Vikan


Vikan - 10.01.1991, Qupperneq 25

Vikan - 10.01.1991, Qupperneq 25
Kfnverskl kokkurinn á myndlnnl hefur sannarlega ástæðu tll að brosa enda hefur hann llklega aldrei haft elns fagrar konur f mat. Fulltrúl íslands, Lfsa Björk Davíðsdóttir, f keppnlnni um titilinn ungfrú Evrópa á Taiwan. „Þeir gerðu mikið úr þessu, bæði sjónvarp og útvarp. Ég fór í eitt útvarpsviðtal þar sem ég var spurð um hagi mína, við fórum nokkrar saman í sjónvarpið og svo var þarna dagblað sem heitir Da-Min og birti myndir af okkur á hverjum degi." - Hvernig fór svo keppnin fram? „Hún var miklu erfiðari en sú sem ég tók þátt í hér á ís- landi." - Hvernig var aðbúnaður- inn? „Við vorum tvær saman í herbergi, ég og ungfrú Món- akó. Hún er sautján ára gömul en þarna voru þátttakendur upp f tuttugu og sex ára. Hó- telið var fínt og þetta var bara allt alveg rosalega gott. Ég kunni vel við hinar stelþurnar." - Hittust þið fyrst þarna úti? „Nei, við höfðum flestar hist í Zurich í Sviss, deginum áður en lagt var af stað til Malasíu og þaðan í tólf tímatil Taiwan.“ - Hvað er þér minnisstæð- ast úr þessari ferð? Lísa Björk veltir vöngum og lætur augun reika því að hún þarf að hugsa málið. „Thja,“ segir hún svo. „Upp- lifunin að hafa farið til Taiwan. Þarna er menningin og fólkið allt öðruvísi en maður á að venjast. Svo var gaman að kynnast stelpunum og fá jóla- kort frá þeim öllum." - Hvernig er maturinn þarna? „Hann er mjög sérstakur. Við fengum að smakka alls konar góðgæti. Þarna var eng- inn skyndimatur. Allt sem við fengum var æðislega flott, til dæmis sjávarréttirnir." - Kom eitthvað þér á óvart? Aftur þarf hún að hugsa málið en kemst svo að raun um að ekkert hafi í rauninni komið henni á óvart. „Skipulag keppninnar var mjög blátt áfram en keppnin sjálf var miklu erfiðari en hér heima," segir hún svo. „Ég held líka að við höfum haft gott af því að vakna svona snemma á morgnana." Frh. á næstu opnu Ungfrú Evrópa 1990 er frá Sviss og var herbergisfélagi Sigrúnar Jónsdóttur sem var fulltrúi íslands í keppninni „Queen of the World“ f Þýskalandi i október. M 'm H& t \ Jk f Fegurðardrottningar í boði utanrikisráðherra Taiwan. 1.TBL1991 VIKAN 25

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.