Vikan - 16.07.1987, Page 47
dag tengdust vinsældum myndbandanna.
Hafist var handa við gerð þessa nýja mynd-
bands sem er frægast fyrir það hversu lengi
það var í vinnslu og hve dýrt það var. í þetta
myndband voru notaðar 6000 teikningar svo
það er ekki furða þótt það hafi sett met í
vinnslutíma. Þegar myndbandið var tilbúið
var iagið enn gefið út og áhrif myndbandsins
létu ekki á sér standa. i Bandaríkjunum fór
lagið á toppinn og héldu eflaust margir að
þeir væru að heyra ofheyrnir þegar þeir heyrðu
að norsk hljómsveit væri kornin á toppinn i
Bandaríkjunum því að þangað til var nóg að
minnast á popp og Noreg til að menn færu
að hlæja. Það er nú liðin tíð.
Eftir að hafa komist á toppinn í Bandaríkj-
unurn komust þeir i annað sætið í Bretlandi
og næsti smellur þeirra. The Sun always Shines
on TV, tyllti sér á toppinn þar í landi. Á eft-
ir fylgdu lögin Train of Thought og Hunting
High and Low, öll fjögur lögin af fyrstu breið-
skífunni, Hunting High and Low. Breiðskífan
sjálf fékk góða dóma og myndbandið að Take
on Me sópaði að sér verðlaunum en það er
sjaldan að gagnrýnendur og almenningur séu
sammála um gæði ákveðins myndbands.
NAFN: Morten Harket.
FÆDDUR: 14. september
1959.
HÆÐ: 182 cm.
HÁRAL: Dökkbrúnn.
AUGNL: Blár.
MAKI: ?
Þegar þeir voru búnir að gefa út breiðskífu
með jafnmörgum smellum og Hunting High
and Low bjó yfir var næsta skrefið tónleika-
ferð og nú var skipulögð ferð sem náði yfir
nær allan hnöttinn.
Það hefur verið sagt um a-ha að engin
hljómsveit geti státað af jafnglæsilegri byrjun
og hún: að fyrsta breiðskífan seljist svona
vel, að fyrsta lagið fari á topp allflestra vin-
sældalista í heiminum og næstu lög fari mjög
ofarlega. í fyrstu tónleikaferðinni, sem þeir
félagar tóku þátt í, voru þeir aðalnúmerið og
það var nær undantekningarlaust uppselt á
tónleikana.
Síðan var farið í stúdíó og ný plata tekin
upp. Sú nefndist Scoundrel Days. Af henni
hafa komið út þrjú lög á smáskífu, fve Been
Losing You, Cry Wolf og Manhattan Sky-
line. Platan sjálf fékk jafnvel betri dóma en
Hunting High and Low og voru þó dómarnir
uni hana ekkert slor.
Nýjasta afkvæmi þeirra þremenninga er svo
titillag nýjustu James Bond-myndarinnar. Það
lag nefnist The Living Daylights og mun þá
væntanlega verða á þriðju breiðskifu þeirra
en ekki er enn vitað hvenær hún kemur út.
Það hefur verið sagt að veröldin komi
manni sífellt á óvart. I dæmi drengjanna í
a-ha er hægt að segja þetta með vissu. Fyrir
einungis þrem árurn ferðuðust þeir um eins
og hverjir aðrir norskir strákar á ódýrasta
farrými en í dag hafa þeir heilu þoturnar, lírn-
ósínurnar og annað þess háttar fyrir sig og
geta varla farið út fyrir hússins dyr vegna
ágangs aðdáenda. Þrátt fyrir allt þetta segjast
þeir vera þeir sörnu og fyrir þrem árum, klæð-
ast gallafötum eins og þá og annað þvíumlíkt.
Þeir leggja líka áherslu á að þótt þeir búi í
Englandi, syngi á ensku og tali hreimlausa
ensku þá séu þeir og verði alltaf Norðmenn.
BREIÐSKÍFUR:
Hunting High and Low.
Scoundrel Days.
AÐDÁENDAKLÚBBUR:
a-ha Fan-Club.
The Post Office.
High Street.
Headleey, Bordon, Hants.
GU 35, ‘8 BQ England.
NAFN: Pál Waaktaar.
FÆDDUR: 6. september
1961.
HÆÐ: 183 cm.
HÁRAL: Ljós.
AUGNL: Blágrænn.
MAKI: Lauren Savoy.
NAFN: Magne Furuholmen
FÆDDUR: 1. nóvember
1962.
HÆÐ: 186 cm.
HÁRAL: Ljós.
AUGNL: Blár.
MAKI: Heidi Rydjord.
* X
29. TBL VIKAN 47