Vikan - 10.08.1989, Page 20
Smokkfiskur
með tómatkryddsósu
Fiskur
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími 10 mín.
Höfundur: Snorri Birgir Snorrason
INNKAUP:
AÐFERÐ:
700 gr hreinsaður smokkfiskur
20 gr hveiti
salt, pipar, hvítlauksduft
og sítrónupipar
1 dl ólífuolía
2 msk smjör
2 msk sítrónusafi
T ómatkryddsósa:
300 gr niðursoðnir tómatar
1 msk basilikum
1 smátt skorinn laukur
1 hvítlauksgeiri
1 msk steinselja, smátt söxuð
Helstu áhöld: Panna
Ódýr □ Erfiður □ Heitur □
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
■ Smokkfiskurinn skorinn þvert þannig aö hann veröi í um 1 sm breiðum
hringjum.
■ Olían hituð vel á pönnu. Smokkfiskinum velt upp úr hveiti krydduöu eftir
smekk og settur í heita olíuna.
■ Notiö töng til að snúa smokkfiskinum við. Steikist gulbrúnn í um 1 mín.
á hvorri hlið. Smjörið ásamt sítrónusafanum sett út í síðast.
■ Ath.: Má alls ekki eldast of lengi því þá verður hann seigur.
■ Tómatkryddsósa: Allt sett í pott og suðan látin koma upp. Hitinn lækk-
aður og soðið í 30-35 mínútur.
Heitt spínatsalat
með reyktum lunda
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími 15 mín.
Höfundur: Sturla Birgisson
Salat
INNKAUP:
ADFERD:
600 gr hreinsað ferskt spínat
2 bringur reyktur lundi
3 sneiðar harðsteikt beikon
brauðteningar*
Sósa:
2 tsk worchestersósa
2 msk púðursykur
1 boili ólífuolía
1/2 bolli rauðvínsedik.
■ Lundinn skorinn í ræmur og beikonið skorið í litla teninga.
■ Lundi og beikon hitað á pönnu.
■ Sósan sett á pönnuna. Bitað spínatið sett út í og blandað vel saman við,
en snöggt. Brauðteningarnir settir út í.
■ Borið fram strax.
* Franskbrauð skorið í litla teninga og djúpsteiktir þar til þeir verða stökkir.
Einnig má rista þá á pönnu í vel heitri olíu.
Helstu áhöld: Panna
Ódýr □ Erfiður □ Heitur □
Kaldur □ Má frysta □ Annað: