Vikan


Vikan - 09.01.1992, Side 32

Vikan - 09.01.1992, Side 32
TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN STEINGEIT, NAUT OG MEYJA Stjörnuspekin á sér flókið kerfi og er hluti þess skipting í frumþættina eld, jörð, loft og vatn. Innan hvers frum- þáttar eru þrjú stjörnumerki, eitt frumkvætt, eitt stöðugt og eitt breyti- legt. Hér á eftir verður fjallað um höf- uðskepnuna jörð en hér er verið að fjalla um orku náttúrunnar því stjörnu- merkin mótast af náttúrunni og endur- spegla þá krafta sem maðurinn sér þar. Að vera Steingeit þýðir í raun ekki annað en það að vera fæddur um há- vetur. Stjörnuspekingurinn skoðar síðan eðli þess árstíma og yfirfærir það sem hann sér á persónuleika Steingeitarinnar, enda liggur að baki sú kenning að maður og náttúra séu eitt. Með þvi að skipta stjörnumerkjunum niður eftir frumþáttum er um leið mannfólkinu skipt niður í fjóra höfuðflokka. Eldur er táknrænn fyr- ir hugsjónir og skapandi athafnaorku, jörð fyrir efnisorku, loft fyrir hugmyndaorku og vatn fyrir sálar- og tilfinningaorku. ALLRA MERKJA RAUNSÆJUST Jarðarmerkin eru Steingeit, Naut og Meyja. Jörð táknar hið áþreifanlega, heim raunsæis og raunverulegrar verðmætasköpunar. Jarðar- merkin eru allra merkja raunsæjust og hug- myndir, sem hafa lítið sjáanlegt eða áþreifan- legt hagnýtt gildi, eiga ekki upp á pallborðið hjá þeim. Hugtakiö jörð á þó einnig við móður nátt- úru, líkamlega snertingu og næmleika. Efnis- hyggja þarf ekki einungis að tákna peninga, til dæmis eru snerti- og bragðskyn öflugustu skynfæri jarðarmerkjanna. Þau trúa á hið áþreifanlega, það sem þau geta snert eða bragðað á. Jarðarmerkin eru raunsæ og skarpskyggn og líta á ytri umgjörð. Það þýðir þó ekki að þau geti ekki beitt sér á andlegum og listrænum sviðum. Þá þarf hið listræna hins vegar að vera þjóðfélaginu öllu til gagns. Jarðarmerkin vilja alltaf vera uppbyggileg og raunsæ, hver sem vettvangur þeirra er. Styrkur jarðarmerkjanna er fólginn í dugnaði þeirra og hæfileikum til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Fólki í jarðarmerkjum hentar því vel að glíma við hversdagslegan veruleika. Annar áberandi eiginleiki þeirra er hæfileikinn til að byggja upp. Jarðarmerkin eru alvörugefin og varkár. Þau eru auk þess oft kröfuhörð og vilja láta vinna öll verk eftir fyrirfram settum reglum. Ákveðin stífni er því meðal neikvæðari eiginleika þeirra. Þröngsýni gæti einnig verið einn af stærri veikleikum þeirra. Jarðarfólki hættir til að takmarka sig um of við skynfærin og hinn áþreifanlega heim. Tími þeirra fer í vinnu, söfnun dauðra hluta og át og drykkju. Séu áhrif jarðar of sterk á kostnað annarra þátta gæti fallegt hús skipt jarðarmann meira máli en innri persónugerð. Skortur á jörð lýsir sér hins vegar oft í óhagsýni eða ruglingslegum hugmyndum sem erfitt er að koma niður á jörðina. Raunsæi get- ur þá verið af skornum skammti og fólki getur gengið illa að koma sér fyrir í tilverunni. Einnig má segja að veik áhrif jarðar geti komið fram í áhugaleysi á veraldlegum metnaði án þess að slíkt þurfi beinlínis að vera vandamál. MERKI BYGGINGAMEISTARANS Steingeit er frumkvæða jarðarmerkið. Frum- kvæðu merkin hafa ákveðinn hreyfanleika f eðli sinu, hvötina til að stíga fram og hefjast handa, taka frumkvæði og framkvæma. Steingeitin er þó eftir sem áður íhaldssöm og varkár enda innhverf. í framkvæmdum sínum tekur hún mið af jarðbundnum forsendum og þörf fyrir áþreifanlegan árangur. Öll búa frum- kvæðu merkin yfir forystuhæfileikum þó að sjálfsögðu þurfi að rækta þá eins og annað. Pláneta Steingeitar er Satúrnus - hin grimma þláneta agans. Lítið á myndir af Satúrnusi. ískaldur glæsileiki hringja Satúrnusar bendir til 28 VIKAN l.TBL.1992

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.