Vikan


Vikan - 16.07.1987, Side 7

Vikan - 16.07.1987, Side 7
Tónlist er geysistór þáttur í sýningunni. leikin af segulbandi að hluta en einnig flutt lifandi á flautu. Flautuleikarinn er Kolbeinn Bjarna- son og um lýsingu sér Ágúst Pétursson. Raddir leikaranna eru ekki síður mikilvægar fyrir leikverkið, bæði lifandi og leiknar af tón- bandi. í verkinu renna saman sjónræna. leikræna og tónlist sem mynda með því yndis- legt ritúal, helgiathöfn án orða. Hljóðfæraleik- arinn verður eins konar ritúalmeistari, sendiboði tónlistarheimsins, ljósvaki verksins, orkubrunnur þess og rammi. Innihald verks- ins er síðan leikur og samspil persónanna tveggja þar sem atburðarásin er bundin við aðalpersónuna, hann. og meginþátt verksins, þróun hans. Konan birtist frekar í margvísleg- um formum í verkinu. hún, er meira til staðar, óbreytanleg. Atburðarásin er í stuttu máli sú að hann fæðist saklaus úr tónlistinni og þró- ast inn í efnið. Á löngu ferðalagi, óháð tíma og rúmi, mætir hann höfuðskepnunum, jörð, vatni, eldi og lofti, sem birtast honum ýmist beint eða í gegnum tónlist, hreyfingu, liti, Ijós og ástina. Síðar, í efnisheiminum, gengur hann í gegnum mikla lífsreynslu og sorg senr hann öðlast fyrir tilstilli konunnar. í verkinu á sér því stað fæðing sálarinnar úr frumöfium heimsins. Sjö spegilmyndir er sambland af léttleika birtunnar á okkar norðlægu slóðum og hinum hæga austræna rytma sem við sjáum helst í verkum kvenna eins og Marguerite Duras. Sjálf segist Messíana sækja orku til listamanna eins og Chagall. Antoine de Saint-Exupéry og Tagore. Áhorfendur í sjö hópum verða hluti af sviðsmynd spegla, lita og Ijósa og hrærast þannig í hringiðu verksins í stað þess að vera fjarlægir þolcndur. Við lok verksins, þroskuð af reynslu, á aðalpersónan þess kost að snúa á ný til tónlistarinnar, varðveita barnið í sér og hreinleikann. Verkið verður þannig jákvæð þroskasaga mannsandans. Samband aðalpersónanna virðist dæmast til glötunar en löngu síðar, með hjartað fullt af tónlist, eygir aðalpersónan nýja iríögúleika á öðrum og þroskaðri forsendum. Það er eins og hann endurheimti frækorn sem hann hefur tapað og muni koma aftur til að sá því á ný og upp muni vaxa annað blóm og þroskaðra. Allt gerist þetta með leikrænni tjáningu án orða, við fióð tóna og lita. Lesum hluta úr handritslýsingu leikverksins Sjö spegilmyndir eftir Messíönu Tómasdóttur: Iuiiw dregst ad torkennilegri veru sem situr í glugga spegilhússins þakin rauðum dulwn hann heyrir andardrútt hennar Iuiiiii rifur utan af lienni dulurnar hverja af annarri hún er eins og myndastytta hreyfingarlaus J'ögur hann horfir ú andlit hennar gegnuin blcej- una liann horfir á fœtur liennar nakta snertir þá varjega fjarlœgir liann blcejuna og horjir bara hp'rfir Margir myndu lesa út úr verki Messíönu stórsigur andans yfir efninu, sigur hins góða á illu og aðrir myndu bæta við feminískum athugasemdum þess efnis að tilraunir hans til drottnunar yfir henni hljóti að 'stefna henni til dauða. Ástin og lífið virðast eiga betri fram- tíð samkvæmt verkinu á öðrum andlegri, mýkri og jafnari fieti, með nýrri nálguti og manninum jákvæðará gildismati. Ég hitti Messíonu og lagði á borð fyrir hana sjálfa tilvistarspurninguna. MESSÍANA: Að mínu mati er okkar hlut- verk hér í efnisheiminum að þróa hjartastöð- ina í okkur, með ást. Ég sé engan annan tilgang. En við erum að gera allt annað. Spurning dagsins er hvort við lifum af á þess- 29. TBL VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.