Vikan - 09.01.1992, Blaðsíða 33
Hollenskt
stjörnu-
kort frá
sautjándu
öld.
þess skýrleika og nákvæmni sem einkennir
hann. Hluti mannssálarinnar verður að vera
kaldur og útsmoginn, nógu lævís til að lifa
etnisheiminn af. Hluti af okkur nýtur sjálfsaga,
sækist eftir yfirburðum og borgar trúfestuna
háu verði. Einhvers staðar í lífi okkar er svæði
þar sem ekkert nema það besta í okkur er
nógu gott. Það er hið háleita ríki Satúrnusar. Á
lægri stigum hans lítum við á þessar áskoranir
og hjörtu okkar verða að ís. Við frjósum af
hræðslu og örvæntingin nær á okkur tökum.
ÆÐRULEYSI í HILDUM LÍFSINS
Naut er stöðuga jarðarmerkiö. Stöðug merki
leita varanleika og eru þrjósk og óhagganleg til
orðs og æðis. Þau eru einnig viljasterk og eru
oft kölluð valdamerki. Nautið er ráðríkt en fer
þó vel með það. Stöðugu merkin eru alla jafna
trygglynd og eiga erfitt með að breyta sér.
Þeim hættir því til að festast, bæði í jákvæðu
og neikvæðu fari. Hin blíða Venus er pláneta
Nautsins. Venus sér um að draga úr spennu
og viðhalda jafnvægi því hún einblínir ávallt á
ytri og innri frið. Sem slík er Venus fulltrúi
fegurðarskynsins - litasmekks, form- og tón-
listarsmekks. Hvers vegna? Vegna þess að
skynjun á fegurð sefar mannshjartað. Venus
stjórnar einnig tengslum okkar og venslum,
rómantíkinni í lífi okkar, kurteisistilfinningu og
næmi, svo og vinavali. Venus á sér undan-
tekningarlaust eitt markmiö: að viðhalda æðru-
leysi okkar meöan á hildum lífsins stendur.
í ÞJÓNUSTU VIÐ MANNKYNIÐ
Meyja er breytilega jarðarmerkið. Breytilegu
merkin eru sveigjanleg og opin fyrir nýjum
möguleikum en getur skort festu og úthald.
Sjálfsmynd og vilji fólks í breytilegum merkjum
tekur því oft örum breytingum. Þau eru forvitin,
öðlast með tímanum fjölbreytta reynslu og oft
eru þau kölluð merki þekkingar og lærdóms.
Hinn vængjaði sendiboði guðanna, Merkúr, er
pláneta Meyjunnar. Merkúr þýtur umhverfis
sólina á áttatíu og átta dögum og það gerir
hann að hraðgengustu plánetunni. Á sama
hátt þýtur hann um höfuð manns. Hann er sá
hluti manns sem aldrei ann sér hvíldar - kveik-
ir stöðugt í taugamótum meðan greindin berst
við að búa til skipulega mynd af veröldinni.
Merkúr er fulltrúi hugsunar og talmáls, lær-
dóms og íhugunar. Hann er hinn mikli áhorf-
andi, ávallt fullur forvitni. Hann er einnig fulltrúi
sjálfra skilningarvitanna og allra hinna hráu,
ómeltu upplýsinga sem í gegnum þau fara.
KERFI í ENDURSKOÐUN
Kerfismerkið mikla, Steingeitin, fær aukna
áherslu um þessar mundir, meðal annars
vegna veru bæði Úranusar og Neptúnusar í
merkinu sem boðar endurvakningu gamalla
gilda auk ýmissa óvæntra uppákoma. Ára-
tugurinn fram undan virðist ætla að verða tími
upplýsinga og fræðslu. Satúrnus, stjórnunar-
pláneta Steingeitar, ýmist kölluð pláneta aga
eða kennslu, er í Vatnsbera og veitir okkur þar
innblástur til að græða helstu þjóðfélagsmein
okkar plánetu, á við kynþáttafordóma og
stéttahatur.
Steingeitin er þjóðfélagsmerkið og stjórnar
tíunda húsi eða því húsi sem táknrænt er fyrir
embættisvaldið og stofnanir þjóðfélagsins. Tí-
unda hús og miðhiminn eru eitt og hið sama
svo plánetur í tíunda húsi eru oft meira áber-
andi en annað í kortum fólks. Samfélag - það
er lykillinn að tíunda húsi. Hvaða staður er þér
ætlaður á þinni menningargrein? Hvaða hlut-
verk leikurðu þar? „Hann er svæfingarlæknir."
Það er tíunda-húss yfirlýsing. En setningin
„Hún er kvenréttindakona" er það einnig. Þó
hún fái ekki krónu fyrir að vera kvenréttinda-
kona segir það samt eitthvað um hattinn sem
hún ber í samfélaginu.
Plánetukennarar tiunda húss gera tvennt
fyrir þig. I fyrsta lagi leggja þeir línuna að
„kosmískri starfslýsingu" þinni. Það þýðir að
þeir gefa þér vísbendingu um það hlutverk
sem þór var ætlað í samfélaginu. Þvf miður
gera þeir það ekki sérlega vel; það fyrirfinnast
milljónir hlutverka en aðeins tíu plánetur svo
starfslýsingar þeirra eru fremur óljósar. í besta
tilviki er aðeins hægt að nota þærtil að styðjast
við.
Kennurum tíunda húss tekst betur upp með
að benda þér á sitthvað í þínu eigin fari sem
þjálfa þarf á róttækan hátt áður en þér verður
köllun þín Ijós. Taktu tillögum þeirra vel, fylgdu
þeim og þú munt hafa varanleg áhrif á goð-
sagnir og tákn þíns samfélags.
l.TBL. 1992 VIKAN 29