dá-
samlegt, veðurfarið nær full-
komið fyrir kuldabólótta
Norðurlandabúa og eldfjöllin
tignarleg á að líta. En siðir og
venjur Pólínesanna, sem
byggja Hawaiieyjarnar, gera
leyfið ógleymanlegt, þó ekki
komi fleira til. Allir ferðalangar
verða að læra húla húla og þeg-
ar einhver blómarósin smeygir
blómsveig um háls ferða-
mannsins fær hann á til-
finninguna að innfæddir líti á
hann sem meiriháttar gest. En
þó á suðrænni paradísareyju sé
skyldi fólk ekki gleyma að það
er jafnframt statt í Bandaríkjun-
um. Hamborgararnir eru á sín-
um stað. Eini munurinn á þeim
sem eldaðir eru í Hawaii og
meginlandinu er sá að á öðrum
staðnum er kjötkökunni
stungið í brauð, á hinum í
ananas!
Þú skalt reikna með smá-
plássi í ferðatöskunni þinni fyrir
muumuu. Það er ekki innfædd
kýr heldur fatnaður sem um
sumt minnir á indverskan sari.
Stórmarkaðirnir eru innan
seilingar á Hawaiieyjum eins
og víðast hvar annars staðar í
Bandaríkjunum. Woolworths
býður upp á sérlega glæsilega
og sígilda strápilsalínu.
Litadýrð blómanna á Hawaii
er einstök. Og ekki er sólarlagið
á þessum ógleymanlegu para-
dísareyjum síðra. Þar til maður
verður vitni að því sjálfur trúir
maður ekki að slíkt sé til nema í
væmnustu Hollywoodmynd-
um.
Sumarleyfi á Hawaiieyjum er langt frá því að vera hið
ódýrasta sem völ er á. Verðlag á mat og drykk er þó alls ekk-
ert svakalegt. Fyrst og fremst er mælt með sumarleyfi á
Hawaii sem tilbreytingu frá öllu hinu sem völ er á og ef
maður vill sleppa frá ,,öllu hinu tilstandinu". Á því sviði eru
Hawaiieyjar sannkölluð paradísarheimt.
Þar er rólegt
milli þrjú og sjö
a morgnana
Qdkkland hefur alltaf
haft yfir sér vissan sjarma sem
fólk hvaðanæva í heiminum
hefur sóst eftir. Grísku eyjarnar
eru ekki síður vinsælar og hafa
þær sótt fast á undanfarin ár.
Má þar nefna Rhodos, Kos,
Krít, Samos og Kefallinia. Allar
eiga þær sína guði og Rhodos,
sú eyjan sem islendingum
býðst að heimsækja í sumar, er
gjarnan kennd við sólguðinn
Helios.
Það eru Samvinnuferðir-
Landsýn sem bjóða upp á Rho-
dos í fyrsta sinn í beinu leigu-
flugi frá íslandi. Nefnir ferða-
skrifstofan staðinn „smell unga
fólksins" og það ekki af engu.
Ungt fólk hefur nefnilega sótt
mjög mikið til Rhodos og þá
sérstaklega Norðurlandabúar.
Danir hafa til dæmis farið
þangað í sumarleyfum sínum í
tuttugu og fimm ár. Er sagt að
svo mikið hafi verið um Skandi-
nava á eyjunum að þar megi
finna allmarga innfædda sem
tala ágæta dönsku, norsku eða
sænsku. Líklegast bætist ís-
lenska við hjá þeim í sumar því
eins og menn muna voru
Spánverjar á sólarströndum
fljótir að grípa íslenskuna, að
minnsta kosti nokkur vel valin
orð eins og „rassgat í bala,
Raggi Bjarna", eða eitthvað
álíka. Við skulum vona að
Grikkirnir læri eitthvað annað.
Danskur blaðamaður lét hafa
n
M
■
\
38 Vikan 14. tbl.