Vikan - 10.01.1991, Blaðsíða 21
Með endurkomu heildrænna kennlnga og aðferða í heilsurækt
hlýtur nuddmeðferð á nýjan leik verðugan sess meðal áhugafólks
um mannrækt sem og starfsfólks hellbrlgðiskerfanna.
Kápumynd bókarinnar „Bókin um náttúrulækningar" sem er
yfirgripsmesta bók sem út hefur komið á íslensku um hvers kyns
náttúrulæknlngar og lækningaleiðir. Útgefandi er bókaforlagið
Iðunn.
heldur einnig í tilfinningalífi,
hugafari og félagslegu um-
hverfi einstaklings. Vitað er að
stór hluti af sjúkdómum sam-
tímans á sér sállíkamlegar
orsakir. Sumir vísindamenn
vilja staðhæfa að að allt að því
90 prósent af algengustu sjúk-
dómum megi rekja til sál-
rænna þátta.
LEIÐIR TIL
SJÁLFSUEKNINGA
Heildræn heilsufræði kennir
að aukning alls konar sál-
rænna og líkamlegra sjúk-
dóma standi að hluta til í
sambandi við hraða og streitu
lifnaðarhátta í menningu nú-
tímans. Þá er ekki eingöngu
átt við óheilbrigða lifnaðar-
hætti hvað varðar skort á úti-
veru, hollu fæði og hreyfingar-
leysi heldur einnig tilfinninga-
lega og félagslega þætti. Vönt-
un á ást, mannlegri hlýju og
góðum félagslegum tengslum
getur þannig leitt til líkamlegra
sjúkdómseinkenna. Heildræn
heilsufræði bendir á að áhrifa-
máttur hugans til lækninga
hafi lítið sem ekkert verið not-
aður. Hún telur að möguleikar
mannsins í þá veru að hafa
áhrif á eigin bata séu meiri en
margir sjúklingar geri sér grein
fyrir.
Þeir sem starfa á sviði heild-
rænna lækninga álíta að
leggja þurfi meiri áherslu á að
fyrirbyggja sjúkdóma og leita
orsaka þeirra fremur en að
fást eingöngu við sjúkdóms-
einkennin þegar þau koma'
fram. Ýmsir sem starfa á þess-
um vettvangi leggja einnig til
að tryggja beri ekki aðeins al- \
menna heilbrigði heldur efla
það sem nefnt hefur verið
ofurheilbrigði (meta health).
Þetta þýðir að farið er handan
við almenna heilbrigði með því
að styrkja stöðugt heilsuna
með til dæmis líkamsrækt,
iðkun lífeflisæfinga, hugleiðslu
eða öðrum sálvaxtarleiðum.
Sumir kenna sjúklingum sín-
um aðferðir til sjálfslækninga.
Annað sem einkennir þessa
nýju heilsufræði er víðsýni
gagnvart lækningaaðferðum
fornra menningarsamfélaga.
Ýmsir frammámenn innan
hennar beita ekki aðeins fimm
þúsund ára gömlum nála-
stungulækningum Forn-Kín-
verja eða aðferðum úr jóga
heldur leita jafnframt í smiðju
til töfralækna frumbyggja
Ástralíu eða indíána Norður-
Ameríku. Föstur og heilun
með hjálp kristalla eru dæmi
um lækningaaðferðir af þessu
tagi.
Frh. á næstu opnu
1 TBL 1991 VIKAN 21