Vikan - 10.08.1989, Blaðsíða 43
5NA5AC5A
Hvers vegna skyldir þú vilja drepa mig?
spurði hann furðu lostinn.
— Ég vil einmitt alls ekki drepa þig, svar-
aði hún. — Ég vil aðeins koma því þannig
fyrir að þú missir meðvitund.
— Já,... en hvers vegna?
— Vegna þess að þú laugst, svaraði hún
hljómlausri röddu.
Hann fálmaði ofan í vasa sinn eftir
marghleypunni og það var með naumind-
um að honum tókst að ná henni upp úr
honum. Hann reyndi að halda henni
stöðugri og beitti við það báðum höndum.
- Bittu strax að slagæðinni, skipaði
hann. — Annars drep ég þig...
— Nei, það gerir þú ekki, sagði hún og
reyndi að hafa vald yfir rödd sinni.
— Vegna þess að þú getur það ekki. Þú
hefur ekki þrótt til að þrýsta nógu fast á
gikkinn. Og þar að auki held ég að þú
mundir ekki skjóta mig jafhvel þó að þú
hefðir mátt til þess. Ég held nefiiilega að
þú sért ekki morðingi. Ef þú værir það,
mundir þú hafa drepið manninn sem ligg-
ur þarna frammi í anddyrinu. Slepptu nú
skammbyssunni svo að ég geti bundið að
slagæðinni. En dragðu það ekki. Ég vil ekki
að þú deyir. Ég er ekki heldur morðingi.
Marghleypan féll úr hendi hans niður á
gólfábreiðuna. — Þú hefúr unnið skákina,
sagði hann lágt.
Hún laut niður, tók upp marghleypuna
og lagði hana á arinhilluna. Svo flýtti hún
sér til hans, lyfti upp buxnaskálminni og
batt með hröðum handtökum fast að
slagæðinni.
— Guði sé lof, andvarpaði hún. — Þú lifir
þetta af. Ég var orðin svo hrædd um að þú
dæir af blóðmissi.
Hún rétti úr sér, tók kertastjakann og
gekk ffam í anddyrið; laut að manninum
sem lá þar bundinn á ábreiðunni. Hann var
að komast til meðvitundar aftur; það var
kominn roði í vanga hans og slagæðin var
allt að því eðlileg. Hún fór höndum um
hann, en gat ekki fundið að hann væri neitt
meiddur og hvergi blæddi úr honum að
því er hún gat séð. Hann var ekki í neinni
hættu. Hún þurfti einungis að skera á
böndin á úlnliðum hans og ökklum svo að
hann væri laus um leið og hann raknaði
við. Hún andvarpaði feginsamlega.
Þá heyrði hún þungan dynk inni í stof-
unni og hún hraðaði sér þangað inn. Særði
maðurinn lá á grúfú miðja vegu á milli
stólsins, þar sem hann hafði setið og arins-
ins. Hún kraup á kné við hlið hans og gætti
að því hvort bandið sem hún hafði reyrt
að slagæðinni væri eins og hún hafði geng-
ið frá því. — Það var heimskulegt af þér að
ætla þér þetta, sagði hún.
— Já, vitanlega er ég heimskingi, tautaði
hann loðmæltur. — Ég ætlaði að reyna að
ná í marghleypuna.
— Svona, vertu nú rólegur, fýrir alla
muni, mælti hún biðjandi. - Ég vil ekki að
þú deyir. Síst af öllu núna.
— Hvers vegna síst af öllu núna?
- Eftir að ég hef sannfærst um að þú
hafir ekki unnið honum neitt mein. Það
vissi ég ekki áður, sagði hún, næstum því
blíðlega.
— Þú hefðir ekki þurft að óttast það,
þvoglaði hann. — Ég... ég ber aldrei vopn...
á mér. Þetta er... marghleypan hans. Ég
hélt að hann... væri ekki heima... og svo
kom hann að mér... óvörum.
— Hvað var það, sem þú vart að sækjast
eftir? spurði hún.
— Heimskuleg spurning, svarði hann. —
Peningum... auðvitað. Tæmdi peninga-
skápinn. Og svo... komst ég ekki... burt
héðan. Rödd hans dó út og hann lokaði
augunum.
— Ekki að sofha, sagði hún fljótmælt.
Bíddu — ég ætla að ná í koníak.
Hann opnaði augun og starði á hana. -
Hvernig er það... varstu í rauninni villt?
Eða ertu kannsi keppinautur?
— Ég er að minnsta kosti ekki neinn
þjófur, ef það er það sem þú átt við.
- Nei, það hélt ég ekki heldur, umlaði
hann og lokaði enn augunum.
— Ekki að sofna, kallaði hún. Þú verður
að halda þér vakandi þangað til óveðrinu
slotar. Þá hringi ég á lækni og lögregluna.
— Lögregluna, já... auðvitað, umlaði í
honum. — Segðu mér eitt var ég svona
ósannfærandi... sem gósseigandi?
— Nei, alls ekki. Þú varst einmitt ákaf-
lega sannfærandi, svarði hún af hrein-
skilnislegri aðdáun.
— En hvernig vissurðu þá að ég var ekki
Catheart? Að ég átti ekki heima héma?
— Vegna þess að það er Catheart sem
liggur þama ffammi í anddyrinu. Það hitt-
ist nefnilega svo á að ég á sjálf heima
hérna. Ég er konan hans.
/ CófciJ i MWAW- HCL/i ÍK.- iT- LEiKFéL- fíF Fu<- CfíU 6.d FR'R DilELjft FEiT SKftuT S'ft zs. óftuRM KElM / ftfíjbft ftftF FftT/Jftft £
S*—
Ei'6.aJÍR_ FiíHi/JEX GELT U > Ö >
sm- 5TÆö/ FSLÐft poti z \/ > loaJ STftF OG a/ j/JK- tRb
/ CEST OLG /W3VT V E-ifíJfí Hv'“-fíST Hvílt TÍTT >
UA/ 3LEM R ’ > So/fíu- RÖLTifi- MÖÖKi * ► V • /
/£> »/ »/ SL'O ELSRft Hl/IlC)/ >
Íl!ht 5 . / REyKi Svil/ V (r SiGLi Fft'ft J > F SlftRF- RílKTÍ
(JlaJÍí/ v — V T 3 //Lifr U >
Tí Mrt- Oi L- GiPbDÍ > £>E TuR, TillftLj- 4 >
/ z J V r lo ? 8 9 STftF- ifJ/J ftft'S/JT ? • >
16. IBL. 1989 VIKAN 41