Vikan - 09.01.1992, Blaðsíða 22
þannig aö íslendingar, sem þau þekktu ekki
neitt en voru þarna í námi, skrifuðu meömæla-
bréf. Þá loksins fengu þau íbúö þar sem þau
bjuggu þessi þrjú og hálft ár sem þau voru
þarna. „Ibúðin var þrældýr. Við leigðum
þriggja herbergja íbúð á 34.000 krónur. Santa
Barbara er vinsæll staður og margir telja að
þar sé fallegast í Bandaríkjunum. Þarna vilja
kennararnir vera I sólinni." Talandi um sólina
förum við að tala um veðrið.
„Þarna er alltaf sól. Fyrsta árið var ég í stutt-
buxum frá því í apríl, þegar ég kom, þangað til
í desember. Þá þurfti ég að fara í síðbuxur til
að faratil íslands! I Kaliforníu eru stuttbuxurn-
ar bara eins og hver annar fatnaður. Þó maður
fari út að borða í stuttbuxum segir enginn neitt
við því,“ segir Binni og saknar greinilega stutt-
buxnaveðursins.
KENNARARNIR HENTU MYNDUNUM!
„Námið var mjög skemmtilegt. Yfirleitt fengum
við heila viku til að taka myndir og framkalla og
komum svo með þær í skólann þar sem þær
voru rakkaðar niður. Jafnvel kom fyrir að kenn-
ararnir hreinlega hentu myndunum en ég
slapp nú við það sem betur fer. Sá sem var
frægastur fyrir þetta var hættur þegar ég byrj-
aði.“ Og Binni segir mér frá hermanni sem var
með honum í þessu og var svo ofboðslega
nákvæmur en það á ekki við Binna og hann
segir mér frá stelpu sem átti nóg af peningum
og gat tekið á margar filmur meðan Binni hafði
bara efni á einni. „Efniskostnaðurinn, sem
Lánasjóðurinn tekur þátt í, er bara dropi í
hafið. Þetta er mjög dýrt en ég drakk þá bara
minni bjór eða borðaði minna." Binni útskrifað-
ist samt úr skólanum með hæstu mögulega
einkunn og það er engin montsaga hjá honum
heldur heilagur sannleikur.
MEÐAL TARANTÚLA OG
SKRÖLTORMA
„Ég kynntist kennara þarna, Doug Peck, og fór
með honum í ferðalag ásamt tveimur öðrum
nemendum, fórum alla leið inn í Arizona og
þar er þetta Antilope Canyon (Antilópugil) í
eyðimörkinni." Þegar Binni fer aö tala um þetta
finn ég að ævintýri er I vændum.
„Antilope Canyon er gamall árfarvegur sem
farið er ofan í og þetta er inni á verndarsvæði
indíána. Maður var hálfsmeykur við að fara inn
á svæðið því þarna voru hjólhýsi og allt mjög
fátæklegt. Við keyrðum samt Rúgbrauðið inn á
svæðið og leggjum. Förum á köðlum niður I
gilið, alveg niður á botn. Þarna getur maður átt
18 VIKAN 1. TBL. 1992