Vikan - 15.12.1988, Page 20
VIKAN/FRAMANDI
Það er einkar gimilegt í ár jólamatarborðið hjá þeim Framandamönnum Þórami
Guðmundssyni, Bjarka Hilmarssyni, Emi Garðarssyni og Sverri Halldórssyni, enda er
hér um að ræða þríréttaðar máltíðir fyrir aðfangadagskvöld, jóladag og annan í
jólum.
Umsjón: Bjarki Hilmarsson, Sverrir Halldórsson,
Þórarinn Guðmundsson, Örn Garðarson og
Baldur Sæmundsson
Myndir: Magnús Hjörleifsson
Girnilegra jólmatborð en okkar á
Vikunni gefur vart að líta. Fjórir
matreiðslumenn úr Framanda-
klúbbnum, Bjarki Hilmarsson,
Sverrir Halldórsson, Þórarinn Guðmunds-
son og Örn Garðarson löguðu matinn og
nýliði í klúbbnum, Baldur Sæmundsson,
lagði á jólaborðið en Baldur er hvoru
tveggja kokkur og þjónn og starfar á Grill-
inu á Hótel Sögu.
Til þess að lesendur Vikunnar þyrítu
ekkert að vera að brjóta heilann yflr því
hvað hafa ætti í matinn yflr hátíðarnar, þá
útbjuggu meistararnir rétti íyrir þrjár
máltíðir sem hugsa má sér sem jólamatinn
á aðfangadagskvöld, jóladag og annan í
jólum. Hér er bæði um að ræða rétti sem
eru hefðbundnir fyrir suma, en aðrir ættu
auðveldlega að geta eldað eftir uppskrift-
unum hér — þannig að þeir verða kannski
að jólahefð héðan í firá. Þetta eru réttir
eins og t.d. rjúpur á gamla mátan og rauð-
vínssoðinn hamborgarhryggur. Aðrir eru
nýstárlegri, en ekki síður ljúfifengir.
Allir vilja borða vel og mikið á jólunum
þannig að hér er gert ráð fýrir að borðaður
sé.forréttur, aðalréttur og ábætir. Aðalrétt-
ir eru þrír, en forréttir og ábætisréttir
fjórir. Hver og einn getur síðan raðað sam-
an eigin matseðli fýrir hátíðardagana þrjá
og við ábyrgjumst að enginn verður svik-
inn sem matreiðir eftir uppskriftunum
þennan góða og girnilega jólamat. □
OFNSTEIKT LAMBALÆRI
MEÐ HVÍTLAUK OG MINTUHLAUPI
FYRIR 5
1 lambalæri
1 hvítíaukur
100 g mintuhlaup
salt, pipar
10 g kjötkraftur
1 lítri vatn
maizenamjöl
Beinið (mjaðmarbeinið) er tekið úr lær-
inu og kjötið hreinsað af hæklinum. Þrír
hvítlauksgeirar eru klofnir í 4—6 hluta og
þeim stungið á víð og dreif í lærið. Krydd-
að með salti og pipar. Steikt í ofhi við
180°—200°C hita í 1 klst. Athugið að kart-
öflurnar eru settar með stuttu seinna.
Beinið og hækilkjötið er brúnað í potti.
Köldu vatni hellt í og fltunni fleytt af.
Kjötkrafti, salti, pipar og hálfúm hvítlauks-
geira bætt í. Soðið við vægan hita í 20 mín.
Sigtað, dálitlu af mintuhlaupinu bætt í og
jafnað með maizenamjöli. Þegar lærið er
steikt er það smurt með mintuhlaupi. Safa
úr ofnskúfíú er bætt út í sósuna.
Kartöflurnar eru skrældar, brúnaðar á
pönnu og kryddaðar með salti og pipar.
Soði bætt í og síðan eru kartöflurnar
bakaðar í ofni í 45-50 mín. við 180°—200°.
Meðlæti:
5 stórar kartöflur
salt, pipar
3 dl soð
1 dl oha
RJÚPUR
6 rjúpur
900 gr smáar kartöflur
120 gr sykur
100 gr smjörlíki
1 Vz 1 vatn
sarpurinn úr rjúpunum
1,2 kg ferskt grænmeti
50 gr gráðaostur
2 msk rifsberjahlaup
smjörbolla
2 dl rjómi
Salat:
3 epli
120 gr sellerí
100 gr sýrður rjómi
1 dl léttþeyttur rjómi
safi úr Vi sítrónu
salt og pipar.
Meðlæti: Brúnaðar kartöflur, ferskt
grænmeti, soðið.
20 VIKAN 27. TBL. 1988