Vikan


Vikan - 09.01.1992, Side 12

Vikan - 09.01.1992, Side 12
 A Poppstjarnan umkringd Ijósmyndurum og fréttamönnum eftir komuna til Keflavfkur. Bryan Adams brosir við áhorfendum í Höllmni. hans mestu áhrifavaldar í . y^v. rokktónlist stóð ekki á svari. „Bítlarnir eru mínir áhrifavald- l*^.'**V ar númer eitt,“ sagði hann ákveðinn. Hann heldur mest fv upp á aðra plötuna sína, You Want It You Got It, sem kom út árið 1981. Ástæðuna segir I -KV hann vera þá að ekki hafi tekið ;X *A nema þrjár vikur að taka hana Hver er svo helsti metnaður hans í lífinu, að því undan- skildu að spila rokktónlist? „Að fá góðan nætursvefn," segir 4 VI Bryan Adams og hlær. * \ NÝ REYNSLA AÐ aflýsa TÓNLEIKUM Eins og flestir vita fór allt í hund og (jóla)kött í Höllinni kvöldið sem fyrri tónleikarnir áttu að vera. Þrátt fyrir að af- lýsa varð tónleikunum tóku áhorfendur þessu furðuvel, einhvers staðar hefði senni- lega komið til allsherjar óeirða. „Það er algerlega ný reynsla fyrir mig að lenda í svona lög- uðu. Ég hef aldrei á ferli mín- um þurft að aflýsa tónleikum. Við spiluðum fjörutíu tónleika [ Evrópu áður en við komum Svona lítur hvalverndunarsinninn Bryan Adams út án gitarsins. Ósköp venjulegur maður. hingaö og ekkert kom upp á - ekkert. Þannig að það var svo- lítið skrýtið að koma í hús sem stóð ekki undir kröfunum sem til þess eru gerðar. Rafkerfið í húsinu virkaði einfaldlega ekki og okkar kerfi kom þarna hvergi nærri. Það er gallalaust. Þetta minnir mig á þegar ég tók þátt i uppfærslunni á The Wall með Roger Waters í Berlín 21. júlí 1990. Þar voru 250.000 áhorfendur (blaða- maður skaut því að honum að það væri íbúafjöldi íslands) og hljómkerfið var upp á fimm þúsund kílóvött og kostaði 9 milljónir dollara (rúmar 500 milljónir króna). Þegar fimm mínútur voru liðnar af sýning- unni klikkaði einn rofi sem kostaði níu dollara! Við urðum samt að halda áfram vegna þess að allt var í beinni sjón- varpsútsendingu. Sem betur fer var vararofi tiltækur en hér var ekkert hægt að gera á stundinni. Vonandi verða ekki fleiri vandamál hjá ykkur af þessu tagi og því fleiri lista- menn sem koma hingað að spila því ólíklegra er að svona hlutir gerist. Menn verða betur undirbúnir og með meiri reynslu.“ Bryan segir að þetta ár hafi verið mjög gott fyrir sig og á næsta ári verður jafnmikið ef ekki meira að gera hjá honum. í janúar spilar hann í Kanada, í Ástralíu, Nýja Sjálandi og Japan. í febrúar, í mars, apríl og maí tekur hann Bandaríkin fyrir. Júní og júlí verða tileink- aðir Evrópu og í ágúst og september fer hann aftur til Bandaríkjanna og Kanada. "Þetta heitir að vera á ferð og flugi. Þetta er atvinna rokk- stjörnunnar Bryans Adams sem útilokar ekki að hann komi hingað aftur, ef þess verður óskað, en segir að það væri sennilega heppilegra að koma um sumartíma og spila á útitónleikum. □

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.