Vikan


Vikan - 14.01.1988, Qupperneq 17

Vikan - 14.01.1988, Qupperneq 17
'STRADAMUSAR en hafði tekið kristna trú og Michel var alinn upp í kaþólskri trú. Hann reyndist afburðar námsmaður og varð frægur fyrir læknisverk sín. Ein ástæð- an fyrir því að honum gekk svona vel sem lækni hefur sjálfsagt verið sú að hann neitaði að „blæða" sjúklinga sína. Snemma á sextándu öld var það talið allra meina bót að taka blóð af fólki og því veikara sem það var þeim mun meira blóð var tekið. Eins og nærri má geta kostaði þetta fjölda manns lífið. Nostradamus var líka á undan sinni samtíð á öðrum sviðum. Hann setti til dæmis fram þá kenningu að jörðin gengi umhverfis sólina, hundrað árum á undan Galileó. Spádómsgáfa hans varð lýðum ljós árið 1555, þegar hann gaf út hina fyrstu af tíu spádómabókum sínum. Bækurnar báru allar nafnið „Aldir“ og hver þeirra hafði að geyma hundrað spádóma í bundnu máli. Nostradamus fór ekkert dult með það hvernig hann fór að því að sjá fram í tímann. Hann fyllti skál af vatni, setti hana á þrífót og starði svo oní hana, ekki ólíkt því sem sjá má til spákvenna með kristals- kúlur. Öðru hvoru kom þó spádómsgáfan yfir hann án þessara tilfæringa. Dag nokkurn, þegar hann var að ferðast um Ítalíu á sínum yngri árum, féll hann að fótum munksins Felice Peretti, sem hann mætti á götu. Munkinum og öðrum viðstöddum til mikillar furðu sagði hann: „Ég krýp fyrir hans heilag- Ieika.“ Árið 1585 var munkurinn krýndur páfi, Sixtus fimmti. Öðru sinni var Katarína af Medici í heimsókn hjá Nostradamusi og hreifst hann þá mjög a-f ungum manni í föruneyti hennar. Hann lýsti því yfir að sá ætti eftir að verða konungur Frakklands. Sveinninn ungi var Hinrik af Navarre sem varð Hinrik fimmti. Franskur aðalsmaður reyndi eitt sinn að rugla spádómsgáfu Nostradamusar. Hann bað hann um að segja fyrir örlög tveggja grísa sem voru í stíu hans. Nostradamus svaraði því til að aðals- maðurinn myndi éta svarta grísinn og úlfur þann hvíta. Aðalsmaðurinn lét samstundis slátra hvíta grísnum og hugðist snæða hann um kvöldið til að hnekkja spádómnum. Hann bauð Nostradamusi til matar með sér, hvað hann þáði. En þegar steikin var borin fram um kvöldið breyttist sigurbros gestgjafans í furðusvip þegar honum var tjáð að taminn ylfingur hefði stolið kjötinu af hvíta grísinum og að það væri sá svarti sem hér væri fram borinn. Nostradamus sagði fyrir um eigin dauða árið 1566. Skömmu fyrir andlát- ið lét hann grafa ártal á málmplötu og gaf fyrirmæli um að platan skyldi sett í kistuna með honum. Árið 1700 var orðstír Nostradamusar orðinn slíkur að ákveðið var að flytja jarðneskar leifar hans í virðulegri og meira áber- andi gröf - fyrir þá sem komu til að votta honum virðingu sína. Hann var því fluttur úr þeirri gröf sem hann hafði gist í 134 ár og þá fannst málm- platan sem hann hafði látið grafa með sér. Á henni var ártalið 1700. Til að komast hjá því að vera dreg- inn fyrir rannsóknarréttinn og sakaður um galdra átti Nostradamus það til að skrifa spádóma sína ruglingslega. Hann skrifaði á mörgum tungumálum og notaði ýmis torskilin tákn. Þetta hefur orðið til þess að ýmsir spádómar VIKAN 17 i

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.