Vikan - 10.08.1989, Qupperneq 29
RODDIN
hlustenda. Nefmælgi á sér stað þegar of
mikið loft fer gegnum neflð. Hálsinn lokast
að aftan og kemur í veg fyrir eðlilegt loft-
streymi. Afleiðingin er klemmt hljóð.
Þennan galla er hægt að laga með því að
læra að opna munninn og hálsinn að aftan
og rúnna sérhljóðana. Þá verður losun á
hljóðinu. Hér eru dæmi um orð sem eru
borin fram nefmælt. Æfðu þig á hverju
orði fyrir sig og mundu að halda hálsinum
opnum og afslöppuðum.
Undir, anda, enda, enginn, sýna, meina,
ein, reyna, stund, grund, æfing, umbun,
angan.
ÆFINGAR
Þú skalt gera þér grein fyrir því að þótt
þú haflr vanið þig á vissar aðferðir við að
mynda hljóð þarftu ekki að vera þannig að
eilífu. Reglulegar líkamsæflngar geta styrkt
líkamann. Á sama hátt getur röð einfaldra
raddæfinga styrkt röddina og breytt því
hvernig hún hljómar.
1. skref
Byrjaðu að raula með lokaðan munninn.
Raul er auðveldasta og fljótlegasta leiðin
til þess að finna styrkinn í röddinni. Það er
æfing sem þú kannast við. Flestir raula
heima hjá sér, yfir uppvaski, í sturtu eða
með útvarpinu. Svona áttu að byrja:
• Með lokaðan munninn raularðu röð
langra tóna. Langir tónar gefa nægan tíma
til þess að kanna eðlileg einkenni raddar
þinnar.
• Æfðu hvern tón fyrir sig, með því að
raula aðeins einn tón eftir hverja öndun.
• Prófaðu lága, mið- og háa svið raddar
þinnar en forðastu mjög djúpa eða mjög
háa tóna. Raulaðu aðeins tóna sem er
þægilegt að mynda. Andaðu eðlilega.
Leyfðu loftinu að flæða eðlilega út. Ekki
anda að þér meira lofti en þú gerir við
eðlilegt tal, annars stífnarðu bara upp. Þeg-
ar þér finnst loftið vera að þrjóta skaltu
sleppa tóninum og Ijúka honum. Andaðu
eðlilega að þér sama magni og fyrir síðasta
tón og byrjaðu næsta tón á sama hátt.
• Slappaðu af, ekki flýta þér með æf-
inguna.
• Á meðan þú æfir þig skaltu hlusta eftir
suði, titringi eða kitlingi. Hér eru nokkrar
myndir til samanburðar sem gætu hjálpað
við að greina hljóðið: Býfluga, ryksuga,
vélsög, utanborðsmótor, rafmagnsrakvél,
mal í ketti. Þessi atriði gefa það sem heitir
hljómur raddarinnar. Það er grunneigind-
in sem gefúr röddinni afl, dýpt og mildi.
Hún aðstoðar við að varpa röddinni og
gefúr röddinni vald. Hljómun finnst í effi
hluta líkamans, þar á meðal í höfði og
brjósti. Því fleiri svæði sem þú finnur tón-
inn á (vörum, nefi, hálsi, brjóstkassa) þeim
mun fyllra er hljóðið. Þegar þú ert farin að
geta fundið fyrir þessum titringi skaltu
finna þann hluta raddsviðs þíns (lága, mið-
eða háa) þar sem þú finnur fyrir mestri
hljómun. Það er þar sem rödd þín hljómar
mest. Ef það er meira suð eða meiri titr-
ingur í lægri hluta raddsviðsins er Ijóst að
eðlilega talrödd þín er lág.
• Reyndu að raula a.m.k. fimm eða tíu
mínútur á hverjum degi. Þú getur gert það
í sturtunni, á meðan þú klæðir þig, í bíln-
um eða jafnvel á göngu. Næst þegar þú tal-
ar fýrir ff aman fólk, hvort heldur er á fundi
eða kynningu, eða ef mikilvægt símtal er í
vændum, prófaðu þá að raula með lokaðan
munninn í nokkrar mínútur á undan. Það
er frábær leið til þess að opna út röddina
og láta hana hljóma sem best.
2. skref
Prófaðu að syngja. Flestir opna ekki
munninn og hálsinn nóg þegar þeir tala.
Vegna slæmra ávana hefur hljóðið
klemmst. Söngur opnar og slakar á munni
og hálsi, losar og styrkir hljóðið ffá þér.
Það er frábær æfing á röddinni og þú þarft
ekki að geta haldið lagi.
Þótt þú hafir vanið þig ó
vissar aðferðir við að
mynda hljóð þarftu ekki
að vera þannig til œvi-
loka. Röð einfaldra
raddœfinga geta styrkt
röddina og breytt því
hvernig hún hljómar.
• Byrjaðu á rauli með lokuðum munni.
Þegar þú hefúr raulað í nokkrar sekúndur
skaltu opna munninn og hálsinn.
• Láttu kjálkann síga eins og þú værir að
geispa og myndaðu ávalt hljóð, MA.
• Ekki stöðva hljóðið milli þess sem þú
raular og opnar munninn. Láttu raulið
leiða til opins hljóðs. Það væri hægt að
skrifa mmmmmmmmmmmmmmmAA.
• Andaðu eðlilega að þér, raulaðu og
opnaðu munninn aftur. Passaðu að munn-
ur og háls séu afslappaðir og opnir.
• Gerðu runu af þessum æfingum í a.m.k.
fimm til tíu mínútur og andaðu eðlilega
eins og fýrr getur.
• Farðu upp og niður eftir raddsviði þínu
og notaðu einn andardrátt á hvem tón.
• Reyndu að hlusta eftir og finna fýrir
hljómun, suði eða titringi í höfði og á
bringu. Því meira sem þú finnur fýrir því,
því betra. Ef þú átt í erfiðleikum með að
finna nokkuð skaltu leggja höndina ofar-
lega á bringuna á meðan þú syngur. Það
ætti að hjálpa til.
• ímyndaðu þér að þú sért að kalla á ein-
hvern, en ekki öskra eða skrækja! (Það
gæti offeynt röddina.)
• Leitaðu að hreinu, ffjálsu, opnu hljóði.
Það er mikilvægt til þess að röddin berist.
3. skref
Nú er komið að því að nota meðvitund-
ina sem þú hefúr öðlast um rödd þína á
hið talaða orð. Markmiðið er að röddin
verði sem hljómmest. Byrjaðu á að hægja á
venjulegum talhraða þínum. Þetta veitir
þér meiri tíma til þess að heyra og finna
hljómunina (suð, titring, frelsi og tær-
leika) í hverju orði. Gerðu meðvitaðar til-
raunir til þess að rúnna út og opna upp
sérhljóðana, eins og gert er í söng. Þetta
mun gera röddina hljómmeiri. Eftirfarandi
orð og setningar munu aðstoða þig við að
æfa sérhljóðana í tali þínu.
ORÐ
Agnarögn, andardráttur, efnalaug, úti-
lega, áfall, átrúnaður, undiralda, eðalborin,
óratími, málaliðar, almáttugur, óma,
andartak, erfidrykkja, apatetur, tónaflóð,
Ítalía, írafár, andófsalda.
SETNINGAR
Ég á aldrei ffí. Átök áttu sér stað. Ari er
á sjó. Þú ert úti að aka. Andartak á meðan
ég leita. Alltaf tekur óratíma. Ég á ekki til
orð. Ég þakka þér álitið. Úlfúðin magnaðist
ótt. ígerð í stórutá. Útgerð á Ítalíu.
• Æfðu fýrst orðin hvert um sig.
• Andaðu eðlilega.
• Finndu að losnar um munn og háls.
• Talaðu nokkuð hátt, leyfðu rödd þinni
að berast. Hún gæti komið þér á óvart. Ef
þú leyfir röddinni að berast hefurðu ffekar
tækifæri til þess að finna eðlilegt talsvið
þitt. Byggðu á náttúrulegum eiginleikum
raddarinnar því þá þarftu ekki að hafa
áhyggjur af því að hljóma hjákátlega eða
ócðlilega.
• Farðu rólega að öllu. Berðu ekki ffam
orðin svo hratt að þú finnir ekki fýrir
þeim. Ef þú finnur titring eða suð ertu á
réttri braut. Byrjaðu hægt og auktu hrað-
ann smám saman þangað til þú nærð eðli-
legum talhraða.
Eftir að þú ert farin að venjast orðunum
skaltu æfa setningarnar. Æfðu hverja setn-
ingu í einum andardrætti. Ekki stöðva
hljóðið milli orða, haltu hljóðinu gegnum
alla setninguna. Eins og með orðin skaltu
byrja hægt og auka smám saman hraðann
þangað til þú ert farin að tala á eðlilegum
hraða. Segðu setningarnar hátt og snjallt,
leyfðu hljóðinu að berast og finndu fýrir
setningunni.
Nú hefúrðu lokið hringnum ffá söng til
tals og frá orðinu til setningar. Þá er bara
eftir að innlima þessa aðferð í daglegt tal
þitt. Ein leið til þess að auðvelda þetta er
að lesa upphátt til þess að byggja upp
styrk og úthald. Byrjaðu á því að lesa þessa
grein upphátt. Þegar þú verður þreytt
skaltu hætta. Á morgun er nýr dagur. Það
sama gildir um raddþjálfun og hlaup. Byrj-
andi hleypur stuttar vegalengdir í fýrstu
og eykur svo smám saman. Það sama gildir
um röddina og um líkamann. Henni verð-
ur að halda við með reglulegum æfingum.
Tíu til fimmtán mínútur á dag geta skipt
sköpum. Mundu líka að það tekur tíma að
breyta gömlum venjum. Reyndu að vera
meðvituð um rödd þína og smám saman
verður nýja tæknin sjálfkrafa.
Skemmtu þér vel við æfingarnar og
njóttu nýju raddarinnar þinnar!
16. TBL 1989 VIKAN 27