Vikan


Vikan - 09.01.1992, Blaðsíða 15

Vikan - 09.01.1992, Blaðsíða 15
rænir krakkar og nokkrir arab- ar sem slæddust með. Húsin voru svo stór að það var sjald- an neitt vandamál að halda svo fjölmenn partí. Eitt sinn brutust strákar, sem ég þekki, inn í tóma íbúð og héldu partí þar. Það gekk allt vel þangað til lögreglan kom. Hún tók okkur nú ekki en lét okkur borga smásektir fyrir skemmdir. Ég var alltaf skít- hræddur við lögguna enda voru þeir frekar ruddalegir.“ Islam er ríkistrú í Kúveit og samkvæmt henni er bæði bannað að borða svínakjöt og drekka vfn. Var þá aldrei bragðað áfengi í þessum part- ium? „Jú, jú. Það var hægt að kaupa öll helstu hráefnin til að brugga bæði hvítvín og rauð- vín og var mikið gert að því. Lögreglan vissi að Vestur- landabúar gerðu þetta en að- hafðist aldrei neitt i málinu. Stundum var líka hægt að komast yfir smyglað vín en ég varð aldrei var við eiturlyf. Nadjum, vinur minn, sá sem tók þátt í andspyrnuhreyfing- unni, kynntist yfirtollgæslu- manninum á flugvellinum og eftir það var aldrei neitt mál fyrir hann að hafa með sér nokkrar flöskur af víni þegar hann kom inn i landið eftir utanlandsför. Málið var að þekkja rétta fólkið, þá komst maður áfram." Hjalti talar enn um hvað skemmtanalífið á íslandi sé miklu skemmtilegra og fjöl- breyttara. „Það er allt svo frjálst," segir hann af innlifun. Ég spyr hann því hvort hann finni mikinn mun á því frjáls- ræði sem ríkir hér og því ör- yggi sem við íslendingar búum við og því sem hann átti að venjast í Kúveit. Hann segir ekki hafa verið meira um slagsmál og ofbeldi í Kúveit en hér. Hann segir einnig hverfið, sem þau bjuggu í, hafa verið mjög rólegt og öruggt enda hafi það verið um tuttugu og fimm kílómetra frá miðbæn- um, þar sem mestu lætin voru. (framhaldi af því fer hann að segja mér frá því hversu al- gengt það var að húkka sór far með bíl. „Eitt sinn fengum við, ég og vinur minn, far með Bens og vorum mjög ánægðir með það þangað til bílstjórinn sagðist vera rannsóknarlögregla. Þá urðum við svolítið hræddir því að það er bannað að taka upp farþega. Bílstjórinn lét samt á engu bera og fór stoltur að sýna okkur myndir af syni sínum. Þegar hann kvaddi okkur gaf hann okkur síma- númerið sitt og eftir það gátum við hringt í hann þegar okkur vantaði far og hann skutlaöi okkur." Hjalti talar áfram um lífið í múhameðstrúarlandi. Hann talar um hve fjölskyldutengslin séu sterk og segir mér frá ýmsum forréttindum sem elsti sonurinn nýtur. „Það er svolít- ið gaman að þessu," segir hann og brosir, enda elstur í sínum systkinahópi. Hann segir mér frá ramödunni sem er föstumánuður múhameðs- trúarmanna. Þá má enginn sjást borða, drekka né reykja á meðan bjart er úti. Þessi lög giltu fyrir alla sem bjuggu í landinu og kostaði þrjátíu daga fangelsisvist ef maður var staðinn að því að brjóta þau. „Arabarnir sneru hrein- lega sólarhringnum við. Eftir sólsetur og fram á nótt voru allar búðir opnar og á næturn- ar voru haldnar stanslausar át- veislur." Ekki er laust við að bregði fyrir söknuði í röddinni. Hjalti neitar því þó að hann langi aft- ur til Kúveit. „Það er flnt að vera hér,“ segir hann ánægð- ur á svip. Hann segir að fjölskyldan hafi alltaf reynt að koma hing- að á sumrin. Þau ferðuðust mikið á þessum fimm árum sem þau bjuggu í Kúveit enda er mjög hagstætt að fljúga frá Kúveit til ýmissa landa. Hjalti kom þó aldrei til nágranna- landsins íraks en segist hafa heyrt að landið væri mjög ólíkt Kúveit. Fátækt sé mikil þar og margir kunni hvorki að lesa né skrifa. Ólæsi er næstum^ óþekkt í Kúveit og stelpur stunda háskólanám þar engu síður en strákar. Það er því augljóst að mikill munur er á þessum nágrannaþjóðum, (r- ökum og Kúveitum. ( (rak ríkir vel þar sem ég var búinn að læra heilmikla hagfræði úti. Ég var alveg steinhissa á öllu fyrstu dagana í Versló. Aginn er enginn miðað við það sem ég hafði vanist [ enska skólanum mínum í Kúveit. Krakkarnir létu stundum eins og fífl í tímunum og ég bara gapti. Ég var fljótur að kynnast krökkunum í Versló, sérstak- lega þeim sem voru með mér í bekk. Núna er ég í öllum ár- göngum, 3., 4., 5. og 6. bekk, því að ég á eftir að taka ein- stök fög eins og vélritun og rit- vinnslu og fleira. Versló er ágætur skóli og ég er mjög ánægður þar.“ Næsta vor útskrifast Hjalti með íslenskt stúdentspróf, þá ári á undan flestum jafnöldrum sínum. Hann segist ætla að taka sér árs frí áður en há- skólanám tekur við, segist ekkert vera að flýta sér enda óákveðinn í hvað hann ætlar að læra. Hann viðurkennir að líklegast verði háskólinn hér heima fyrir valinu. En ætlar hann að búa á íslandi í fram- tíðinni? „Já, ég býst við því. Samt er nú ansi kalt hérna á veturna," segir hann og lítur með fyrir- litningu á snjóinn sem fellur mjúklega til jarðar fyrir utan gluggann. „í Kúveit gat maður verið í stuttbuxum og stutt- ermabol allt árið. Það er alveg rosalega þægilegt." Þrátt fyrir ósk um sól og mik- inn hita er nokkuð víst að Hjalti sprangar ekki um á stuttbux- um og stuttermabol á næst- unni. Hann rétt náði að hlaupa burt frá spurningaflóði mínu til að pakka niður fyrir fyrirhug- aða ferð til fjölskyldu sinnar sem nú býr í Bern í Sviss. □ til að mynda algjört karlaveldi. Hjalti segir að á meðan Kú- veit var hernumið hafi írösku hermennirnir ráðist hvarvetna inn í íbúðir og tekið það sem þeim leist á. Hann segir íbúð- ina þeirra í háskólahverfinu ekki hafa farið varhluta af þessari græðgi írösku her- mannanna og hún hafi einnig verið mikið skemmd. Það var því sár drengur sem sat hér uppi á íslandi með nokkra geisladiska í fórum sínum. Flestar aðrar eigur voru glat- aðar. Rúmum mánuði eftir að stríðið skall á í Kúveit var Ijóst að Hjalti gæti ekki haldið áfram námi sínu í Kúveit á næstunni. Hann hóf því nám við Verzlunarskóla íslands. En af hverju Versló? „Fyrst sótti ég um MR og MH en var neitað. Mér var sagt að skólarnir væru full- skipaðir og því væri ekkert pláss fyrir mig. Ég sótti því um í Versló og fékk þar inngöngu enda hentaði það mér mjög ▲ Hús Bebehani- fjölskyld- unnar, sem er ein þeirra stæstu i Kúveit. Inni í húsinu er allt í anda Lúðvíks 14. Frakk- lands- konungs. ▼ Eitt af mörgum bæna- húsum Múhameös- trúarmanna í Kúveit- borg. 1. TBL. 1992 VIKAN 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.