Vikan - 15.12.1988, Side 22
VIKAN/FRAMANDI
Forrcttif
HRÁTT HANGIKJÖT
FYRIR 4
400 g hrátt innralæri
1 Cantaloupe melóna eða cavaillion
2,5 dl Sautem hvítvín
4 fersk jarðarber
3 matarlímsblöð eða
12 g Aspic (sjá uppl. á pakka um
notkun).
steinselja og jarðarber
Hangikjötið er skorið í mjög þunnar sneið-
ar, sem gengur best ef það er hálfírosið.
Melónan er skorin í báta og raðað upp á fat
eða disk og hangikjötið þar ofan á. Hlaupið
sett í miðjuna og skreytt með steinselju og
jarðarberjum.
Best er að gera hlaupið daginn áður:
Matarlímið er látið liggja í köldu vatni í ca.
10 mín. og síðan hrært vel saman við volgt
vínið. Geymt yfír nótt eða í 3—4 tíma. Dag-
inn sem á að nota það er það saxað eða
sett í blandara með smávegis víni í ca. 5
sekúndur.
Framreitt vel kalt. Gott er að drekka
þurrt hvítvín með.
HUMARSALAT
FYRIR 4
12—16 humarhalar í skel
1 msk saxaður laukur
1 msk söxuð steinselja
salt og pipar
Vi dl hvítvín
Sósan:
Vi dl humarsósa úr dós
1 msk sýrður rjómi
soðið af humrinum
3 msk tómatsósa
1-2 tsk koníak eða brandy
Grænmeti:
Iceberg
Lollo Rosso
Frisée salat
Steinselja
Litill pottur eða panna er smurð með
smjöri og söxuðum lauk og steinselju
stráð í botninn. Humarinn hreinsaður og
tekinn úr skel fyrir utan 4 sem notaðir eru
í skraut. Raðað í pottinn og hvítvíninu
hellt yfír og sett yfir hita. Þegar suðan
kemur upp er lok sett á og humarinn lát-
inn standa í soðinu í 3 mín.
í sósuna er öllu blandað saman og hrært
saman við gróft rifið kálið og humarinn,
sem hefur verið skorinn í litla bita.
Sett í skálar eða eina stóra skál og
skreytt með heilu humrunum og sítrónu.
Framreitt með grófu ristuðu brauði.
Vín: Þurrt hvítvín.
Skraut þarf ekkl að vera mikið til að
borðið verði jólalegt, eins og sést hér á
borðinu sem Baldur Sæmundsson þjónn
dekkaði. Borðið er reyndar í matsalnum
á Holiday Inn, en diskar og glös eru frá
Veiti sf og undirdiskar frá Tékkkristal.
Blómaskreytingin er frá Stefansblómum,
en jólalöberinn frá Erlu á Snorrabraut-
inni. En það eru fagurlega brotnar rauð-
ar servéttur sem gefa borðinu mestan
jólasvip. Þetta servéttubrot heitir því við-
eigandi nafrii stjama.
T
1. Fyrst er servéttan höfð slétt og síðan
hrotin inn að miðju (B) eins og örvamar
sýrta.
2. Pví ncest er servéttan brotin til helm-
inga þannig að kantamir snúi upp.
rt
£
\ N ' \ / N / V
3 Lengjan brotin í harmóníku eins
og myndin sýnir. Innra borð ser-
, véttunnar er dregið niður þannig
' að rétt hom myndist.
Nota þarf stórar servéttur.
4
4. Hér sést ofan á servéttuna þegar
þriðja stigi er lokið.
5. Servéttan toguð í sundur. Haldið við hana
að neðan og hún lögð á diskinn.
22 VIKAN 27.TBL. 1988