Vikan - 10.08.1989, Síða 16
EFRI ÁRin
EFRI ÁRIN
Frh. af bls 14
gera í ellinni? Við hvað ætla ég að
skemmta mér? Hvers ætla ég að njóta?
Hvaða hlutverk ætla ég mér?
Það er engu síður mikilvægt að búa sig
andlega undir efri árin en að gera fjárhags-
legar ráðstafanir. Það verður æ algengara
að fólk lifl allt að tuttugu árum lengur er
starfsævin nær. Við þekkjum öll dæmi þess
að fólk, og þá einkum karlmenn, missi
áhugann á lífinu og deyi þegar það hættir
störfum. Því meira sem lagt hefitr verið í
starfið og því minna sem önnur áhugamál
hafa fengið að hreiðra um sig þeim mun
hættara er við þessari þróun. Vegna auk-
innar íhlutunar kvenna í stjórnunarstörf-
um er við því að búast að ævi kvenna þró-
ist í auknum mæli í þessa átt á komandi
áratugum. Vandinn er enn meiri erlendis
þar sem vonlaust er fyrir þá sem komnir
eru yfir fimmtugt að fá vinnu. Hvað er þá
til ráða?
Finninn Lauri Salonen rekur alþjóðleg
námskeið fyrir bankastjóra og stjórnendur
íyrirtækja og hefur aðsetur í Helsinki.
Hann tjáði mér að hann legði áherslu á að
eftir 42 ára aldur leitaðist fólk við að taka
aukinn þátt í félagsmálum og legði rækt
við sjálft sig og fjölskyldu sína. Hann lætur
þátttakendur í námskeiðunum teikna upp
kökumynd af lífi sínu. Á þessari mynd
kemur fram í prósentum hve miklum tíma
þeir eyða í fyrsta lagi í vinnu, þar á meðal
ferðalög, fundi og símtöl að heiman sem
tengjast vinnu; í öðru lagi í félagsstörf, svo
sem félagasamtök, hjálparstarf, mannúð-
armál og íþróttamál barna og unglinga; í
þriðja lagi í sjálfa sig, andlega og líkamlega,
þar með taldar listir, og fjölskylduna, til-
finningalega. Það tekur tíma að greina
sundur og tímasetja þessa þætti en útkom-
an er langoftast hrópandi ójafnvægi. Fæstir
þátttakendanna hafa áður gert sér grein
fyrir ástandinu og afleiðingum þess.
Lauri telur grunninn að andlegri og til-
finningalegri heilsu og skapandi og sveigj-
anlegri hugsun á efri árum liggja í jafnvæg-
inu milli þessara þátta. Því lengur sem
ójafnvægi varir þeim mun erfiðara er að
leiðrétta skekkjuna. En Lauri fullyrðir að
aldrei sé of seint að rétta sig við.
Félagsstarf aldraðra er öflugt orðið í
Reykjavík og er rekið á átta stöðum í
bænum. Á Akureyri, ísafirði og víðar er
einnig félagsstarf með ýmsu móti. Þetta
starf hefur orðið lyftistöng fyrir margan
eldri borgarann. Bæði er þar að finna
skemmtun og félagsskap en einnig hefur
margur fundið sér ný áhugamál. Sumir
finna sér áhugamál sjálfir, utan þessa fé-
lagsstarfs. Aðrir hafa haldið áhuganum á
námi og fræðslu og stunda slíkt í formi ætt-
ffæði, sögu eða háskólanáms af einhverju
tagi, svo eitthvað sé nefnt. Hér á eftir fara
viðtöl við fólk sem hefur fundið sér ýmis-
legt áhugavert til þess að fást við á efri
árum.
Heppin að
eiga mér
áhugamál
Fanney Helgadóttir er fædd á ísafirði
árið 1916. Hún fluttist til Reykjavíkur
og vann fyrst í herrafataverslunum, síðan í
London dömudeild í 11 ár, og að lokum í
Kjötveri í 13 ár, uns fýrirtækið var selt.
Það eru fjögur ár síðan.
„Ég hef haft áhuga á handavinnu í mörg
ár. Ég saumaði náttúrlega klukkustrengi og
svoleiðis, en fékk svo áhuga á harðangri.
Ég hef gert mikið af því að gera harðang-
ursmynstur í svuntur.
Mig hafði langað til að læra að skera út í
tré í mörg ár. Ég veit ekki hvers vegna en
mér fannst það fallegt. Ég áleit bara að ég
hefði ekkert í það. Svo var það árið 1982
að ég fór á sýningu hjá Hannesi Flosasyni.
Hann ætlaði að halda námskeið í tréskurði,
og ég innritaði mig.“
Síðan þá hefur Fanney skorið út fimm
fallegar veggklukkur, og gefið fjórar
þeirra. Hún kaupir bretti í verslunum og
sker út í þau, hún gerir litlar skrauthillur
og rósir á veggi, hún sker út rósir og lauf í
mahóní og gerir úr þeim nælur. Fanney
hefur einnig gert stærri veggmyndir úr
mahóní, sem er sá viður sem henni líkar
best að vinna með. Að vísu segir hún að
geti komið staðir í mahóní sem eru eins og
gler og vont að vinna úr þeim.
Fanney hendir aldrei neinu, og þess
vegna nýtir hún viðinn eins og best verður
á kosið, með því að skera út litla hluti í af-
ganga.
„Ég var heppin að vera búin að koma
mér upp þessum tveimur áhugamálum
áður en ég hætti störfum. Til þess að hitta
fólk fer ég svo þrisvar í viku í Gerðuberg
og spila, en það er hluti af félagsstarfi
aldraðra."
Fanney við eina veggklukkuna sem hún hefur skorið út en það eru ekki mörg ár
síðan hún hóf tréskurð.
16 VIKAN 16. TBL. 1989