Vikan - 09.01.1992, Blaðsíða 38
TEXTI: HJALTIJÓN SVEINSSON
GAMANLEIKHÚSIÐ ENN Á FERÐ
Gamanleikhúsið nefn-
ist allsérstakur
leikhópur ungs fólks.
Kjarni hópsins hefur starfað
saman að leiklist síðan krakk-
arnir voru í barnaskóla og þeir
hafa vaxið upp með leikhúsinu
sínu - og leikhúsið með þeim.
Áhuginn leynir sér ekki enda
væri slík starfsemi ekki mögu-
leg nema hans nyti við ( mikl-
um mæli. Forsvarsmaður
hópsins hefur frá upphafi verið
ungur og vaskur sveinn sem
nú er við nám i Menntaskólan-
um í Reykjavík, Magnús Geir
Þórðarson.
í byrjun febrúar mun Gam-
anleikhúsið hefja sýningar á
söngleiknum Grænjöxlum eftir
Pétur Gunnarsson, sem samdi
textann, og Spilverk þjóðanna,
sem sá um tónlistarhliðina.
Sýningar verða á litla sviðinu í
Borgarleikhúsinu.
Grænjaxlar er ærslafullur
’söngleikur sem sló í gegn
▲ Söng-
leikurinn
Grænjaxlar
fjallar um lif
nokkurra
unglinga
þangaö til
þeir eru
komnir á
giftingar-
aldur...
►
Leikhópur-
inn sá
sjálfur um
leikmynd og
búninga
eins og
ævinlega.
Úr uppfærslu Gamanleikhúss-
ins á Grænjöxlum. Foringi
hópsins og stofnandi, Magnús
Geir Þóröarson, hefur hér
brugðið sér í gervi lögreglu-
manns.
meðal ungs fólks á sínum
tíma en verkið var fyrst sett
upp af leikhópi úr Þjóðleikhús-
inu á Kjarvalsstöðum árið
1977. Verkið segir frá upp-
vaxtarárum fjögurra einstakl-
inga í íslenskri samtíð. Við
fylgjumst með Kára, Grétu,
Láru og Dóra frá því þau eru í
leikskóla og þangað til þau eru
komin yfir tvítugt. Tekið er á
ýmsum skemmtilegum atburð-
um barna- og unglingsáranna
og fjallað um þau á opinskáan
hátt og af mikilli kímni.
Gamanleikhúsið frumsýndi
Grænjaxla þann 4. júlí síðast-
liðinn í Islensku óperunni en
sýningar þar urðu aðeins þrjár
vegna leikferðar hópsins til
Hollands og írlands. Nú ætla
krakkarnir sum sé að taka
þráðinn upp að nýju.
Leikendur eru þau Auður
Sverrisdóttir, Bryndís Björk
Ásgeirsdóttir, Hólmfríður
Lýdia Ellertsdóttir, Magnús
Geir Þórðarson, Magnús Þór
Torfason og Ragnar Kjartans-
son.
Grænjaxlar eru áttunda verk
Gamanleikhússins á þeim sex
árum sem það hefur starfað.
Hópurinn hefur auk þess tekið
þátt í fimm leiklistarhátíðum
erlendis og hefur staðið fyrir
námskeiðum á sviði leiklistar
fyrir ungt fólk. Hér er á ferðinni
framtak sem vert er að taka
ofan fyrir og fylgjast með.
Góða skemmtun! □
34 VIKAN