Vikan


Vikan - 09.01.1992, Blaðsíða 58

Vikan - 09.01.1992, Blaðsíða 58
JÓNA RÚNA KVARAN Frh. af bls. 53 hunsar þinn vilja fullkomlega og neitar að taka mark á honum verður þú náttúrlega að fara aðrar og óskemmtilegri leiðir. Öll áreitni, hvort sem er líkamlegs eða andlegs eðlis, er röng og mögulega refsiverð. Rétt væri í þínu tilviki að kynna þér hver réttur þinn er gagnvart áníðslu konunnar, ef að þinu mati er afdráttarlaust um að ræða valdbeitingu hennar við þig, fullkom- lega gegn vilja þínum. í þessu tilviki er ég að ræða atvikin eins og þau blasa við þegar þessir þrír koss- ar voru framkvæmdir. Það er engin spurning að allt atferli okkar hvert við annað sem ber minnsta keim ofbeldis er rangt og trúlega refsivert, ef það er skoð- að og skilgreint sem athöfn þar sem freklega er með einhvers konar valdbeitingu troðið á okkur, án þess að við getum með nokkrum leiðum varið okkur. SKERT FRELSI Á VINNUSTAÐ Konur, sem eru vísvitandi að tæla og táldraga karlmenn, eru sekar um rangt atferli og ber að af- greiða slíkt á nákvæmlega sama máta og um væri að ræða sömu framkvæmd karls við konu. Þú talar um að þú sért nokkuð myndarlegur og gefur þar með í skyn að það kunni að erta konur. Vissulega getur það verið rétt en málið er bara að líkamsburður þinn er ekki sviðsettur áreitnisvaldur heldur ertu ein- ungis svona frá náttúrunnar hendi. Það eitt og sér á ekki að gera þér ókleift að umgangast konur og alls ekki að hafa þau áhrif á atvinnumöguleika þína að þeir minnki fyrir bragðið. Ef um er að ræða fjötra og frelsisskerðingu vegna kynferðislegrar áreitni á vinnustað er það óviðun- andi og engin ástæða til að þola það. Þú ert, eins og þú bendir sjálfur á, einfaldlega svona kynþokkafull- ur, án þess að ýta undir það. Þannig verður það væntanlega í nánustu framtíð svo það er eins gott fyrir þig að gera þér fulla grein fyrir hvernig þín sjálfsvörn á að vera í þessum efnum. Þú virðist óaf- vitandi koma kynkirtlum kvenna í meiri háttar kreppu væntinga, sem þú óskar ekki eftir að verða þátttakandi í. Svo, elsku drengurinn minn, þú verður að fá á hreint hvað langt þú getur leyft konu að ganga án þess að bregðast skjótt og sterkt við til að mótmæla þeirri áreitni sem þú telur þig verða fyrir af hennar völdum. Ef umvöndun á nótum vináttunnar dugar ekki verður þú að grípa til annarra og ögn stórtækari aðgerða. Við íhugum hluta af hugsanleg- um möguleikum þínum ögn seinna í svari mínu. STELPUR í FLEGNUM TOPP OG STRÁKAR í HJÓLABUXUM Til eru konur sem leggja töluverða vinnu í undir- búning þess að kveikja kynferðislega löngun karl- manna, sér í lagi þeirra sem þær kjósa að ganga í augun á kynferðislega. Þegar þannig er ástatt í huga konu virðist litlu skipta hvort hún er í vinnunni eða ekki. Það er eitthvað mjög óeðlilegt við að klæða sig eins og tröllvaxin barbídúkka á leið til vinnu, alveg eins og um ferð á tískusýningu væri að ræða, þar sem meiningin væri að vinna til verðlauna út á kynþokka og annað atferli. Útlit konu, sem mið- ast við að virka eggjandi á karlmann á vinnustað, er svo sem engin ný bóla ef betur er að gáð. Varla ætti samt það eitt að nægja, ef við erum staðföst og ráðvönd í kynferðismálum, til að karlmaður beinlínis vegna kynæsandi útlits kvenvinnufélaga síns hafi neina ástæðu til að ráðast á viðkomandi og láta gamminn geisa kynferðislega. Vinsamlega handskrifiö bréf til Jónu Rúnu og látið fylgja fullt nafn og kennitölu, ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi Jónu Rúnu og rithandarlestri og því miöur er alls ekki hægt aö fá þau í einkabréfi. Utanáskriftin er: Jóna Rúna Kvaran, Kambsvegi 25, 104 Reykjavík.i Aðdraganda þannig endaloka er sennilegast búið að þróa jafnframt með glannalegum klæðnaði kon- unnar og trúlega með þónokkru daðri líka, þó ekki sé það regla. Það gefur augaleið að kona, sem er með bert niður á brjóst, getur haft sama aðdráttarafl á hvaöa normal karlmann sem er eins og karlmaður á konu, sá sem kæmi til vinnu í þröngum hjólabux- um. Vissulega getur þannig fatnaður haft kynferðis- leg áhrif á konu sem þannig er innstillt að hún verði undantekningarlaust fyrir kynferðislegum áhrifum þegar vöxtur karlmanns neðan nafla er undirstrikað- ur með þannig umbúnaði. RÚLLUKRAGABOLIR OG GRÓFAR FLAUELSBUXUR Eins má með sanni segja að kona, sem venur sig í vinnu á klæðnað sem undirstrikar ekki bara brjósta- mál hennar heldur líka lögun þeirra og áferð, veldur mögulega spennu meðal strákanna og býður því heim möguleikum á hvers kyns daðri og annars konar kynferðislegu atferli. Það getur síðar valdið henni óþægindum þó alls ekki hafi verið reiknað með þvi í byrjun. Hún var bara að eigin mati að vekja áhuga og aðdáun hins kynsins. Slíkt hátterni hentar alls ekki á vinnustöðum. Ef kona vegna útlits síns, sem hún visvitandi undirstrikar með glanna- legum klæðnaði í vinnu, lendir í vandræðum með hitt kynið og svo aftur strákur af sömu ástæðu, ættu þau að endurskoða klæöaburð sinn hið snarasta og velja fremur rúllukragabol eða þykkar flauelsbuxur. Þannig klædd er nokkuð Ijóst að hvorugt kynið veld- ur hinu ýkja miklum vandræðum - nema náttúrlega viðkomandi búi yfir kynþokka sem augljóslega ligg- ur í öðru og kannski mun áhugaverðari nærveru. Enginn ætti vísvitandi að ögra umhverfi sinu með því að undirstrika kyntöfra sina í skökkum aðstæð- um. Hefðbundinn, látlaus klæðnaður kynjanna verður aldeilis ekki til að trufla eða æsa beint kyn- ferðislöngun vinnufélaganna, þó auðvitað verði að viðurkennast að til eru strákar sem geta verið kyn- æsandi jafnvel með grifflur og í gamalli lopapeysu sem er lokuð frá miðjum lærum og upp í háls. Þess vegna má segja að bæði sé hægt og ekki hægt að ýta undir daður og framkomu sem verður að teljast kynferðisleg - með skökkum klæðaburði ef því er að skipta. KLÆÐNAÐUR SEGIR EKKI ALLT UM KYNÞOKKA Þó ekki sé beinlínis meiningin að valda verulegum vandræðum með óviðeigandi klæðaburði á vinnu- stað er ágæt regla fyrir konur, sem virðast fremur velja að tefla djarft í klæðaburði en karlar, að endur- skoða sem fyrst þannig atferli. Óski þær ekki eftir að virka kynæsandi og mögulega valda vandræöum er að minnsta kosti engin ástæða til að gera vísvitandi í að svo verði með glannalegum klæðnaði. Með þessari athugasemd er alls ekki verið að gera karl- menn að viljalausum verkfærum kvenna sem klæð- ast ósæmilega. Karlmenn virðast sem betur fer oftar en ekki heill- ast mun meira að konum sem hafa eitthvað annað til að bera en einungis laufléttan, óþarflega eggjandi klæðnað heima og heiman og er það ekki orðum aukið. Útlit fólks segir ekki alla sögu þess sem betur fer og það þarf ekki endilega að bera i sér nema part af kynþokka þess. Rödd, vit, framkoma, hæfi- leikar og skaphöfn hafa meðal margs annars heil- mikið að segja um kynþokka beggja kynja. Þvi er engin sérstök ástæða til að eyða bæði tíma og fyrir- höfn í klæðnað sem bersýnilega er ögrandi á rangri forsendu á vinnustöðum. HREINSKILNI BORGAR SIG Hvað varðar sektarkennd þína vegna þess hvernig konan hundeltir þig er þetta að segja. Þú ert búinn að segja henni að þú óskir ekki eftir atlotum hennar og kynferðislegum áhuga á þér. Láti hún sér ekki segjast er eðlilegt að þú berir þennan vanda undir yfirmann ykkar beggja og fáir hann til að vanda um við konuna. Ef það ekki dugar áttu ekki annað val en að kæra hana einfaldlega og þá fyrir ítrekaða kynferðislega áreitni á vinnustað, áreitni sem veldur þér bæði kvíða og leiðindum. Eins ættir þú að losna við sektarkenndina með því að segja kærustu þinni frá þessu og láta hana ákveða hvað henni þykir nauðsynlegt að gera í málinu. Þú hefur, elskulegur, ekkert gert ennþá sem telst rangt og þess vegna er engin ástæða til að hætta í vinnunni út af þessu eða kveljast tímunum saman af sektarkennd. LAUSLCTI OG KYNFERÐIS- LEGIR VEIÐISTAÐIR Það er á þér að skilja að mikið sé um alls kyns dað- ur og jafnvel lauslæti á þessum vinnustað þínum. Sannleikurinn er sá að sennilega er þónokkuð til i þessum athugasemdum þínum. Ef svo er færi best á því að á starfsmannafundum yrðu einmitt vand- ræði sem þessi rædd og gerðar tilraunir til að upp- ræta möguleika á slíkri hegðun, að minnsta kosti í vinnunni. Víða í samfélaginu er ailtof lítil áhersla lögð á trúmennsku og heiðarleika í tilfinningamálum og af þeim ástæðum er töluvert um framhjáhald og önnur svik í þeim efnum sem snúa að kynferðismál- um. Við lifum á tímum þar sem gömul gildi eru gróf- lega vanvirt og vanmetin vegna þess að á tímabil- um seinni ára strauma hefur þótt fengur í hvers kyns frjálslyndi á sem flestum sviðum. Kynferðislegt frjálslyndi er ekki viðeigandi og alls ekki á bak við maka eða væntanlegan lífsförunaut. Veröldin er að kljást við skelfilegan sjúkdóm sem fyrir flesta sem fá hann inniheldur dauðadóm í ein- hverri mynd og er þar átt við eyðni. Einmitt þetta at- riði ætti sjálfkrafa að minnka líkur á ótrúmennsku þeirra sem þannig siðblindu eru haldnir. Vinnustaðir ættu aldrei að verða kynferðislegir veiðistaðir þeirra sem ástunda það að hrifsa til sín það sem bersýni- lega er annarra og reyndar ætti enginn staður að verða vettvangur þannig spillingar. Mér þykir mjög jákvætt að heyra tvítugan pilt lýsa yfir afdráttarlausri andúð sinni á hvers kyns lauslæti og öðru álíka at- ferli i samneyti okkar hvert við annað í íslensku samfélagi. Vonandi færð þú sem fyrst frið fyrir allri óþarfa áreitni kvenna. Slíkt verður að teljast afsiðun og alls ekki líklegt til að auka hróður þeirra kvenna sem þannig hegðun temja sér. Gangi þér vel í skólanum í haust og vertu óhræddur að ræða þennan vanda þinn við kærust- una þína. Eða eins og sæti strákurinn sagði eitt sinn í hóp ennþá sætari stelpna um leið og hann beið spenntur eftir rökrænu svari: „Elskurnar mínar, eitt er að vera sætur og annað að vera eggjandi. Þó er almagnaðast að vera bæði sannur og heiðarlegur og finna að það virkar ekki bara ofan nafla eða þannig." Guð gefi þér hugrekki og þolinmæði til að vinna skynsamlega úr þessum tímabundna vanda. Með vinsemd, Jóna Rúna. □ LAUSN SÍÐUSTU GÁTU + + + + + + + + + + + ö + + K + + ú + + + + + + H A II N + S I T U R + T + + + + + + A D r? I II S + ú T R A S + + + + + + L + q R u N S A + H Æ + + + + + + H ó F + E R + S + G E Ð + + + + + + V Æ L L + + tí i L i F 1 + H A S S + L D J A + V E K U R Ð + N A M u + tí I R ó + S + S 0 D + A B s 'T’ 0 D G 0 T’ I Ð + V A T N R Ý R A + T R A L L T + + L I N + + A K T U + + + + i,’ L D + K A N D í S + T T N + H L A Ð A + V A 'T' N + H V 3 N N + H R i D + p L a N T U + V E R N D A + E T + V A M M E I p + E R N + I Ð S Y R T T R + tí L + + F R j ó + F L + K A U N + F + + F E R j A L Æ R A B I R G I + L E I p T A U + F k Æ G + p + + + M E I D + A M M A U N G A + + H E I M 5 K U R + + + G fO I I) F L A G D + T + N A S A L + + R A K T A G L + S + K N F É + E G G + R A + G L A U M U R + A R M I + E M I T? + L L 5 + A M 0 R + + A K U 1< j N N L E G I L L + F A K i R + L T N N A + 0 A !•’ L A R : + K t p T L L A D H 0 R N F I p D I N G U tl + L Æ I 54 VIKAN l.TBL. 1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.