Vikan - 16.07.1987, Side 23
Persónan Nikki Finn er
ákveðin stúlka er lent hefur
utangarðs í lífinu. Hún klæð-
ist svörtum leðurfatnaði og
er ekki ólík þeirri persónu
er Madonna lék í Desperate-
ly Seeking Susan. Þótt Nikki
veigri sér ekki við að gera
ýmsa hluti sem réttvísin sér
ýmislegt athugavert við þá
er hún ekki morðingi en hún
ereinmitt sökuð um það og
bendir allt til að svo sé. Hún
fer því á stjá til að sanna
sakleysi sitt.
Mótleikari hennar er Griff-
in Dunne sem sjálfsagt er
þekktastur fyrir leik sinn í
hinni ágætu mynd Martins
Scorsese, After Hours. Leik-
ur hann Loudon Trott,
ungan, ríkan mann sem fell-
ur fyrir hinni óhelluðu Nikki
Finn og hjálpar henni við að
finna lausn morðgátunnar.
Madonna á mikið undir því
hvernig tekst til. Framtíð
hennar er trygg sem söng-
konu en Who’s That Girl
sker úr um það hvort hún á
framtíð fyrir sér leikkona eða
hvort hún verður enn ein
rokkstjarnan með mislukk-
aðan kvikmyndaferil að
baki.
Myndbönd
DOWN AND OUT IN BEVERLY HILLS ★ ★ ★
Leikstjóri: Paul Mazursky.
Aðalleikarar: Nick Nolte, Richard Dreyfuss og Bette Midier.
Sýningartími: 99 mín. - Útgefandi: Bergvík sf.
Down and out in Beverly Hills er kostuleggamanmynd sem segir frá
ríkri fjölskyldu sem býr í Beverly Hills. Fjölskyldulífið er vægast sagt ekki
eins og hjá venjulegu fólki. Heimilisfaðirinn er nýríkur og hefursamvisku-
bit gagnvart börnum sínum. Það aftrar honum samt ekki frá því að halda
við þjónustustúlkuna. Húsmóðirin telursig vera með ýmsa sálræna sjúk-
dóma, dóttirin er á sífelldum flækingi, aðallega til að elta stráka, og sonurinn
er hommi með kvikmyndadellu. Lif þessa fólks breytist heldur betur þegar
róni einn ætlar að fremja sjálfsmorð í sundlauginni þess. Kemur í Ijós að
á ferðinni er gáfaður og klókur maður sem hefur bein og óbein áhrif á alla
í fjölskyldunni. Það má hafa virkilega gaman af Down and out in Beverly
Hills. Húmorinn er mikill og öðruvísi en venjan er. Mætti líkja myndinni
við góðan farsa og leikararnir, sem ekki eru af verri endanum, fara á kostum.
TARGET ★ ★ ★
Leikstjóri: Arthur Penn.
Aðalleikarar: Gene Hackman, Matt Dillon og Gayle Hunnicut.
Sýningartími: 112 mín. - Útgefandi: Steinar hf.
Walter Lloyd virðist ósköp venjulegur byggingaverktaki í smáborg. Það
heldur allavega Chris sonur hans og er lítil vinátta með feðgunum. Donna,
eiginkona Walters og móðir Chris, fer í hópferð til Parísar. Allt i einu er
feðgunum tilkynnt að henni hafi verið rænt. Þeir halda strax til Parísar.
Þar kemst Chris fljótlega að þvi að faðir hans hafði verið einn helsti CIA-
njósnarinn í Evrópu á kaldastríðsárunum og það eru margir sem vilja hann
feigan. Snýst nú rnyndin upp í hættulegan eltingaleik þar sem mannslífið
er lítils virði og botn fæst ekki í flókinn söguþráð fyrr en í lokin. Arthur
Penn hefur gert hér ágæta spennuntynd þótt söguþráðurinn virðist stundum
losaralegur. Gene Hackman er alltaf traustur og nýtur sín vel í myndunt
sem þessum. Matt Dillon á aftur á móti í nokkrum erfiðleikunt með sitt
hlutverk. Target er þrátt fyrir hnökra spennandi afþreying.
MY BEAUTIFUL LAUNDRETTE ★ ★ ★
Leikstjóri: Stephen Frears.
Aðalleikarar: Saeed Jaffrey, Roshan Seth og Danile Day Lewis.
Sýningartími: 93 mín. -Útgefandi: Bergvík sf.
My Beautiful Laundrette er kannski sú kvikmynd sem kom hvað mest
á óvart í fyrra. Vinsældir hennar voru þónokkrar vestanhafs þótt efniviður-
inn gefi ekki tilefni til þess. Fjallað er um innllytjendur í Englandi og þá
sérstaklega eina fjölskyldu sem hefur arð afglæpastarfsemi. Fjölskyldan
fyrirlítur Breta, að undanskildum Omarsem mikilserætlast til af i fjöl-
skyldunni. Fljótt kemur þó í ljós að hann er öðruvísi en aðrir fjölskyldumeð-
limir. Hann fær til rekstrar þvottahús. Sér til aðstoðar fær hann vin sinn,
Johnny. Það kemur í Ijós að Omar og Johnny eru elskendur ogeru fyrrver-
andi vinir Johnnys, götulýður. ósáttir við þetta og gera allt til að gera þeim
lífið leitt. Fjallar myndin á opinskáan hátt um lífhomma sem eðlilegan
hlut og er það óvanalegt. Einnig lýsir hún vel þeirri stéttaskiptingu sem er
milli innflytjenda ogenskra. Gerir þetta myndina óvenjulega og forvitnilega.
THE EMPTY BEACH ★ ★ ★
Aðalleikarar: Bryan Brown,
Anna Maria Monticelli og Ray Barett.
Sýningartími: 87 mín.
Það er sjaldan sem ástralskar myndir valda vonbrigðum. Ástralir hafa
einstaklega gott lag á að gera góðar afþreyingarmyndir. The Empty Beach
erein slík, sakamálamynd sem hefur allt tii að bera ergóðar sakamálamynd-
ir þurfa. Það er aðalstjarna Ástrala, Bryan Brown, sem fer með aðalhlut-
verkið, einkaleynilögreglumann sem kona nokkur fær til að leita uppi
eiginmann sinn er hafði horfið nokkrum árum áður en hefur nýlega sést.
Cliff Hardy, en svo nefnist spæjarinn, heldurað hann hafi tekið að sér
auðvelt verkefni en kemst fljótlega á aðra skoðun eftir að honum er sýnt
banatilræði og kunningi hans er drepinn. Eins og í góðurn þrillerum er
ekki allt sem sýnist. Bryan Brown fer sérlega vel með hlutverk spæjarans
sem erekki beint James Bond týpa heldur ruddalegur, þrjóskur karakter.
The Empty Beach er sakamálamynd sem hægt er að mæla með.
29. TBL VIKAN 23