Vikan - 15.12.1988, Síða 24
VIKAN/FRAMANDI
SKYRTERTA
FYRIR 6 — 8
TERTUBOTN:
1) 5 eggjarauður
100 g sykur
1 egg
3—4 dropar vanilla
2) 5 eggjahvítur
25 g sykur
3) 125 g hveiti
Það sem tilheyrir hlutum nr 1 og 2 er
þeytt í sitthvoru lagi. Eggin þeytt vel sam-
an áður en sykri er hellt saman við. Þeytt
uns hvort tveggja er orðið vel stíft þá er
þessu blandað saman og hrært varlega í
með sleif. Hveitið sigtað og bætt út í smátt
og smátt.
Sprautað á bökunarpappírsklædda
bökunarplötu. Á sprautupokann er sett
túða með um 1 Vz cm opi og sprautaðir
um 30 litlir fingur, á lengd heldur styttri
en barmarnir á forminu. Einnig sprautaður
kringlóttur botn, sem passar á botninn á
forminu.
Bakað við 200°C í 6 mín. Sett strax á
kökugrind þegar tekið er úr ofninum.
SKYR,,MOU SSE“:
500 gr rjómaskyr
1 dl rjómi hálf þeyttur
1 dl rjómi
100 gr sykur má vera meira eða minna
börkur af 1 sítrónu, saxaður og safinn
kreistur úr
6 bl matarlím lögð í kalt vatn í 10 mín
leyst upp í volgum sítrónusafanum.
200 gr frosin hindber
2 dl ávaxtahlaup
Hafi menn borðað yfir sig af forréttinum og aðalréttinum, þá er bara að bíða dálitla
stund og láta sjatna í sér til að hafa lyst á ábætisrétti: Aftast hvílir heimalagaður
núggatís með Tobleronesúkkulaði á plötu úr möndlunúggati. Fremst, t.h., er hind-
berjaskyrterta, þá karamellubakaður ábætir og síðan ananas Charlotte.
Skyrið tekið út úr kæli 5 tímum áður en
á að nota það. Skyr, 1 dl rjómi, sykur og
börkur er þeytt saman í hrærivél í ca. 4
mín. Á meðan er matarlímið leyst upp og
rjóminn þeyttur.
„Spring" form er klætt með filmu og
fingrunum raðað meðfram köntunum,
dyfið ofan í skyrið til að festa saman, botn-
inn síðan settur í.
Rjómanum blandað varlega saman við
skyrið og síðan er matarlíminu hrært út í
með sleif, ath. matarlímið má ekki vera of
heitt (um 39°C).
Blöndunni hellt í mótið og sett í kæli,
geymt yfir nótt.
Næsta dag er hindberjunum raðað ofan
á og volgu hlaupinu hellt yfir. Geymt í kæli
í um 3-4 tíma.
Tertan er tekin úr forminu og sett á
disk. Gott er að bera fram hindberjalíkjör
með þessari tertu.
KARAMELLUBAKSTUR
FYRIR 15
1 1 mjólk
10 egg
250 gr sykur
3 appelsínur
200 gr sykur
1 dl vatn
Mjólkin er soðin með rilhum berki af 2
appelsínum. Eggjum og sykri er slegið
saman og mjólkinni hellt saman við, hrært
vel og látið standa. Safinn úr appelsínun-
um settur í lítil ofhföst form (um 15 stk.)
sem taka um 1 dl (t.d. souffle-form úr gleri
eða áli, einnig má nota litla bolla sem
mega fara í ofn).
200 gr af sykri og 1 dl af vatni er soðið
þar til það verður að karamellu og hellt í
form. Mjólkurblöndunni hellt í. Álpapptr
settur yfir hvert form og þau bökuð í
vatnsbaði við 150°C í 40 mín. Látið kólna
í bollanum og þá hvolft á disk, en safinn og
karamellan mynda sósu.
Þetta er nýjasta
tölublað Húsa og híbýla.
Þú getur ekki án þess verið.
Ef þú ert ekki nú þegar áskrifandi er ekki eftir neinu aö bíða. Síminn er 83122.
24 VIKAN 27. TBL 1988