Vikan - 23.05.1985, Page 25
Eldhús Vikunnar
Quiche
Lorraine
Einhverju sinni mælti spakvitur maður að sannir kari-
menn borðuðu ekki quiche og skrifaði meira að segja
bók með sama nafni sem við fjölluðum á sínum tíma
um hér í Vikunni. Quiche er annars réttur ættaður frá
Frakklandi og er eins konar kaka eða pæbotn með
ýimsu góðgæti ofan á í eggja- og ostmassa. Quiche
Lorraine er frá Lorraine í Frakklandi og frægastur þess-
ara rétta, borðaður bæði sem aðalréttur, forréttur og
tilvalinn smáréttur í samkvæmi.
FyHr6—10.
Fylling
4 beikonsneiðar
1 laukur, sneiddur þunnt
1 bolli rifinn ostur
1/4 bolli parmaostur
4 egg, lauslega þeytt
2 bollar rjómi, eða 1 af mjólk og 1
afrjóma
1/4 tsk. múskat
l/2tsk.saft
1/4 tsk. hvítur pipar
Pœbotn
2 bollar hveiti
2/3 bollar smjör eða smjörlíki
1/3 bolli kalt vatn
1 tsk. salt
Skerið kalt smjörið smátt og
blandið því við hveitið. Bætiö
vatninu í og' hnoðið fljótt. Setjið á
botninn á smurðu eldföstu móti
eöa kökumóti með heilum botni.
Bakið við 225° C í um 5 mínútur.
Takið kökuna út úr ofninum og
útbúið fyllinguna. Skerið beikonið
í bita og steikið. Steikið laukinn
við vægan hita þar til hann er
glær. Stráið beikoni, lauk og osti
yfir pæbotninn.
Þeytið lauslega saman egg,
rjóma, múskat, salt og pipar og
helliðyfir.
Bakið í fimmtán mínútur.
Minnkið þa hitann niður í 175°C,
bakið í um 10 mínútur í víðbót og
gangið úr skugga um að pæið sé
bakað með þvi að stinga hnifi í það
um þrjá cm frá brúninni. Ef
ekkert klessist víð hann er það
tilbúið.